Fjölnismenn í 3.sæti
Skákdeild Fjölnis virðist föst í viðjum vanans og sogast að bronsinu þegar dregur að lokum 1. deildar undanfarin ár. Fjórða árið í röð náði skáksveitin 3. sæti sem gefur rétt á þátttöku á EM skákfélaga í Svartfjallalandi í haust.
A sveitin var í baráttu um Íslandsméistaratitilinn allt Íslandsmótið. Vermdi 1. sætið eftir fyrri hlutann og endaði í því þriðja með 50 vinninga af 72 mögulegum, 3 vinningum minna en sigurliðið.
Sem fyrr býr liðstjórinn við þau forréttindi að geta stólað á sömu átta skákmennina á að tefla allar skákirnar. Þetta gagnast okkar ágætu mótherjum líka. Þeir geta þá stúderað andstæðinginn þegar komið er að því að mæta Fjölni. Ekkert pukur eða óþolandi óvissa þar að hálfu Fjölnis. Eins og áður sagði hefur A sveitin aldrei náð eins góðum árangri og einmitt núna. Eftirspurnin er meiri en framboðið á að tefla í A sveitinni. Þetta á ekki síst við okkar ágætu erlendu félaga sem óðir og uppvægir vilja eyða helgi í hópi Fjölnismanna. Þeir sýna það og sanna með góðri og árangursríkri taflmennsku þegar tækifærið býðst þeim. Vinningshlutfall 70 % er hærra en hægt var að búast við í upphafi móts. Samstaða og liðsandi er hins vegar 100 % frá fyrsta borði til þess áttunda.
Það var ánægjulegur bónus fyrir okkar sveit að Davíð Kjartansson, einn af okkar lykilmönnum, skyldi ná lokaáfanga að IM titli.
Dagur Ragnarsson (21) heldur áfram að sýna gífurlegar framfarir líkt og á öllum mótum vetrarins, framtíðarmaður í hugum okkar íslenskra skákáhugamanna. Svíinn Pontus Carlsson tefldi með Fjölni í öllum umferðum og skilaði 7 vinningum í hús sem er frábær árangur á 2. borði. Davíð, Dagur og Sigurbjörn náðu allir 6,5 vinningum og sá síðastnefndi með 87,5 % árangur í síðari lotunni gegn erfiðari andstæðingum en í þeirri fyrri.
Árangur A sveitar Fjölnis í 1. deildinni og draumsýn okkar um Íslandsbikarinn í Grafarvoginn í nánustu framtíð gæti orðið að veruleika.
B sveit Fjölnis skráði árangur sinn einnig á spjöld Fjölnis "sögunnar". B sveitin hélt sæti sínu í 2. deild í fyrsta sinn og teflir á næstu leiktíð í þriðja skipti á fjórum árum í deildinni. Með þá Tómas Björnsson, Jón Árna Halldórsson (3/3) og Erling Þorsteinsson á efstu borðum fá uppalin Fjölnisungmenni tækifæri á að tefla við sterka andstæðinga í hverri umferð og kunna eflaust gott að meta. Jóhann Arnar Finnsson yngsti liðsmaður sveitarinnar kom taplaus frá mótinu og fékk 5 vinninga af 7 sem er mjög góður árangur.
C- og ungmennasveit Fjölnis tefldu í 4. deild. Þær eru að mestu skipaðar áhugasömum grunnskólakrökkum úr Grafarvogi. Arnór Gunnlaugsson í 8. bekk Rimaskóla stóð sig adeilis vel. Hann tefldi 6 skákir með C sveit og vann þær allar.
Síðast en ekki síst ber að nefna árangur hinnar 6 ára gömlu Emilíu Emblu B. Berglindardóttur sem tefldi sínar tvær fyrstu skákir á Íslandsmóti skákfélaga og stimplaði sig rækilega inn með öruggum sigri í báðum skákunum. Þessi kornunga Rimaskólastúlka hefur vakið athygli á grunnskólamótum vetrarins fyrir þroskaða taflmennsku og kemur sér upp stöðu "sem hver stórmeistari gæti verið stoltur af" eins og einn af framámönnum í skáklífinu orðaði það eftir að hafa fylgst með stúlkunni ungu.
11 hlauparar frá Fjölni í Tokyo
Fimm Fjölnismenn luku 6 stóru maraþonunum (six stars) í Tokyo sunnudaginn 3. mars.
Þau eru: Ingibjörg Kjartansdóttir, Aðalsteinn Snorrason, Lilja Björk Ólafsdóttir, Karl Jón Hirst og Magnús Þór Jónsson.
Auk þeirra voru í hlaupinu Fjölnismennirnir: Guðrún Kolbrún Otterstedt, Eyjólfur Ingi Hilmarsson, Guðrún Axelsdóttir, Ingólfur Geir Gissurarson, Margrét Björk Svavarsdóttir og Guðmundur Magni Þorsteinsson en þau eru öll að klára six stars á næstu misserum.
Six stars maraþonin eru: New York maraþon, Chicago maraþon, Boston maraþon, London maraþon, Berlínar maraþon og Tokyo maraþon. Áður en Tokyo maraþon bættist við fyrir nokkrum árum voru hin maraþonin skilgreind sem fimm stærstu maraþon í heiminum.
Myndir: Erla Björg Jóhannsdóttir
Flottur árangur Fjölnishlaupara í Seville og Tókýó maraþoni
Skokkhópur Fjölnis hefur æft vel í vetur og má með sanni segja að þær æfingar séu að skila sér. Þann 17. febrúar síðastliðinn hlupu Angel Martin Bernál og Gunnar Stefánsson Seville maraþonið á Spáni og náðu þar flottum árangri. Tími Gunnars var 3:09,25 en Angel lauk hlaupinu á 3:42,11.
Þá luku fimm meðlimir úr hópnum 6 stóru maraþonunum (six stars) í Tokyo maraþoninu sunnudaginn 3. mars. Þau eru: Ingibjörg Kjartansdóttir, Aðalsteinn Snorrason, Lilja Björk Ólafsdóttir, Karl Jón Hirst og Magnús Þór Jónsson. Auk þeirra voru í hlaupinu Fjölnismennirnir: Guðrún Kolbrún Otterstedt, Eyjólfur Ingi Hilmarsson, Guðrún Axelsdóttir, Ingólfur Geir Gissurarson, Margrét Björk Svavarsdóttir og Guðmundur Magni Þorsteinsson en þau eru öll að klára six stars á næstu misserum. Six stars maraþonin eru: New York maraþon, Chicago maraþon, Boston maraþon, London maraþon, Berlínar maraþon og Tokyo maraþon. Áður en Tokyo maraþon bættist við fyrir nokkrum árum voru hin maraþonin skilgreind sem fimm stærstu maraþon í heiminum.
Tímar okkar fólks í Tókýó maraþoninu:
Ingólfur Geir Gissurarson 3:43,32
Karl Jón Hirst 3:44,19
Ingibjörg Kjartansdóttir 3:44,18
Magnús Þór Jónsson 3:49,22
Guðrún Axelsdóttir 3:53,16
Guðrún Kolbrún Otterstedt 3:55,02
Eyjólfur Ingi Hilmarsson 3:55,14
Lilja Björk Ólafsdóttir 4:29,47
Margrét Svavarsdóttir 4:51,34
Guðmundur Magni Þorsteinsson 4:49,27
Aðalsteinn Snorrason 5:57,10
Óskum við hlaupurunum öllum innilega til hamingju með árangurinn.
Myndirnar þrjár frá Tókýó eru teknar af Erlu Björg Jóhannsdóttur en myndin af Gunnari og Angel í Seville er af fésbókarsíðu Angel.
Bikar 15 ára og yngri
Bikarkeppni FRÍ fyrir 15 ára og yngri fór fram sunnudaginn 3. mars í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika. Fjölnir sendi sameiginlegt lið með Aftureldingu og var eitt strákalið og tvö stelpulið. Í heildina varð Fjölnir A í 7. sæti og Fjölnir B í 9. sæti. Af strákaliðunum varð Fjölnir A í 7. sæti og af stelpuliðunum varð Fjölnir A í 5. sæti og Fjölnir B í 9. sæti. Var lið Fjölnis skipað ungu og efnilegu íþróttafólki sem lagði sig virkilega fram, en sumir voru að keppa í fyrsta skipti. Voru margir að setja persónuleg met í sínum greinum.
Öll úrslit mótsins er hér.
Úrslit í stigastöðunni er hér.
Fjölnir í 4. sæti
Bikarkeppni FRÍ fór fram í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika laugardaginn 2. mars. Fjölnir sendi sameiginlegt lið með Aftureldingu á mótið. Í heildina varð liðið í 4. sæti en 9 lið tóku þátt í keppninni. Í karla og kveppakeppninni varð liðið einnig í 4. sæti. Er það sannarlega góður árangur.
Daði Arnarson náði 2. sæti í 1500m hlaupi og Bjarni Anton Theódórsson náði 3. sæti í 400m hlaupi.
Vilhelmína Þór Óskarsdóttir náði 3. sæti í 400m hlaupi og Helga Þóra Sigurjónsdóttir náði 3. sæti í hástökki.
Öll úrslit mótsins eru hér.
Hér má sjá stigastöðuna.
Úrslit Reykjavíkurmótsins 2019
Reykjavíkurmótið var haldið í Egilshöll nú um helgina. Mótið gekk vel fyrir sig og það var ánægjuleg viðbót að iðkendur Asparinnar tóku þátt á þessu móti. Á laugardeginum kepptu keppnishópar félaganna en á sunnudeginum kepptu keppnisflokkar Skautasambandsins ásamt SO Level I og II.
Úrslit mótsins voru:
Keppnishópar félaganna:
12 ára og yngri
- Thelma Rós Gísladóttir SR
- Rakel Kara Hauksdóttir SR
- Þórunn Gabríela Rodriguez SR
15 ára og yngri
- Amanda Sigurðardóttir SR
- Sandra Hlín Björnsdóttir Fjölnir
- Bryndís Bjarkadóttir SR
17 ára og yngri
- Kolbrún Klara Lárusdóttir Fjölnir
- Birta María Þórðardóttir Fjölnir
- Vigdís Björg Einarsdóttir Fjölnir
Keppnisflokkar Skautasambandsins:
Basic Novice
- Kristín Jökulsdóttir SR 25,07
- Sunna María Yngvadóttir SR 18,40
- Vilborg Gróa Brynjólfsdóttir SR 16,28
- Tanja Rut Guðmundsdóttir Fjölnir 15,63
- Rakel Sara Kristinsdóttir Fjölnir 15,54
- Dharma Elísabet Tómasdóttir SR 14,11
- Sara Kristín Pedersen Fjölnir 14,07
- Katrín María Ragnarsdóttir SR 12,44
Intermediate Novice
- Harpa Karin Hermannsdóttir Fjölnir 25,95
- Lena Rut Ásgeirsdóttir Fjölnir 25,44
- Ingunn Dagmar Ólafsdóttir Fjölnir 22,70
Intermediate Ladies
- Hildur Bjarkadóttir Fjölnir 32,81
- Hildur Hilmarsdóttir Fjölnir 30,06
- Þórunn Lovísa Löve SR 29,27
- Sólbrún Erna Víkingsdóttir Fjölnir 29,07
Advanced Novice
- Herdís Heiða Jing Guðjohnsen SR 47,91
- Aníta Núr Magnúsdóttir Fjölnir 40,27
- Júlía Sylvía Gunnarsdóttir Fjölnir 39,17
- Eydís Gunnarsdóttir SR 37,90
- Margrét Eva Borgþórsdóttir SR 36,51
Junior
- Herdís Birna Hjaltalín Fjölnir 57,83
SO
Level I 8 ára og yngri
- Hulda Björk Geirdal Helgadóttir Öspin
Level I 16-21 ára dömur
- Gunnhildur Brynja Bergsdóttir Öspin
- Anika Rós Árnadóttir Öspin
Level II 9-11 ára stúlkur
- Sóldís Sara Haraldsdóttir Öspin
Level II 16-21 ára dömur
- Nína Margrét Ingimarsdóttir Öspin
- Gabríella Kami Árnadóttir Öspin
Level II 22 ára og eldri konur
- Þórdís Erlingsdóttir Öspin
Þrjár Fjölnisstúlkur í landsliðinu í frjálsum
Þær Helga Guðný Elíasdóttir, Helga Þóra Sigurjónsdóttir og Vilhelmína Þór Óskarsdóttir hafa verið valdar í landslið Íslands í frjálsum íþróttum. Helga Guðný er 25 ára gömul og hefur náð langt í langhlaupum. Hennar bestu tímar eru 4:49,78 í 1500m hlaupi, 10:28,50 í 3000m hlaupi, 18:43,50 í 5000m hlaupi og 38:44 í 10 km götuhlaupi. Helga Þóra er 19 ára gömul og hefur náð mjög góðum árangri í hástökki. Hefur hún hæst stokkið 1,74m. Vilhelmína er 21 árs gömul og hefur náð mjög góðum árangri í styttri hlaupum. Hennar bestu tímar eru 25,84sek í 200m hlaupi og 57,17sek í 400m hlaupi. Þetta er flottur árangur hjá þessum duglegu Fjölnisstúlkum og óskar frjálsíþróttadeildin þeim til hamingju.
Ferðagjald knattspyrnudeildar 2019
Kæru foreldrar/forráðamenn
Eins og ykkur er kunnugt keppa iðkendur Fjölnis í 5. til 2. flokki á Íslandsmóti sem skipulagt er af KSÍ. Hluti þessara leikja eru utan stór Reykjavíkursvæðisins og hafa ferðalög á þessa leiki verið skipulögð af foreldrum í samvinnu við viðkomandi þjálfara og í mörgum tilfellum hefur einhvert foreldri keyrt með hópinn. Slíkt fyrirkomulag leggur mikla ábyrgð á herðar þessara foreldra þó sem betur fer hafi ekki orðið slys.
Kostnaður við þessar ferðir hefur verið mjög mismunandi en í öllum tilfellum greiddur sérstaklega af þeim iðkendum sem fara í viðkomandi ferð, dæmi eru um kostnað upp á allt að 25.000 fyrir iðkanda í ferð á einn leik en algeng tala í þessu er 10.000 – 12.000 fyrir einn leik. Misjafnt er milli flokka og iðkenda hve mikill kostnaðurinn hefur verið en hann getur verið umtalsverður.
Fjölnir hefur því ákveðið að frá og með komandi sumri (2019) mun félagið rukka iðkendur þessara flokka um sérstakt gjald til að stand straum af þessum kostnaði. Allar ferðir sem eru í meira en einnar klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík verða skipulagðar af yfirþjáfara og íþróttafulltrúa Fjölnis. Samið hefur verið við fyrirtæki sem mun annast akstur og mun því atvinnubílstjóri keyra hópinn.
Gjaldið fyrir sumarið 2019 er 6.000 krónur og mun greiðsluseðill birtast á heimabanka forráðamanna á næstu dögum.
Vakni einhverjar spurningar um framkvæmd þessa er öllum velkomið að hafa samband við skrifstofu félagsins í 578 2700 eða með tölvupósti á skrifstofa@fjolnir.is
Fjölnis kveðjur,
Stjórn BUR, (barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Fjölnis)
Góður árangur á MÍ
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika dagana 23. og 24. febrúar. Fjölnir átti 13 keppendur á mótinu sem stóðu sig mjög vel. Margir voru að ná góðum árangri og sumir að setja persónuleg met. Þau sem komust á verðlaunapall voru:
Daði Arnarson fékk silfur í 800m hlaupi á tímanum 1:56,36. Hann keppti einnig í 400m hlaupi og bætti sig í þeirri vegalengd.
Bjarni Anton Theódórsson fékk brons í 400m hlaupi á tímanum 50,11sek.
Hermann Orri Svavarsson fékk brons í langstökki með stökk uppá 6,57m og var það persónuleg bæting hjá honum. Hann keppni líka í 60m hlaupi og bætti sig þar einnig.
Vilhelmína Þór Óskarsdóttir fékk brons í 400m hlaupi á tímanum 57,86sek.
Helga Guðný Elíasdóttir fékk brons í 3000m hlaupi á tímanum 10:58,33.
Helga Þóra Sigurjónsdóttir fékk brons í hástökki með stökk yfir 1,64m.
Að lokum vann sveit Fjölnis brons í 4x400m boðhlaupi karla. Í sveitinni voru Hermann Orri Svavarsson, Daði Arnarson, Matthías Már Heiðarsson og Bjarni Anton Theódórsson.
Fleiri voru að bæta sinn persónulega árangur á mótinu. Bjartur Gabríel Guðmundsson keppti í þremur greinum; 60m hlaupi, 200m hlaupi og hástökki og bætti sig í öllum greinunum. Sara Gunnlaugsdóttir keppti í 200m hlaupi og bætti sig í þeirri vegalengd.
Öll úrslit mótsins eru hér.
Á myndinni er Daði Arnarson.
Handboltaveisla
>>> HANDBOLTAVEISLA Á ÞRIÐJUDAGINN <<<
Við hitum upp fyrir leikinn með skothittni í anddyri Egilshallar á mánudag milli kl. 17:00-17:45. Þú gætir unnið miða fyrir 2 á leikinn og gjafabréf í keilu.
Leikurinn verður í beinni á FjölnirTV í boði Thorworks og fyrir þá sem muna eftir umspilinu góða gegn Selfossi, þá mæta okkar bestu Jón Brynjar Björnsson og Viktor Lekve til leiks og lýsa gleðinni.
Ekki missa af Domino’s Pizza – Ísland skotinu í hálfleik.
Frítt fyrir 17 ára og yngri! Mætum í gulu.
Styðjum strákana til sigurs og hjálpum þeim að tryggja sæti sitt í Final 4.
Endilega deilið á vini og vandamenn #FyllumDalhúsin