Júlía Sylvía keppti á Junior Grand Prix í Ljubljana
Í síðustu viku héldu Júlía Sylvía Gunnarsdóttir, skautari úr listskautadeild, ásamt þjálfara deildarinnar, Lorelei Murphy, til Ljubljana til þátttöku á Junior Grand Prix mótaröðinni sem fulltrúar Íslands. Þetta var í fyrsta skipti sem Júlía Sylvía tók þátt á mótaröðinni, en nokkrir íslenskir skautarar hafa tekið þátt á mótaröðinni, þar á meðal skautarar úr Birninum, en nokkur ár eru síðan okkar félag sendi fulltrúa til keppni.
Junior Grand Prix er mótaröð fyrir Junior skautara alls staðar að úr heiminum sem haldin er af Alþjóðaskautasambandinu, ISU. Á mótaröðinni safna skautarar stigum og að lokum keppa stigahæstu 6 keppendur í hverjum flokki til úrslita. Meira um mótaröðina má finna hér.
Á mótinu voru 31 keppandi í stúlknaflokki og á fimmtudeginum var keppt í stuttu prógrami þar sem Júlía var fimmtánda í röðinni. Í stuttu prógrami þurfa skautarar að sýna skylduæfingar. Júlíu skautaði gott stutt prógram og endaði með heildarstig upp á 28,56, þar af 12,30 í tæknieinkunn og 17,26 í framkvæmdareinkunn. Á laugardeginum var svo keppt í frjálsu prógrami og gekk Júlíu ágætlega, hún gerði góða snúninga og stökk tvöfalda Axelinn af miklu öryggi og má þess geta að lýsandi mótsins gaf Júlíu mörg hrós fyrir sína frammistöðu. Hún endaði með 56.39 í heildarstig fyrir frjálst prógram, þar af 23,69 í tæknieinkunn og 34,70 fyrir framkvæmd. Að keppni lokinni endaði Júlía með heildarstig fyrir bæði prógröm upp á 84.95 stig sem skilaði henni 28. sætinu. Júlía má vera sátt með sinn árangur á mótinu þrátt fyrir að vera aðeins frá sínu besta.
Júlía og Lorelei koma reynslunni ríkari heim eftir ferðina og erum við öll afar stolt yfir þátttöku Júlíu á mótinu.
#FélagiðOkkar

Uppfærð æfingatafla
Við höfum gert smávægilegar breytingar á stundatöflu deildarinnar.
- Æfingar byrjenda standa yfir frá 1. september til 6. desember 2021
- Æfingar framhaldsiðkenda frá 2. september til 11. desember 2021
Fjölnisjaxlinn 2021
FJÖLNISJAXLINN
Ofursprettþraut Fjölnis
Ert þú það öflugur íþróttamaður/öflug íþróttakona að þú getir klárað Fjölnisjaxlinn?
ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ – FJÖLNISJAXLINN 2021
Fjölnir ætlar að halda „Fjölnisjaxlinn 2021“ og skorar félagið á alla íþróttaiðkendur félagsins sem og aðra áhugasama að skrá sig til leiks!
– Takmarkaður þátttökufjöldi –
Einstaklings- og liðaáskorun
(Í liðaáskorun syndir einn, annar hjólar og þriðji hleypur)
Einstaklingsáskorun (sund 400 metrar – hjól 10 km – hlaup 3 km)
Fyrir 16 ára og eldri
Byrjenda og almennur flokkur
Einstaklingsáskorun (sund 200 metrar – hjól 3 km – hlaup 1 km)
Fyrir 15 ára og yngri
Liðaáskorun / Fjölskylduáskorun (sund 200 metrar – hjól 3 km – hlaup 1 km)
Fyrir 15 ára og yngri og fjölskyldur
Einn syndir, annar hjólar og þriðji hleypur
Laugardaginn 25. september kl. 10:00. Einstaklingsáskorun 16 ára og eldri verður ræst af stað kl. 10:00 (almennur flokkur) og kl. 10:20 (byrjendaflokkur). Fjölskyldur og iðkendur 15 ára og yngri verða ræst af stað kl. 11:30 (einstaklings og liða). Mæting er 30 mínútum áður, en nákvæmur upphafstími verður gefinn út þegar nær dregur.
Skráning á meðfylgjandi slóð https://forms.office.com/r/M6MjqNsp3W.
Lokafrestur til að skrá sig er til kl. 23:59 sunnudaginn 19. september n.k.
Skráningargjöld: Einstaklingsþátttaka (4.500 kr. fyrir 16 ára og eldri, 3.000 kr. fyrir 15 ára og yngri) Liðaþátttaka einungis fyrir fjölskyldur og 15 ára og yngri 7.500 kr. fyrir liðið í heild.
Þátttakendur geta valið um að fá keppnisbol og þátttöku-medalíu að keppni lokinni. Allir fá hressingu að keppni lokinni.
(Vegna Covid-19 áskilur félagið sér rétt til að fella viðburðinn niður með stuttum fyrirvara).
Vonumst til að sjá sem flesta taka þátt í skemmtuninni!
Frábært sumar hjá tennisdeildinni
Tennisdeildin hefur átt frábært sumar, og þá sérstaklega hjá Afrekshópi Unglinga sem unnu sér inn titla á Reykjavíkur Meistaramóti og Íslandsmóti Utanhús, bæði í einstaklings keppni og í liðakeppni.
Reykjavíkur Meistaramót:
Einstaklingskeppni:
U12 kk einliða: 1. sæti Daniel Pozo, 2. sæti: Björn Björnsson
U14 kk tviliða: 1. sæti: Daniel Pozo & Björn Björnsson
U14 kk einliða: 1. sæti: Björn Björnsson
U14 kvk einliða: 2. sæti: Saulé Zukauskaité
U16 tvíliða: 1. sæti: Eygló Ármannsdóttir & Saulé Zukauskaité
U16 einliða: 1. sæti: Eygló Ármannsdóttir
U 18 einliða: 1. sæti: Eygló Ármannsdóttir
Meistaraflokkur kvenna einliða: 1. sæti: Eygló Ármannsdóttir
Reykjavíkur Meistaramót:
Líðakeppni:
U12: 2. sæti – Daniel Pozo og Björn Björnsson
U14: 2. sæti – Saulé Zukauskaité og Maria Hrafnsdóttir
U16: 1. sæti Fjölnir A: Eygló Ármannsdóttir & Saulé Zukauskaité
U18: 1. sæti: Fjölnir B: Eygló Ármannsdóttir & Bryndís Rósa Armesto Nuevo; 2. sæti – Fjölnir A: Eva Diljá Arnþórsdóttir og Maria Hrafnsdóttir
Meistaraflokkur Kvenna: 1 sæti: Fjölnir B: Eygló Ármannsdóttir & Eva Diljá Arnþórsdóttir; 2. sæti: Fjölnir A: Saulé Zukauskaité & Irka Cacicedo
Íslandsmót Utanhús:
Einstaklingskeppni:
Meistaraflokk kvenna tvilíða – 1. Sæti- Eygló Ármansdóttir & Eva Arnþórsdóttir;
U18 einliða: 1. Sæti Eva Arnþórsdóttir ; 2. Sæti Eygló Ármannsdóttir
U16 einliða: 1. Sæti Eygló Ármannsdóttir, 2. Sæti: Saulé Zukauskaité
U16 tvíliða: 2. Sæti Eygló Ármannsdóttir & Saulé Zukauskaité;
U14 kv einliða: 2. Sæti- María Hrafnsdóttir; U14 tvíliða – 1. Sæti – Daniel Pozo með spilari frá TFK (Ómar Jónasson) ; 2. Sæti: Maria Hrafnsdóttir & Saule Zukauskaité
Íslandsmót Liðakeppni (Utanhús):
U14 (Björn Björnsson, Saule Zukauskaité og Maria Hrafnsdóttir) – 1. Sæti
U16 (Eygló Ármannsdóttir, Saulé Zukauskaité , Bryndís Armesto Nuevo & Maria Hrafnsdóttir) – 2. Sæti
U18 ( Eygló Ármannsdóttir, Eva Arnþórsdóttir , Saule Zukauskaité, Bryndís Armesto Nuevo & María Hrafnsdóttir ) – 2. Sæti
Svo var Fjölnir líka Íslandsmeistari Karla í 50+ Liðakeppni og við vorum í 2. sæti í Meistaraflokk Karla í Liðakeppni.
50 + Lið:
Hrafn Hauksson
Joaquin Armesto Nuevo
Olafur Helgi Jónsson
Reynir Eyvindsson
Daniel Niddam
Meistaraflokkur Karla:
Hjalti Pálsson
Kjartan Pálsson
Sindri Snær Svanbergsson



Uppfært: Strætófylgd í vetur 2021
10/09/2021Fimleikar,Knattspyrna,Handbolti,Körfubolti,Félagið okkar
Við verðum með fylgd í strætó fyrir 1. – 2. bekk í vetur eins og undanfarin ár frá öllum frístundarheimilum í Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal á æfingar sem eru klukkan 14:40 – 15:30 í Egilshöll. Fylgdin hófst miðvikudaginn 1. september. Greinar sem eru í boði eru fimleikar, handbolti, knattspyrna og körfubolti.
Skráning í fylgdina fer fram á fjolnir.felog.is. Vetrargjald (1. september – 31. maí) er 7.900 kr.
Einnig þarf að upplýsa sínu frístundaheimili. Frítt er í strætó fyrir 11 ára og yngri.
Mjög mikilvægt er að foreldrar tilkynni starfsfólki frístundarheimilisins hvaða daga barnið á að fara á æfingu. Stundatafla fyrir æfingar sem eru í boði með fylgdinni má sjá hér neðar á síðunni. Vinsamlegast skráið barnið í fylgdina og látið frístundaheimilið vita í síðasta lagi deginum áður en æfingin er, ekki er nóg að tilkynna þátttöku samdægurs.
Gott er ef foreldrar hafi tök á að fara með krökkunum í strætó frá frístundarheimilinu og til baka áður en þau fara í sýna fyrstu fylgd.
Við verðum með krakkana úr fylgdinni sér í búningsklefum svo auðveldara sé að halda utan um hópana. Við verðum í búningsklefum í Fjölnishöll eins og í fyrra.
Fylgdin verður með sama sniði og fyrri ár. Ath. gerðar hafa verið smávægilegar breytingar á leiðakerfi Strætó. Krakkar sem koma úr Regnbogalandi og Kastala þurfa að labba sjálf út á stoppustöð og til baka frá stoppustöð í frístund eftir æfingar, en það er tekið á móti þeim í vagninum, þeim fylgt á æfingu og til baka aftur. Fylgdarmaður passar upp á að þau fari út á réttri stoppustöð. Sama gildir með Galdraslóð, Fjósið og Úlfabyggð. Starfsfólk frístundarheimilana hafa aðstoðað okkur með fylgdina á stoppustöðvarnar ef þau hafa tök á því. Aðrir skólar fá fylgd frá Frístundarheimilum og til baka. Á mánudögum geta iðkendur úr 7.fl. kk yngri í knattspyrnu komið í fylgdina á æfingu sem hefst kl. 15:30 en foreldrar sækja börnin í Egilshöll eftir æfingu.
Við hvetjum svo foreldra barna í 3. bekk og eldri til að kenna börnum sínum á Strætó.
Í ár er í fyrsta sinn lögð gjaldtaka á fylgdina. Þrátt fyrir styrk frá ÍBR (Íþróttabandalagi Reykjavíkur) þá er kostnaður sem fylgir þessu verkefni of mikill fyrir félagið þar sem styrkurinn nær aðeins yfir hluta kostnaðar.
Upplýsingar um leiðakerfi Fjölnis og Strætó má finna hér
Fjáröflun Fjölnis í september
Við bjóðum einnig upp á þann valmöguleika að eyrnamerkja kaupin einni eða fleiri deildum.
Ef kaupin eru t.d. merkt knattspyrnudeildinni þá fer allur hagnaður af sölu til hennar.
Ef tvær deildir eru valdar þá skiptist hagnaðurinn í tvennt og svo framvegis.
Sölutímabilið stendur yfir frá og með mánudeginum 6. september til og með sunnudeginum 19. september.
Afhending á vörum fer fram fimmtudaginn 23. september frá kl. 17-18 á skrifstofu Fjölnis.
Við bjóðum einnig upp á heimsendingu á pöntunum yfir 10.000 kr. gegn 1.000 kr. viðbótargjaldi.
Þetta er einfalt! Þú velur þær vörur sem þér líst best á, hakar við deild og heimsendingu ef það á við, leggur inn á fjáröflunarreikning Fjölnis og bíður spennt/ur eftir vörunum.
rknr. 0133-15-200689
kt. 631288-7589
skýring: nafn kaupanda
kvittun á vidburdir@fjolnir.is
#FélagiðOkkar
Smella hér til að panta vörur
Almennur félagsmaður pantar vörur í gegnum þetta skjal

Breytingar á æfingatímabili knattspyrnudeildar
Breyting var gerð á æfingatímabili knattspyrnudeildar og hætt var með haust og vor/sumargjald hjá 6. flokki og eldri. Í stað kemur árgjald fyrir tímabilið 1/9/2021 – 31/8/2022 en síðasta tímabil sem forráðamenn greiddu fyrir náði til 30/9/2021. Í september hefur verið tekið tveggja til þriggja vikna frí undanfarin ár þó svo að æfingatímabilið hafi verið út september. Í ár var ekkert frí tekið og byrjar nýtt tímabilið 1. september eins og hjá flestum öðrum greinum félagsins.
Frístundastyrkur Reykjavíkurborgar er gefinn út fyrir almanaksárið og kemur styrkurinn næst 1. janúar. Ekki er hægt að nýta styrkinn fyrir árgjald þessa árs ef búið er að ráðstafa honum að fullu nú þegar. Hægt er að dreifa greiðslum allt að sex mánuðum. Ef styrkurinn er ekki nýttur fyrir 1. september 2022 er hægt að nýta hann upp í árgjaldið.
Þurfi fólk frekari aðstoð með greiðsludreifingu má senda póst á skrifstofa@fjolnir.is
Lúkas Logi til Empoli FC
Lúkas Logi til Empoli FC
Knattspyrnudeild Fjölnis og Empoli FC hafa náð samkomulagi um að Lúkas Logi Heimisson muni ganga til liðs við ítalska félagið á lánssamning. Um er að ræða samning til eins árs en að lánstíma loknum hefur Empoli FC rétt á að kaupa leikmanninn.
Þessi samningur er í takt við afreksstefnu Fjölnis að veita fleirum af okkar ungu og efnilegu leikmönnum tækifæri til að spila erlendis og elta drauma sína. Lúkas Logi er annar leikmaður Fjölnis sem fer til Ítalíu á skömmum tíma en fyrr í sumar fór Hilmir Rafn til Venezia FC.
Lúkas Logi er 18 ára gamall sóknarmaður sem kemur úr öflugu unglingastarfi Fjölnis og er meðal annars hluti af hinum sterka 2. flokki sem eru í baráttu um að verða Íslandsmeistarar. Lúkas Logi hefur skorað 5 mörk í 24 leikjum með meistaraflokki. Þá á hann einnig samtals 5 landsleiki að baki fyrir U19 ára og U16 ára landslið Íslands.
Við óskum Lúkasi Loga alls hins best á Ítalíu.
Mynd: Baldvin Berndsen

Fjölnir Open 2021
Fjölnir Open 2021 lauk um helgina. Spilað var í góðu golfveðri í Þorlákshöfn. Leikið var með Texas scramble fyrirkomulagi. Eftir mótið, sem heppnaðist frábærlega, voru grillaðir hamborgarar í golfskálanum og skemmtu allir sér vel.
Sérstakar þakkir til Golfklúbbs Þorlákshafnar fyrir frábæran völl og góðar móttökur.
Hlökkum strax til mótsins á næsta ári