Fréttabréf listskautadeildar Fjölnis – nóvember 2026
Fréttabréf listskautadeildar Fjölnis – nóvember 2026
Northern Lights Trophy
29.október til 1.nóvember fór fram alþjóðlega mótið NLT. Keppni hófst með Advanced Novice og setti Maxime persónulegt stigamet með 85,36 stigum, Arna Dís sömuleiðis með 83,3 stigum og Ermenga Sunna fékk 80,3 stig. Enduðu þær þar með í 8, 10 og 13 sæti. Stórkostleg skemmtun að fylgjast með þessum flottu prógrömmum. Á sunnudeginum tók svo interclub hluti mótsins við. Í flokknum Chicks keppti Viktoría en í þeim flokki eru venjulega ekki gefin upp stig en ákveðið var að gefa þau upp til að hafa fyrirkomulag Northern Lights Trophy meira í takt við önnur Interclub-mót, þar sem keppt er í þessum aldursflokkum með opinberum stigum og úrslitum. Viktoría hlaut 17,5 stig og endaði þar með í 4.sæti. Í Intermediate Women fékk Ágústa gull með 33,77 stig, Una silfur með 29,28 stig og Arna Björg 6.sætið með 21,26 stig. Bættu þær sig allar frá haustmótinu. Í Intermediate Men keppti Marínó Máni, fékk hann gullið með 24,94 stigum. Í Basic Novice fékk Karlína gullið með 42,72 stigum, Elsa Kristín 6.sætið með 29,44 stigum, Elisabeth Rós 8.sætið með 29,09 stig og bættu þær sig allar frá haustmótinu. Vægast sagt glæsilegur árangur hjá öllum okkar keppendum á þessu stóra móti en alls kepptu um 140 skautarar hvaðanæva úr heiminum. Í framhaldi af Northern Lights Trophy bauð Skautasambandið uppá Feedback Sessions með fulltrúum af dómarapanel mótsins fyrir Landsliðið en við eigum 4 skautara í þeim hópi.
Hrekkjavökudiskó
Haldið var upp á hrekkjavökuna með stæl hjá skautaskólanum, hóp 5 og 4B, en æfing fór fram með óhefðbundnu sniði í búningum. Boðið var upp á andlitsmálningu og voru allir leystir út með draugasleikjó og safa. Vonum við að allir hafi skemmt sér hrikalega.
Norðurljósaleikarnir
Innanfélagsleikarnir okkar voru haldnir laugardaginn 14.nóvember og kölluðust þeir að þessu sinni Norðurljósaleikarnir til að tengja þá við NLT. 35 skautarar tóku þátt og var dagurinn dásamlegur í alla staði. Þessir leikar eru ætlaðir sem undirbúningur fyrir félagalínuna og voru 12 skautarar að taka þátt í fyrsta sinn. Vel gert krakkar!
Framundan
Æfingar falla niður laugardaginn 21.nóvember vegna hokkímóts og er stjórn að skipuleggja að nýta tækifærið og fara með framhaldshópana í bíó. Skráning fer fram á Abler.
Íslandsmót og Íslandsmeistaramót Skautasambandsins fer fram í skautahöllinni á Akureyri helgina 28. til 29.nóvember. Keppir keppnislínan okkar þar og hvetjum við alla til að koma og horfa á þessa snillinga berjast um titilinn.
Jólasýningarnar eru áætlaðar kl.10 og 12 laugardaginn 19. desember og verður það slúttið á þessari önn. Alþjóðlegi skautadagurinn verður þann 20.desember og hvetjum við alla til þess að skella sér á skauta þann dag. Jólaæfingabúðir eru í fullum undirbúningi og skráning opnar fljótlega.
Einnig styttist í að skráning í hópferðina á Vormótið hefjist. Þetta stefnir í að vera fjölmennasti hópur af skauturum sem hefur nokkurn tíman farið frá Fjölni og er þetta ferð sem skautararnir okkar hlakka til allt árið. Þeir sem geta tekið þátt fá boð á Abler.





Fjölnir og Hæfi endurnýja og efla samstarf sitt
Fjölnir og Hæfi endurnýja og efla samstarf sitt

Ungmennafélagið Fjölnir og Hæfi endurhæfingarstöð hafa endurnýjað og aukið samstarf sitt með það að markmiði að efla þjónustu við iðkendur félagsins og stuðla að bættri heilsu, vellíðan og forvörnum.
Hæfi er staðsett í Egilshöll, í næsta nágrenni við æfingaaðstöðu Fjölnis, og hefur samstarfið það að leiðarljósi að auðvelda iðkendum aðgang að fjölbreyttri sérfræðiþjónustu.
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður Fjölnis, fagnar auknu samstarfi:
„Við fögnum því að efla samstarfið við frábært fagfólk Hæfis og bindum miklar vonir við að það stuðli að enn betri umgjörð um iðkendur félagsins. Það er okkur mikilvægt að iðkendur hafi greiðan aðgang að faglegri þjónustu og stuðningi, hvort sem um er að ræða meiðsli, endurhæfingu eða aðra þætti sem snúa að heilsu og vellíðan. Við sjáum jafnframt mikil tækifæri í aukinni fræðslu og forvörnum sem munu nýtast bæði iðkendum, foreldrum og þjálfurum.“
Ása Dóra Konráðsdóttir, framkvæmdastjóri Hæfis, tekur undir og er ánægð með áframhaldandi samstarf:
„Við hjá Hæfi erum mjög ánægð með að halda áfram og efla samstarfið við Fjölni. Með fjölbreyttri sérfræðiþekkingu okkar viljum við styðja við iðkendur félagsins, bæði þegar kemur að meiðslum og endurhæfingu en ekki síður með fræðslu og forvörnum. Við teljum að með nánu samstarfi við félagið, þjálfara og iðkendur getum við stuðlað að heilbrigðara íþróttaumhverfi og hjálpað iðkendum að ná sínum markmiðum.“
Aukið aðgengi að sérfræðingum
Í gegnum samstarfið hafa iðkendur Fjölnis greiðan aðgang að sjúkraþjálfurum og læknum Hæfis vegna meiðsla, endurhæfingar og stoðkerfisvanda. Lögð er áhersla á að iðkendur fái skjóta og faglega þjónustu, svo hægt sé að bregðast tímanlega við meiðslum og styðja við örugga endurkomu til æfinga og keppni.
Samstarfið nær jafnframt til þjónustu sálfræðinga, íþróttasálfræðinga, næringarfræðinga og markþjálfa. Þannig er lögð áhersla á heildræna nálgun á heilsu og vellíðan iðkenda, bæði innan vallar sem utan.
Fræðsla og forvarnir í fyrirrúmi
Mikilvægur hluti hins aukna samstarfs er fræðsla fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara Fjölnis. Stefnt er að fjórum námskeiðum árlega þar sem fjallað verður um fjölbreytt málefni á borð við næringu, íþróttasálfræði, forvarnir og aðra þætti sem styðja við íþróttaiðkun.
Markmiðið er að námskeiðin verði iðkendum að kostnaðarlausu og verða þau auglýst sérstaklega þegar nær dregur.
Hvernig nýta iðkendur þjónustuna?
Iðkendur Fjölnis og forráðamenn þeirra geta haft beint samband við Hæfi til að óska eftir tíma eða fá nánari upplýsingar um þjónustuna. Mikilvægt er að taka fram að viðkomandi sé iðkandi hjá Fjölni og tilheyri ákveðinni deild félagsins.
Hægt er að hafa samband í síma 511 1011, með tölvupósti á mottaka@haefi.is eða í gegnum heimasíðuna www.haefi.is.
Iðkendur greiða sjálfir fyrir einstaklingsbundna þjónustu og veitir Hæfi upplýsingar um verð og kjör.
Með endurnýjuðu samstarfi vilja Fjölnir og Hæfi skapa enn betri umgjörð um iðkendur félagsins, efla forvarnir og tryggja að þeir hafi greiðan aðgang að faglegri aðstoð þegar á þarf að halda.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Hæfi og þeirra verkefna sem fram undan eru!
Aðrar fréttir af deildunum
Fréttabréf Listskautadeildar
Fréttabréf Listskautadeildar
Strákar skauta líka
Nú er 10 vikna strákanámskeiðinu okkar lokið. Markmiðið með námskeiðinu var að gefa fleiri strákum tækifæri til að prófa listskauta, kynnast íþróttinni og sýna að listskautar eru svo sannarlega fyrir alla. Það var virkilega gaman að fylgjast með undanfarnar vikur. Strákarnir stóðu sig frábærlega, sýndu miklar framfarir og voru margir efnilegir skautarar í hópnum. Við vonumst til að sjá sem flesta þeirra áfram á svellinu!
Grunnpróf og vinadagur
Grunnpróf fóru fram í Egilshöll þann 10.október. 22 skautarar frá Fjölni þreyttu prófin og gekk almennt mjög vel. Þegar skautarar hafa lokið skautum regnbogann með því að fá hvítu næluna geta þeir haldið áfram og tekið grunnpróf sem sýna getustig í sambandi við keppnisrétt í keppnislínu. Sama dag var svo vinadagur í skautaskólanum og vonum við að allir hafi skemmt sér vel.
Advanced Novice á Diamond Spin
15. til 18.október fór Advanced Novice til Katowice, Póllands að keppa á Diamond Spin. Ermenga Sunna endaði með 83,09 stig, Maxime með 81,20 og Arna Dís 80,55. Með þessu enduðu þær í 11. 14. og 15. sæti af 42 keppendum.
Skautahlaup
Skautahlaupið fór í þjálfaraferð til Thialf í Hollandi. Upplifðu og lærðu helling og komu heim með skautahlaupsskauta svo fólk geti komið að prófa á alvöru skautum. Hvetjum alla að prófa skautahlaup.
Framundan
Northern Lights Trophy fer fram næstu helgi í Laugardal. Fjölnir verður með 11 keppendur þar og hvetjum við alla að gera sér ferð að fylgjast með þessu stórkostlega alþjóðlega móti.
Laugardaginn 31/10 verður hrekkjavökuball í skautaskólanum þar sem hóp 4B og 5 verður einnig boðið að taka þátt. Allir að mæta í búning, þetta verður hrikaleg skemmtun.
Innanfélagsleikarnir okkar verða haldnir þann 14.nóvember og munu þeir að þessu sinni verða kallaðir Norðurljósaleikarnir þar sem Northern Lights Trophy verður ný yfirstaðið. Þessir leikar eru ætlaðir sem undirbúningur fyrir félagalínuna og verða margir skautarar að taka þátt í fyrsta sinn.
Við stefnum á að halda jólasýningu þann 19.desember og verður það slúttið á þessari önn. Alþjóðlegi skautadagurinn verður þann 20.desember og hverjum við alla til þess að skella sér á skauta þann dag.
Jólaæfingabúðir eru í undirbúningi og verða auglýstar síðar.






Haustfjáröflun Fjölnis 2026
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
Árleg haustfjáröflun Fjölnis stendur yfir 20. október–2. nóvember. Við hvetjum alla iðkendur og foreldra til að taka þátt, við erum öll #FélagiðOkkar og gefst iðkendum tækifæri til að selja flottar vörur og safna fyrir næstu keppnum og leikjum, styðja sína deild og efla öflugt starf Fjölnis í leiðinni.
60% af hagnaði hverrar vöru rennur til iðkandans, 30% til deildarinnar og 10% til félagsins. Með þátttöku styður iðkandinn því bæði við íþróttaiðkun og öflugt starf Fjölnis.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fjóra söluhæstu iðkendurna og einnig verður dregið úr nöfnum þátttakenda. Meðal vinninga eru félagspeysa eða keppnistreyja frá Icewear, gjafabréf og Fjölnispakkar.
Hér má nálgast sölublað fyrir einstaklinga til að halda betur utan um eigin sölu: Solublad-i-fjaroflun-haust-2026_lokauppfærsla ATH! Í excel skjalinu eru formúlur og mikilvægt er að vista skjalið á tölvu til að geta unnið með það.
Skila þarf sölutölum 2. nóvember og ganga þarf frá greiðslu í síðasta lagi 3. nóvember. Vörurnar verða afhentar fimmtudaginn 5. nóvember kl. 14–18 í Egilshöll. Nánari staðsetning verður auglýst síðar.
Sölutölum er skilað inn í gegnum rafrænt eyðublað, sjá hér: Sölublað iðkenda í fjáröflun Fjölnis 2026 – Fill out form
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á fjaraflanir@fjolnir.is
#FélagiðOkkar #112innaðbeini

Sæktu sölublaðið hér fyrir neðan og vistaðu eintak hjá þér áður til að skrá niður pantanir.
Smelltu hér til að skila inn sölutölum:
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra

Ungmennafélagið Fjölnir, Grafarvogi auglýsir laust til umsóknar spennandi og krefjandi starf framkvæmdastjóra félagsins.
Fjölnir er fjölgreina íþróttafélag með 13 deildum og er félagið eitt fjölmennasta íþróttafélag landsins. Leitað er eftir aðila með framúrskarandi samskiptahæfni, leiðtogafærni og óbilandi áhuga á að byggja upp rótgróið félag með ungmennafélagsandann að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður félagsins í netfanginu formadur@fjolnir.is
Umsóknir berist í gegnum alfred.is. Óskað er eftir að ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn. Sjá nánar hér: www.alfred.is/starf/framkvaemdastjori-fjoelnis
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2026.
Aðrar fréttir af félaginu
Framkvæmdastjóri Fjölnis lætur af störfum
Framkvæmdastjóri Fjölnis lætur af störfum

Í dag, 30. september, lætur Guðmundur G. Sigurbergsson framkvæmdastjóri Fjölnis af störfum eftir tveggja ára starf hjá félaginu.
Guðmundur tók við starfi framkvæmdastjóra á erfiðum tíma fjárhagslega fyrir félagið og hafa fjármál þess því verið í brennidepli undanfarin ár. Stjórn félagsins vill þakka Guðmundi fyrir hans góðu störf og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Stjórn Fjölnis hefur hafið leit að nýjum framkvæmdastjóra en formaður aðalstjórnar mun sinna brýnustu verkefnum uns nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa.
Aðrar fréttir af félaginu
Fréttabréf Listskautadeildar
Fréttabréf Listskautadeildar
Upphaf tímabils
Upphaf tímabilsins hefur gengið vel. Strákanámskeiðið fylltist og gríðarlega gaman að sjá alla þessa stráka á svellinu. Skautasambandið hélt afreksbúðir í ágúst fyrir Basic Novice og upp. Fjölskylduæfing var haldin í september, þar sem foreldrum og systkinum var boðið að taka þátt í æfingu til að fá innsýn í líf skautaranna og vonum við að allir hafi skemmt sér vel þann daginn. Prufuæfingar í nýjum hópi fyrir 25 ára og eldri voru gríðarlega vel sóttar. Búið er að halda foreldrafundi, Skautasambandið er búið að halda dómaranámskeið og allt á fullu.
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir er búin að flytja sig um set og farin að æfa í Salzburg með nýjum partner. Stefna þau að því að keppa fyrir Ungverjaland og óskum við þeim alls hins besta.
Junior Grand Prix
Elín Katla keppti fyrir hönd Íslands á JGP í Bangkok og gekk gríðarlega vel, en þar fékk hún hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið á JGP og vann sér inn rétt til að keppa á heimsmeistaramótinu sem verður haldið í Sofiu í febrúar.
Lesið meira um það hér:
https://www.iceskate.is/2026/09/06/elin-katla-tryggdi-ser-keppnisrett-a-isu-junior-worlds/
Haustmót
Fyrsta ÍSS-mót tímabilsins var að vanda Haustmótið sem haldið var í Egilshöll núna um helgina. Margir voru að keppa með ný prógröm og í nýjum flokkum.
Í félagalínunni 8 ára og yngri kepptu Ásthildur Erna, Hekla Hvönn, Lovísa Ljóney og Sigarr. Í flokknum 10 ára og yngri kepptu Amalía Tía, Hekla Eik, Helga Gunn, Hildur Ósk, Lísa Björg, Rakel Vala og Elía Sif. Í þessum flokkum eru ekki gefin upp stig heldur fá allir þátttökuverðlaun.
Vegna reiknivillu í tölvukerfinu kom í ljós að úrslit í félagalínu voru vitlaust reiknuð. Það var allt endurreiknað og uppfærð úrslit birt á iceskate.is. Ef endurútreikningurinn hafði í för með sér breytt verðlaunasæti verða nýjum verðlaunahöfum færð verðlaun.
Í flokknum 12 ára og yngri kepptu Amelia Júlía, Amelía Lind, Dagný Día, Linda Maria, Margrét Magdalena og Unnur. Þar fékk Linda gullið og Amelía Lind brons.
Í flokknum 14 ára og yngri kepptu Aníta Rós, Antonía Sif, Inga Dís, Lea Elisabeth, Perla Gabriela og Steinunn Embla. Þar fékk Steinunn silfrið. Í 15 ára og eldri keppti Arney Embla og hlaut hún bronsverðlaun. Í 25 ára og eldri keppti Cheryl og fékk brons. Í skautahlaupi keppti Thamar.
Í flokknum Cubs keppti Viktoría en í þeim flokki eru ekki gefin upp stig heldur veitt þátttökuverðlaun. Í Basic Novice fékk Karlína silfur með 33,67 stig, Elisabeth Rós brons með 27,76 stig og Elsa fékk 26,46 stig og endaði með því í 5. sæti.
Í Intermediate Men keppti Marínó Máni og fékk hann gullið með 27,18 stig. Í Intermediate Women fékk Ágústa gull með 28,11 stig, Una brons með 21,15 stig og Arna Björg fékk 18,94 stig og endaði með því í 5. sæti.
Eftir æsispennandi stutt prógramm hjá Advanced Novice, þar sem Arna Dís leiddi, munaði einungis 1,54 stigum á efstu fimm sætunum. Eftir frjálsa prógrammið endaði Arna Dís með silfur með 83,08 stig, Maxime brons með 78,62 stig og Ermenga Sunna fékk 67,46 stig og endaði með því í 5. sæti.
Með þessum frábæra árangri tryggðu allar í Advanced Novice sér sæti í hæfileikamótun landsliðsins. Óskum við öllum keppendum innilega til hamingju með flottan árangur og hlökkum til að fylgjast áfram með þeim.
Einkatímar
Hver skautari er einstakur og tekur framförum á sínum hraða. Í einkatíma fær skautarinn þjálfarann alveg út af fyrir sig. Þá er hægt að einbeita sér að því sem skautarinn er að vinna með akkúrat núna – hvort sem það er stökk, tækni, snúningar, spor eða keppnisprógram.
Stundum þarf bara smá auka athygli, aðra útskýringu eða fleiri endurtekningar. Einkatímar koma ekki í stað hópæfinga heldur eru viðbót sem veitir einstaklingsmiðaðan stuðning, eykur sjálfstraust og hjálpar skautaranum að þróast á sínum forsendum.
Foreldrar eru hvattir til að ræða við þjálfara ef þeir vilja ráðleggingar um hvort einkatímar henti barninu og hvað best væri að vinna með.
Framundan og þakkir
Grunnpróf fara fram í Laugardal 9.–11. október og verða upplýsingar sendar til þeirra sem verður boðið að taka þau. Hægt er að lesa um grunnpróf hér:
https://fjolnir.is/listskautar/grunnprof/
Helgina 29. október–1. nóvember fer alþjóðlega mótið Northern Lights Trophy fram í Laugardal. Við berum öll ábyrgð á því að manna sjálfboðaliðastöður fyrir þetta mót og hvetjum fólk til að skrá sig, en skráning fer fram hér:
https://www.iceskate.is/2026/09/18/vertu-hluti-af-aevintyrinu-ba-part-of-the-magic/
Einnig hvetjum við alla til að mæta, fylgjast með og hvetja skautarana okkar áfram. Aðgangur er ókeypis, skautarar koma alls staðar að til að keppa og verður þetta frábær skemmtun. Nokkrir keppendur eru þjálfarar í Skautaskólanum og gaman verður fyrir yngri iðkendur að fylgjast með þjálfurunum sínum keppa.
Að lokum viljum við þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til á mótinu um helgina! Því miður tókst ekki að manna allar vaktir en til þess að hægt sé að halda mót verðum við öll að vinna saman. Rekstur svona deildar byggir að miklu leyti á sjálfboðaliðastörfum og gengur þetta ekki nema við hjálpumst öll að.






Elín Katla nær lágmörkum fyrir HM unglinga
Elín Katla nær lágmörkum fyrir HM unglinga

Elín Katla Sveinbjörnsdóttir, listskautakona úr Fjölni, hefur náð þeim lágmörkum sem þarf til að vinna sér inn keppnisrétt á heimsmeistaramóti unglinga í listskautum, ISU World Junior Figure Skating Championships.
Elín Katla náði lágmörkunum á sínu fyrsta móti í ISU Junior Grand Prix-mótaröðinni, sem fram fór í Bangkok um síðustu helgi. Þar hafnaði hún í 14. sæti af 38 keppendum og fékk samtals 141,83 stig, 51,10 fyrir stutta prógrammið og 90,73 fyrir frjálsa prógrammið.
Til að ná lágmörkum fyrir HM unglinga þurfa keppendur í flokki Junior Women að ná að minnsta kosti 72,00 tæknistigum. Elín Katla fékk 75,22 stig og náði því tilskildum lágmörkum.
Árangurinn er sérstaklega glæsilegur í ljósi þess að Elín Katla er á sínu fyrsta ári í unglingaflokki og var mótið í Bangkok aðeins annað alþjóðlega mót hennar. Hún er jafnframt aðeins annar íslenski skautarinn í sögunni til að ná lágmörkum fyrir heimsmeistaramót unglinga.
Heimsmeistaramót unglinga fer fram í Sofia í Búlgaríu í febrúar 2027. Fram undan hjá Elínu Kötlu eru fleiri verkefni, meðal annars Northern Lights Trophy í Reykjavík og Norðurlandamótið í Finnlandi.
Við hjá Fjölni óskum Elínu Kötlu innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi keppnistímabili!
Hægt er að horfa á frammistöðu Elínar Kötlu frá mótinu í Bangkok hér:
⛸️ Stutta prógrammið: https://youtu.be/pSVNj-P7ib8
⛸️ Frjálsa prógrammið: https://youtu.be/CAk4T4cBI_g
Aðrar fréttir af deildinni
Fréttabréf Listskautadeildar
26/10/2026
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði
Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði

Ungmennafélagið Fjölnir og Icewear hafa gert með sér samstarfssamning um íþróttafatnað fyrir íþróttagreinar félagsins. Samstarfið tekur til keppnis- og æfingafatnaðar fyrir handbolta, körfubolta og knattspyrnu, auk þjálfara- og félagsfatnaðar fyrir allar deildir félagsins. Samhliða verður unnið að þróun æfinga- og keppnisfatnaðar fyrir frjálsíþróttadeild Fjölnis og æfingarfatnaðar fyrir fimleika- og listskautadeildir.
Með samstarfinu verður Fjölnisfatnaður fáanlegur í nýrri verslun Icewear Sport í Fákafeni, þar sem hægt verður að kaupa fatnað og fá hann merktan. Einnig verður sett upp sérstök Fjölnissíða á heimasíðu Icewear þar sem félagsmenn munu geta kynnt sér úrvalið sem er í boði. Stefnt er að opnun verslunar í seinni part september.
Með samstarfinu er nýtt blað brotið í sögu beggja aðila, en Fjölnir verður hluti af fyrstu íþróttafélögum landsins til að keppa í fatnaði frá Icewear þvert á íþróttagreinar. Við hjá Fjölni erum stolt af því að keppa í fatnaði frá öflugu íslensku vörumerki og mun félagið njóta góðs af sterkri stöðu, reynslu og þekkingu Icewear á uppbyggingu vörumerkja, en þess má geta að Icewear var tilnefnt sem besta íslenska vörumerkið árið 2025.
„Við erum mjög ánægð með að fá Icewear til liðs við Fjölni. Það skiptir okkur miklu máli að félagsmenn hafi gott aðgengi að vönduðum Fjölnisfatnaði og að þjónustan sé einföld og aðgengileg. Við hlökkum til samstarfsins og teljum að það muni nýtast félaginu og okkar stóra hópi iðkenda vel,“ segir Guðmundur G. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.
„Við erum gríðarlega stolt af því að hefja þetta samstarf og fá tækifæri til að vinna með einu af stærstu íþróttafélögum landsins. Það er mikill metnaður hjá báðum aðilum og við erum virkilega spennt fyrir því sem fram undan er. Við lítum á þetta sem upphafið að öflugu og farsælu samstarfi til framtíðar, þar sem við getum lagt okkar af mörkum með vönduðum íþróttafatnaði, góðri þjónustu og öflugri vöruþróun. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í vegferð félagsins og sjá okkar vörur verða hluta af daglegu starfi þess, allt frá yngstu iðkendum upp í afreksfólk“ segir Heiðar Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Icewear.
Fjölnir býður Icewear hjartanlega velkomið í öflugan hóp samstarfsaðila félagsins og hlakkar til samstarfsins.
Elín Katla Sveinbjörnsdóttir valin til keppni á Junior Grand Prix
Elín Katla Sveinbjörnsdóttir valin til keppni á Junior Grand Prix

Listskautakonan Elín Katla Sveinbjörnsdóttir úr Fjölni hefur verið valin til að keppa fyrir hönd Íslands á Junior Grand Prix (JGP) mótaröðinni árið 2026.
Junior Grand Prix er alþjóðleg mótaröð á vegum Alþjóðaskautasambandsins (ISU) þar sem efnilegustu unglingar heims koma saman til keppni. Um er að ræða kvótamót, þar sem hver þjóð fær ákveðinn fjölda keppnisrétta á mótaröðinni út frá árangri fyrri ára.
Stjórn ÍSS, með aðstoð afreksnefndar, hefur valið þá skautara sem munu keppa fyrir Íslands hönd á mótaröðinni í ár. Elín Katla er einn þeirra sem hljóta það verðskuldaða verkefni.
Elín mun keppa á Junior Grand Prix mótinu sem fram fer í Bangkok í Taílandi dagana 3.–5. september.
Við hjá Fjölni óskum Elínu Kötlu innilega til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis í undirbúningi og keppni.
Aðrar fréttir af deildinni
Fréttabréf Listskautadeildar
26/10/2026
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
























