Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Reykjavíkurmótinu 2026

Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Reykjavíkurmótinu 2026

Reykjavíkurmót TSÍ 2026 fór fram dagana 11.–17. maí í einstaklingskeppni og 18.–28. maí í liðakeppni. Keppendur tennisdeildar Fjölnis náðu frábærum árangri á mótinu og unnu til fjölda verðlauna bæði í einstaklings- og liðakeppni.

Daniel og Eygló leiða Fjölni til sigurs í meistaraflokki

Stærsti árangur mótsins fyrir tennisdeild Fjölnis kom í liðakeppni meistaraflokks, þar sem Daniel Pozo og Eygló Dís Ármannsdóttir tryggðu Fjölni Reykjavíkurmeistaratitilinn.

Fjölnir hóf keppnina með sannfærandi 3–0 sigri á Víkingi. Daniel og Eygló lögðu grunninn að sigrinum með sigri í tvíliðaleiknum áður en einliðaleikirnir fóru fram. Eygló fylgdi því eftir með öruggum 7–5, 6–0 sigri á Jirí Geci og kom Fjölni í 2–0. Það var síðan Daniel sem innsiglaði sigurinn með sterkri frammistöðu gegn Raj Kumar Bonifacius þar sem hann hafði betur 3–6, 6–1, 10–4 og tryggði Fjölni þar með 3–0 sigur í einvíginu.

Í viðureigninni gegn HMR vann Daniel síðan Antoine Nicolas Giraud sannfærandi 6–2, 6–0. Þrátt fyrir naumt tap Eyglóar í spennandi leik tryggði sigur Fjölnis í tvíliðaleiknum liðinu 2–1 sigur og þar með Reykjavíkurmeistaratitilinn.

Sigurinn var sérstaklega glæsilegur þar sem þetta var í fyrsta sinn sem Daniel og Eygló léku saman fyrir hönd Fjölnis í þessum flokki. Enn athyglisverðara var að Eygló var eina konan sem tók þátt í þessum flokki, þar sem önnur lið tefldu eingöngu fram karlkyns leikmönnum.

Árangurinn undirstrikar ekki aðeins styrk Daniels og Eyglóar sem leikmanna, heldur einnig þá öflugu uppbyggingu sem átt hefur sér stað innan kvennastarfs tennisdeildar Fjölnis undanfarin ár. Að tefla fram blönduðu liði í meistaraflokki og standa uppi sem Reykjavíkurmeistarar er sterkt merki um gæði og breidd félagsins.

Sterkur árangur í einstaklingskeppni

Í meistaraflokki karla í einliðaleik tryggði Daniel Pozo sér Reykjavíkurmeistaratitilinn eftir sannfærandi sigur á Franko Juric í úrslitaleik, 6–2, 6–2.

Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði Daniel einnig unnið Jirí Geci úr Víkingi örugglega 6–1, 6–0 í undanúrslitum. Reykjavíkurmeistaratitillinn er sá fyrsti hjá Daniel í meistaraflokki karla og staðfestir enn frekar þá miklu þróun sem hann hefur sýnt á undanförnum árum.

Í meistaraflokki kvenna í einliðaleik stóð Paula Marie Moreno Monsalve einnig uppi sem Reykjavíkurmeistari eftir sigur á Yilun He, 6–1, 6–3, í úrslitaleiknum.

Reykjavíkurmeistarar í fleiri flokkum

Fjölnir fagnaði einnig Reykjavíkurmeistaratitli í U18 liðakeppni þar sem Paula Marie Moreno Monsalve, Juan Pablo Moreno Monsalve og Bjartur Hálfdánsson skipuðu sigurliðið.

Liðið átti afar sannfærandi mót, vann öll sín liðaeinvígi og tapaði ekki einum einasta einstaklingsleik á leið sinni að Reykjavíkurmeistaratitlinum. Fjölnir lagði bæði HMR og Víking 3–0 og sýndi þar styrk sinn og breidd í yngri flokkum félagsins.

Í 30+ flokki urðu Inga Eiríksdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Ása Björg Guðlaugsdóttir einnig Reykjavíkurmeistarar eftir frábæra frammistöðu fyrir hönd félagsins.

Í 40+ karla flokki hafnaði lið Fjölnis jafnframt í 2. sæti eftir sterka frammistöðu gegn HMR og Víking.

Öflug breidd í röðum Fjölnis

Reykjavíkurmótið 2026 sýndi glöggt þá breidd sem hefur byggst upp innan tennisdeildar Fjölnis á síðustu árum. Frá yngri flokkum upp í meistaraflokk og öldungaflokka náðu leikmenn félagsins framúrskarandi árangri og tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitla í mörgum flokkum.

Árangurinn á mótinu er enn ein staðfestingin á því öfluga starfi sem unnið er innan tennisdeildar Fjölnis og lofar góðu fyrir komandi verkefni sumarsins.

Tennisdeild Fjölnis óskar öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur á Reykjavíkurmótinu 2026!


Fjölnir og Aldan sameinast um öflugt samstarf í Grafarvogi

Fjölnir og Aldan sameinast um öflugt samstarf í Grafarvogi


Ölgerðin áfram í öflugu samstarfi við Ungmennafélagið Fjölnir

Ölgerðin áfram í öflugu samstarfi við Ungmennafélagið Fjölnir


Aðalfundur Fjölnis 2026: Jákvæð rekstrarstaða og heiðursviðurkenningar til sjálfboðaliða

Aðalfundur Fjölnis 2026: Jákvæð rekstrarstaða og heiðursviðurkenningar til sjálfboðaliða

Aðalfundur Fjölnis fór fram sl. þriðjudag 28. apríl, í Miðjunni, félagsrými Fjölnis í Egilshöll.

Formaður aðalstjórnar fór yfir það helsta í starfi félagsins á árinu 2025 og framkvæmdastjóri kynnti ársreikning þess. Annað árið í röð er hagnaður af rekstri og því óhætt að segja að bjartar horfur eru í fjármálum félagsins. Félagið í heild skilaði 40,9 m.kr. rekstrarafgangi á árinu 2025 samanborið við 6,3 m.kr. afgang á árinu 2024.

Árskýrslu félagsins má sjá hér.

Aðalstjórn lagði fram breytingar á lögum félagsins. Nokkur umræða skapaðist um ýmis ákvæði laganna en framlagðar breytingatillögur voru að mestu samþykktar. Nýsamþykkt lög félagsins verða birt hér á vefsíðunni þegar þau taka gildi með staðfestingu stjórnar ÍBR og framkvæmdastjórar ÍSÍ.

Líkt og venjan er á aðalfundi félagsins voru veittar heiðursviðurkenningar fyrir óeigingjarnt starf sjálfboðaliða fyrir félagið. Heiðursviðurkenningar hlutu:

Silfurmerki:

  1. Sigurður Einar Guðbrandsson (knattspyrnudeild)
  2. Sigríður Sigurðardóttir (tennisdeild)
  3. Alana Elín Steinarsdóttir (tennisdeild)
  4. Kristín Fossdal (íshokkídeild)
  5. Hafdís Baldursdóttir (íshokkídeild)
  6. Arnar B. Sigurðsson (körfuknattleiksdeild)

Sjá aðra silfurmerkishafa hér

Gullmerki:

  1. Þorsteinn Yngvi Guðmundsson (karatedeild)
  2. Róbert Línberg Runólfsson (handknattleiksdeild)
  3. Halldór Torfi Pedersen (handknattleiksdeild)
  4. Magnús Þór Arnarson (handknattleiksdeild)
  5. Rakel Hákonardóttir (listskautadeild)
  6. Sveinn Þorgeirsson (handknattleiksdeild)
  7. Gunnar Jónatansson (aðalstjórn)
  8. Bogi Nils Bogason (aðalstjórn)

Sjá aðra gullmerkishafa hér

Ný stjórn var kjörin líkt og lög gera ráð fyrir. Nýr í aðalstjórn er Eyþór Jónsson en Gunnar Bjarnason og Inga Björk Guðmundsdóttir fengu áframhaldandi kosningu í aðalstjórn. Bjarni Sigurðsson og Guðlaugu Björk Karlsdóttir gáfu ekki kost á sér sem áframhaldandi varamenn en í stað þeirra koma inn Álfheiður Sif Jónasdóttir og Sigurður Einar Guðbrandsson. Þá var Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir endurkjörin sem formaður aðalstjórnar.

Sjá upplýsingar um aðalstjórnstjórn hér.

Ávarp flutti Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ og afhenti Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur, formanni Fjölnis, gullmerki UMFÍ.


Ungur Íslandsmeistari í uppsiglingu – Hera Dröfn Guðmundsdóttir skarar fram úr

Ungur Íslandsmeistari í uppsiglingu – Hera Dröfn Guðmundsdóttir skarar fram úr

Ungir og efnilegir leikmenn halda áfram að láta til sín taka innan tennisdeildar Fjölnis og þar er Hera Dröfn Guðmundsdóttir meðal þeirra sem hafa vakið sérstaka athygli. Hera, sem er aðeins tíu ára gömul, varð nýverið Íslandsmeistari í U12 stúlknaflokki og hefur á stuttum tíma sýnt framúrskarandi framfarir.

Tennis hluti af fjölskyldulífinu

Svava Tyrfingsdóttir, móðir Heru segir að tennis hafi komið snemma inn í hennar eigið líf:
„Pabbi minn byrjaði að spila tennis og ég fylgdi í kjölfarið. Þetta hefur alltaf verið hluti af lífinu, þó maður hafi kannski ekki verið að spila stöðugt allan tímann.“

Þegar kom að Heru segir Svava að áhuginn þróaðist á náttúrulegan hátt:
„Hún var fyrst í fimleikum og við höfum alltaf haft þá reglu að börnin prófi fleiri en eina íþrótt. Það er nefninlega svo mikil orka í þeim. Svo fórum við bara að spila saman og henni fannst það skemmtilegt og þá þróaðist þetta bara þaðan.“

Náttúrulegur hæfileiki og sterkt hugarfar

„Hún er bara íþróttakona í grunninn og er góð í öllum íþróttum sem hún tekur sér fyrir hendur,“ segir Svava.

Hún bætir við að Hera eigi auðvelt með að tileinka sér leiðbeiningar þjálfara og nýta þær í leik sínum. Það sést vel í leik hennar að hún treystir eigin getu og vinnur markvisst eftir því sem hún lærir.

Slíkt hugarfar, þar sem leikmaður hlustar, tileinkar sér og framkvæmir, er lykilatriði í tennis og útskýrir að miklu leyti þær framfarir sem Hera hefur sýnt á skömmum tíma.

Stöðug leiðsögn og sterk tenging

Hera hefur frá upphafi æft undir leiðsögn Irku Cacicedo Jaroszynska, tennisþjálfara Fjölnis sem tekur mikið að sér börn sem eru að taka sín fyrstu skref í íþóttinni. Irka hefur fylgt Heru í gegnum hennar fyrstu skref í tennis og áframhaldandi þróun. Slíkur stöðugleiki í þjálfun skiptir miklu máli, sérstaklega á mótunarárum leikmanna.

Undir leiðsögn Irku hefur Hera byggt upp sterkan grunn, bæði tæknilega og andlega, sem hefur án efa átt stóran þátt í þeim árangri sem hún hefur náð á stuttum tíma.

Íslandsmeistari með ró og yfirvegun

„Við skráðum hana bara nokkrum dögum fyrir mót og hún mætti einfaldlega með góða skapið og gott hugarfar. Hún var ekki mikið að hugsa um mótherja eða pressu, bara mæta og gera sitt besta. Að geta, tíu ára gömul, mætt á tennisvöll og verið ein með sjálfri sér og haldið einbeitingu í gegnum allt mótið — það er ótrúlegt,“ segir Svava.

Það sem stendur upp úr er ekki aðeins titillinn sjálfur, heldur hvernig Hera nær honum. Í leik hennar má sjá sjálfstraust og leikgleði, en einnig ákveðni, ró og einbeitingu; eiginleika sem eru oft það sem skilur á milli góðra leikmanna og þeirra bestu.

„Mér finnst skemmtilegast að dúndra boltanum“

Þegar Hera er spurð hvað henni finnist skemmtilegast við tennis stendur svarið ekki á sér:

„Að dúndra boltanum.“

Svarið endurspeglast í leik hennar. Hún sækir fram á vellinum, treystir á styrk sinn og nýtur þess að taka stjórn á stigum. Uppáhaldshöggið hennar er forhöndin, þar sem hún fær að láta vaða, en hún hefur einnig gaman af því að klára stig með kraftmiklum smössum við netið.

Líf utan tennisvallarins

Fyrir utan tennis er Hera fyrst og fremst tíu ára stelpa með fjölbreytt áhugamál. Hún spilar einnig fótbolta og nýtur þess að verja tíma með vinkonum sínum. Hera stundar einnig nám við Salaskóla þar sem uppáhaldsfögin hennar eru íþróttir og smíði.

Þegar kemur að uppáhalds mat er Hera með það á hreinu:

„Sushi og steik,“ segir hún ákveðin og uppáhalds litirnir eru blár og bleikur.

Þessi jafnvægi milli íþrótta, skóla og félagslífs er mikilvægur þáttur í hennar daglega lífi.

Íþróttafjölskylda

Í fjölskyldunni er einnig yngri systir Heru, Kolbrún, 5 ára, sem hefur þegar sýnt áhuga á íþróttum. Hún leikur sér gjarnan með tennisspaða og bolta þegar hún er í kringum æfingar og fylgist spennt með.

Björt framtíð framundan

Það sem gerir Heru sérstaklega athyglisverða er samspil hæfileika og hugarfars. Hera er klárlega með eiginleika sem eru lykilatriði í einstaklingsíþrótt þar sem leikmaðurinn stendur einn með sjálfum sér. Að geta tekist á við keppni með slíkri yfirvegun er ekki sjálfgefið. Það er merki um sterkan grunn sem getur borið hana langt. Með áframhaldandi þróun er ljóst að hér er á ferðinni leikmaður sem vert er að fylgjast vel með á komandi árum.

Árangur Heru endurspeglar jafnframt það öfluga starf sem unnið er með unga leikmenn innan tennisdeildar Fjölnis. Hann sýnir að markviss uppbygging og gott umhverfi getur skilað sterkum leikmönnum frá ungum aldri og vonandi verður árangur hennar til þess að hvetja fleiri unga leikmenn til að stíga sín fyrstu skref og taka þátt í starfi deildarinnar.

Tennisdeild Fjölnis fylgist spennt með Heru og við hlökkum til að sjá hvað framtíðin hefur upp á að bjóða!


Aðalfundur Fjölnis

Aðalfundur Fjölnis

Aðalfundur Fjölnis verður haldinn 28 apríl n.k. í félagsaðstöðu félagsins í Egilshöll og hefst kl. 17.30.

Dagskrá er samkvæmt lögum félagsins:

a) Skýrsla stjórnar
b) Reikningar félagsins
c) Lagabreytingar
d) Kjör formanns
e) Kjör stjórnarmanna
f) Kjör skoðunarmanna reikninga
g) Ákvörðun félagsgjalda
h) Önnur mál

Kosningar:

a) kosning formanns til eins árs,
b) kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára,
c) kosning tveggja manna í varastjórn til eins árs.

Tilkynningar um framboð skulu berast skrifstofu félagsins á netfangið gudmundur@fjolnir.is minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund.

Lagabreytingar:

Tillögur til breytinga á lögum félagsins, undirritaðar af flutningsmönnum, skulu  berast skrifstofu félagsins á netfangið gudmundur@fjolnir.is minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund.


Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára

Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára

Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára – áhugasviðskönnun

Búið er að opna fyrir umsóknir fyrir vinnuskólann sumarið 2026

 

Skref 1 – Sækja um hjá vinnuskólanum 

Skref 2 – Fylla út áhugasviðskönnun fyrir Fjölni

Athugið að þessi könnun er áhugasviðskönnun og er í rauninni ekki umsókn um vinnu en viðauki fyrir okkur til þess að vinna með. 

Öllum umsóknum verður svarað.
Við bjóðum upp á fjölbreytt störf fyrir 15-16 ára. Í boði er að vinna á sumarnámskeiðum deilda,  fjölgreinanámskeiði félagsins og leikjanámskeiði.

  • Fyrir umsækjendur á aldrinum 15-16 ára (2011-2010)
  • Umsækjendur þurfa að vera með lögheimili í Reykjavík.

 

Umsækjendur geta hakað við það starf sem þeir óska eftir, það er í boði að velja fleiri en eitt starf, t.d. að starfa á knattspyrnu- og listskautanámskeiðum.
Vinnutímabil fyrir 15-16 ára fer eftir nánara samkomulagi þegar ráðning liggur fyrir. Laun eru greidd út samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjölnis á sumarnamskeid@fjolnir.is.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl!

Athugið að það er frekar mikilvægt að umsækendur geti verið að mestu við vinnu á tímabilinu 8. júní – 10. júlí og 10. – 15. ágúst   

Drög að dagskrá sumarsins :

  • 15. – 12. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
  • 22. – 26. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
  • 29. júní – 3. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
  • 6. – 10. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
  • 10. – 14. ágúst – Sumarnámskeið Deilda og Fjölgreinanámskeið Egilshöll


Tímamót hjá tennisdeild Fjölnis: Daniel Pozo fyrstur til að skrifa undir

Tímamót hjá tennisdeild Fjölnis: Daniel Pozo fyrstur til að skrifa undir

Daniel Pozo hefur skrifað undir samning við tennisdeild Fjölnis og verður þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að gera slíkan samning. Um er að ræða stórt skref fyrir félagið, en um leið verðskuldaða viðurkenningu á þeim árangri og þeirri framþróun sem Daniel hefur sýnt á undanförnum árum. Daniel er fæddur árið 2009 og hefur verið hluti af prógrammi tennisdeildar Fjölnis frá átta ára aldri.

Daniel hefur markvisst unnið sig upp sem einn af efnilegustu leikmönnum landsins. Með stöðugum framförum, sterkri keppnishugsun og skýrum metnaði hefur hann sýnt að hann býr yfir þeim eiginleikum sem þarf til að ná langt í íþróttinni. Hann hefur jafnframt náð alþjóðlegri stöðu á styrkleikalistum ITF og UTR og er sá leikmaður úr röðum tennisdeildar Fjölnis sem hefur náð hæstum styrkleika á þeim listum til þessa.

Framlag hans til tennisdeildar Fjölnis nær þó langt út fyrir úrslit og árangur á vellinum. Daniel hefur verið skýr fyrirmynd innan deildarinnar, sýnt fagmennsku í hvívetna og lagt mikla áherslu á aga, vinnusemi og jákvætt hugarfar. Viðhorf hans og framkoma hafa haft jákvæð áhrif á liðsfélaga og umhverfið í kringum deildina. Ungir leikmenn líta upp til hans og hefur hann verið frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn sem eru bæði að stíga sín fyrstu skref og vinna sig upp innan deildarinnar.

Þróun hans sem leikmanns og einstaklings hefur farið hönd í hönd, þar sem hann hefur þroskast jafnt innan vallar sem utan. Slík samsetning hæfileika, metnaðar og karaktereinkenna er lykilþáttur í uppbyggingu sterkra íþróttamanna.

Samningurinn markar upphaf nýs kafla, bæði fyrir Daniel og tennisdeild Fjölnis, þar sem horft er til áframhaldandi framfara, aukinnar fagmennsku og enn meiri árangurs í framtíðinni, með það að markmiði að styðja enn frekar við þróun hans og skapa tækifæri til frekari afreka.

Carola Frank, yfirþjálfari tennisdeildar Fjölnis segir að miklar væntingar séu bundnar við framtíð Daniels og að félagið hafi fulla trú á getu hans:
„Við trúum því að með réttum stuðningi geti Daniel orðið einn af sterkustu tennisleikmönnum, ekki aðeins í sögu Fjölnis, heldur einnig á landsvísu og jafnvel á alþjóðlegum vettvangi. Hann er afar metnaðarfullur leikmaður sem vinnur markvisst að eigin framförum og hefur sýnt bæði þroska og fagmennsku í sínu starfi. Við teljum að hann falli mjög vel að þeirri stefnu sem við viljum byggja upp innan deildarinnar og hlökkum til að fylgjast með honum taka næstu skref á sínum ferli.“

Tennisdeild Fjölnis óskar Daniel Pozo innilega til hamingju með samninginn og þessum mikilvægu tímamótum fyrir félagið!


Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ innanhúss 2026

Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ innanhúss 2026

Dagana 18.–22. mars fór fram Íslandsmót TSÍ innanhúss í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppendur frá tennisdeild Fjölnis stóðu sig afar vel og unnu til fjölda verðlauna í ólíkum aldurs- og keppnisflokkum. Árangurinn er skýr vitnisburður um öflugt og metnaðarfullt starf deildarinnar.

Ungur leikmaður lætur til sín taka

Daniel Pozo, sem hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum og vakið verðskuldaða athygli, hafnaði í 3. sæti í meistaraflokki karla í einliðaleik eftir spennandi viðureign við Ómar Pál Jónasson (5–4, 2–4, 10–8). Hann bætti jafnframt við sig 3. sæti í U18 pilta einliða.

Framúrskarandi árangur í yngri flokkum

Systkinin Paula Marie og Juan Pablo Moreno Monsalve náðu góðum árangri. Paula tryggði sér 3. sæti í U14 stúlkna einliða og 2. sæti í U16 stúlkna einliða, á meðan Juan hafnaði í 2. sæti í U16 pilta einliða.

Í U12 stúlkna einliða sigraði hin aðeins 10 ára Hera Dröfn Guðmundsdóttir og varð þar með Íslandsmeistari í sínum flokki.

Í U18 stúlkna einliða stóð Saule Zukauskaite uppi sem sigurvegari og hlaut Íslandsmeistaratitil, en Íva Jovisic vann til silfurverðlauna. Þær Saule og Íva unnu einnig saman tvíliðaleik í U18 flokki og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitil.

Árangur í 30+ flokkum

Ása Björg Guðlaugsdóttir hafnaði í 2. sæti í 30+ kvenna einliða.

Irka Cacicedo Jaroszynska og Sigríður Sigurðardóttir unnu til gullverðlauna í 30+ kvenna tvíliða og urðu Íslandsmeistarar í þeim flokki.

Í 30+ karla tvíliða náðu Joaquin Armesto Nuevo og Hrólfur Sigurðsson 2. sæti.

Árangur í 50+ flokkum

Í 50+ karla einliða tryggði Ólafur Helgi Jónsson sér 2. sæti og Hrólfur Sigurðsson hafnaði í 3. sæti.

Þessi glæsilegi árangur endurspeglar metnaðarfullt og faglegt starf tennisdeildar Fjölnis og lofar góðu fyrir áframhaldandi uppbyggingu og framtíð deildarinnar.

Innilega til hamingju með frábæran árangur!


Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára

Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára

Við höfum opnað fyrir umsóknir í sumarstörf Fjölnis 2026. Öllum umsóknum verður svarað.

Við bjóðum upp á fjölbreytt störf fyrir 17-25 ára. Í boði er að vinna á sumarnámskeiðum deilda,  fjölgreinanámskeiði félagsins og leikjanámskeiði.

  • Fyrir umsækjendur á aldrinum 17-25 ára
  • Umsækjendur þurfa að vera með lögheimili í Reykjavík.
  • Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.

Umsækjendur geta hakað við það starf sem þeir óska eftir, það er í boði að velja fleiri en eitt starf, t.d. að starfa á knattspyrnu- og listskautanámskeiðum.
Vinnutímabil fyrir 17-25 ára fer eftir nánara samkomulagi þegar ráðning liggur fyrir. Laun eru greidd út samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjölnis á sumarnamskeid@fjolnir.is.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl!

Athugið að það er frekar mikilvægt að umsækendur geti verið að mestu við vinnu á tímabilinu 8. júní – 10. júlí og 10. – 15. ágúst   

Drög að dagskrá sumarsins :

  • 15. – 12. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
  • 22. – 26. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
  • 29. júní – 3. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
  • 6. – 10. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
  • 10. – 14. ágúst – Sumarnámskeið Deilda og Fjölgreinanámskeið Egilshöll

Sækja um með því að smella hér


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »