Opinn hópur


Opni hóurinn er hópur fyrir iðkendur sem hafa náð ákveðinni færni í íþróttinni en eru ekki að stefna að því að keppa. Hann hét áður Mohaws. Iðkendur þurfa að hafa góð tök á öllum einföldum stökkum og eru að vinna í Axel og tvöföldum stökkum. Iðkendur þurfa að hafa lokið öllum stigum í Skautum Regnbogann og hafa lokið ákveðnum grunnprófum. Markmið þessa hóps er að viðhalda kunnáttu sinni ásamt því að halda áfram að æfa nýjar æfingar. Hægt er að velja um að æfa 1x-3x sinnum í viku.

Ekki eru sérstakar æfingar fyrir þennan hóp, heldur er æft með öðrum hópum. Hver og einn semur um æfingatíma við þjálfara í gegnum listyfirthjalfari@fjolnir.is upplýsingar um verð einnig í gegnum listyfirthjalfari@fjolnir.is

Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Benjamin Naggiar

Yfirþjálfari

Sólbrún Erna Víkingsdóttir

Þjálfari

Æfingagjöld listskautadeildar má finna hér.

Æfingar

Æfingar fara fram á svelli og einnig er afís. Á afís er markmiðið að bæta þol, styrkleika og liðleika. Einnig er unnið með listfengi með danskennslu einu sinni í viku. Til að ná framförum er nauðsynlegt að mæta á æfingar bæði á afís og svelli.

Áhersla er lögð á grunnskautun ásamt því að læra grunn snúningsstöður og einföld stökk. Lagt er upp með að styrkja innri metnað gagnvart íþróttaiðkuninni sem leiðir til meiri aga, skuldbindingar og betri árangurs í því sem iðkendur taka sér fyrir hendur.

Æfingafatnaður

Á æfingum eiga skautarar að vera í hlýjum og teygjanlegum fatnaði, t.d. flísbuxum og flíspeysu og vera í fingravettlingum. Ekki má mæta í víðum fatnaði með löngum reimum, hettupeysum né með trefil. Á afís á að vera í íþróttafötum og strigaskóm.

Æfingar utan hefðbundinna æfingatíma

Boðið er upp á sumarbúðir í júní og ágúst en einnig er boðið upp á æfingar milli jóla og nýárs. Auk þjálfara deildarinnar þá mæta gestaþjálfarar í júníbúðirnar. Mikilvægt er að iðkendur mæti í sumarbúðir en á þessum tíma er unnið að bæta grunnskautun og tækni. Þar sem æfingar eru allan daginn taka iðkendur miklum framförum á þessum tíma. Ef iðkandi tekur frí allt sumarið er líklegt að hann hafi misst niður tækni sem getur tekið nokkrar vikur að vinna upp aftur að hausti.

Mót

Iðkendur byrja að hefja undirbúning fyrir mót ef þeir hafa þá skautanælu sem til þarf fyrir þann keppnishóp sem þeir tilheyra (frekari upplýsingar um mót má finna hér).

Foreldrastarf

Foreldrum er úthlutað verkefni á að minnsta kosti einum viðburði deildarinnar yfir veturinn.

  • Axel Örn Sæmundsson
  • Þrymill Þursi Arason
  • Guðfastur Brjánn Pétursson

Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér