Fjölnir og Hæfi endurnýja og efla samstarf sitt
Fjölnir og Hæfi endurnýja og efla samstarf sitt

Ungmennafélagið Fjölnir og Hæfi endurhæfingarstöð hafa endurnýjað og aukið samstarf sitt með það að markmiði að efla þjónustu við iðkendur félagsins og stuðla að bættri heilsu, vellíðan og forvörnum.
Hæfi er staðsett í Egilshöll, í næsta nágrenni við æfingaaðstöðu Fjölnis, og hefur samstarfið það að leiðarljósi að auðvelda iðkendum aðgang að fjölbreyttri sérfræðiþjónustu.
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður Fjölnis, fagnar auknu samstarfi:
„Við fögnum því að efla samstarfið við frábært fagfólk Hæfis og bindum miklar vonir við að það stuðli að enn betri umgjörð um iðkendur félagsins. Það er okkur mikilvægt að iðkendur hafi greiðan aðgang að faglegri þjónustu og stuðningi, hvort sem um er að ræða meiðsli, endurhæfingu eða aðra þætti sem snúa að heilsu og vellíðan. Við sjáum jafnframt mikil tækifæri í aukinni fræðslu og forvörnum sem munu nýtast bæði iðkendum, foreldrum og þjálfurum.“
Ása Dóra Konráðsdóttir, framkvæmdastjóri Hæfis, tekur undir og er ánægð með áframhaldandi samstarf:
„Við hjá Hæfi erum mjög ánægð með að halda áfram og efla samstarfið við Fjölni. Með fjölbreyttri sérfræðiþekkingu okkar viljum við styðja við iðkendur félagsins, bæði þegar kemur að meiðslum og endurhæfingu en ekki síður með fræðslu og forvörnum. Við teljum að með nánu samstarfi við félagið, þjálfara og iðkendur getum við stuðlað að heilbrigðara íþróttaumhverfi og hjálpað iðkendum að ná sínum markmiðum.“
Aukið aðgengi að sérfræðingum
Í gegnum samstarfið hafa iðkendur Fjölnis greiðan aðgang að sjúkraþjálfurum og læknum Hæfis vegna meiðsla, endurhæfingar og stoðkerfisvanda. Lögð er áhersla á að iðkendur fái skjóta og faglega þjónustu, svo hægt sé að bregðast tímanlega við meiðslum og styðja við örugga endurkomu til æfinga og keppni.
Samstarfið nær jafnframt til þjónustu sálfræðinga, íþróttasálfræðinga, næringarfræðinga og markþjálfa. Þannig er lögð áhersla á heildræna nálgun á heilsu og vellíðan iðkenda, bæði innan vallar sem utan.
Fræðsla og forvarnir í fyrirrúmi
Mikilvægur hluti hins aukna samstarfs er fræðsla fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara Fjölnis. Stefnt er að fjórum námskeiðum árlega þar sem fjallað verður um fjölbreytt málefni á borð við næringu, íþróttasálfræði, forvarnir og aðra þætti sem styðja við íþróttaiðkun.
Markmiðið er að námskeiðin verði iðkendum að kostnaðarlausu og verða þau auglýst sérstaklega þegar nær dregur.
Hvernig nýta iðkendur þjónustuna?
Iðkendur Fjölnis og forráðamenn þeirra geta haft beint samband við Hæfi til að óska eftir tíma eða fá nánari upplýsingar um þjónustuna. Mikilvægt er að taka fram að viðkomandi sé iðkandi hjá Fjölni og tilheyri ákveðinni deild félagsins.
Hægt er að hafa samband í síma 511 1011, með tölvupósti á mottaka@haefi.is eða í gegnum heimasíðuna www.haefi.is.
Iðkendur greiða sjálfir fyrir einstaklingsbundna þjónustu og veitir Hæfi upplýsingar um verð og kjör.
Með endurnýjuðu samstarfi vilja Fjölnir og Hæfi skapa enn betri umgjörð um iðkendur félagsins, efla forvarnir og tryggja að þeir hafi greiðan aðgang að faglegri aðstoð þegar á þarf að halda.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Hæfi og þeirra verkefna sem fram undan eru!
Aðrar fréttir af deildunum
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
Árleg haustfjáröflun Fjölnis stendur yfir 20. október–2. nóvember. Við hvetjum alla iðkendur og foreldra til að taka þátt, við erum öll #FélagiðOkkar og gefst iðkendum tækifæri til að selja flottar vörur og safna fyrir næstu keppnum og leikjum, styðja sína deild og efla öflugt starf Fjölnis í leiðinni.
60% af hagnaði hverrar vöru rennur til iðkandans, 30% til deildarinnar og 10% til félagsins. Með þátttöku styður iðkandinn því bæði við íþróttaiðkun og öflugt starf Fjölnis.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fjóra söluhæstu iðkendurna og einnig verður dregið úr nöfnum þátttakenda. Meðal vinninga eru félagspeysa eða keppnistreyja frá Icewear, gjafabréf og Fjölnispakkar.
Hér má nálgast sölublað fyrir einstaklinga til að halda betur utan um eigin sölu: Solublad-i-fjaroflun-haust-2026_lokauppfærsla ATH! Í excel skjalinu eru formúlur og mikilvægt er að vista skjalið á tölvu til að geta unnið með það.
Skila þarf sölutölum 2. nóvember og ganga þarf frá greiðslu í síðasta lagi 3. nóvember. Vörurnar verða afhentar fimmtudaginn 5. nóvember kl. 14–18 í Egilshöll. Nánari staðsetning verður auglýst síðar.
Sölutölum er skilað inn í gegnum rafrænt eyðublað, sjá hér: Sölublað iðkenda í fjáröflun Fjölnis 2026 – Fill out form
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á fjaraflanir@fjolnir.is
#FélagiðOkkar #112innaðbeini

Sæktu sölublaðið hér fyrir neðan og vistaðu eintak hjá þér áður til að skrá niður pantanir.
Smelltu hér til að skila inn sölutölum:
Fjölnir leitar að þjálfara fyrir hlaupahóp félagsins
Fjölnir leitar að þjálfara fyrir hlaupahóp félagsins

Ungmennafélagið Fjölnir leitar að áhugasömum og metnaðarfullum þjálfara til að taka að sér þjálfun hlaupahóps félagsins.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á hlaupaþjálfun og vill leiða öflugan hóp iðkenda áfram. Viðkomandi þarf að geta skipulagt fjölbreyttar og markvissar æfingar sem henta fólki með ólík markmið, getu og reynslu af hlaupum.
Áhersla er lögð á jákvætt viðmót, góða samskiptahæfni og metnað til að skapa hvetjandi og skemmtilegt æfingaumhverfi þar sem allir geta tekið framförum á sínum forsendum.
Umsóknir og nánari upplýsingar
Áhugasöm eru hvött til að senda stutta kynningu á sér og reynslu sinni á frjalsar@fjolnir.is fyrir 31. október 2026.
Nánari upplýsingar um starfið fást á sama netfangi.
Við hvetjum áhugasama til að hafa samband og taka þátt í að efla hlaupastarfið hjá Fjölni!
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra

Ungmennafélagið Fjölnir, Grafarvogi auglýsir laust til umsóknar spennandi og krefjandi starf framkvæmdastjóra félagsins.
Fjölnir er fjölgreina íþróttafélag með 13 deildum og er félagið eitt fjölmennasta íþróttafélag landsins. Leitað er eftir aðila með framúrskarandi samskiptahæfni, leiðtogafærni og óbilandi áhuga á að byggja upp rótgróið félag með ungmennafélagsandann að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður félagsins í netfanginu formadur@fjolnir.is
Umsóknir berist í gegnum alfred.is. Óskað er eftir að ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn. Sjá nánar hér: www.alfred.is/starf/framkvaemdastjori-fjoelnis
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2026.
Aðrar fréttir af félaginu
Framkvæmdastjóri Fjölnis lætur af störfum
Framkvæmdastjóri Fjölnis lætur af störfum

Í dag, 30. september, lætur Guðmundur G. Sigurbergsson framkvæmdastjóri Fjölnis af störfum eftir tveggja ára starf hjá félaginu.
Guðmundur tók við starfi framkvæmdastjóra á erfiðum tíma fjárhagslega fyrir félagið og hafa fjármál þess því verið í brennidepli undanfarin ár. Stjórn félagsins vill þakka Guðmundi fyrir hans góðu störf og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Stjórn Fjölnis hefur hafið leit að nýjum framkvæmdastjóra en formaður aðalstjórnar mun sinna brýnustu verkefnum uns nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa.
Aðrar fréttir af félaginu
Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði
Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði

Ungmennafélagið Fjölnir og Icewear hafa gert með sér samstarfssamning um íþróttafatnað fyrir íþróttagreinar félagsins. Samstarfið tekur til keppnis- og æfingafatnaðar fyrir handbolta, körfubolta og knattspyrnu, auk þjálfara- og félagsfatnaðar fyrir allar deildir félagsins. Samhliða verður unnið að þróun æfinga- og keppnisfatnaðar fyrir frjálsíþróttadeild Fjölnis og æfingarfatnaðar fyrir fimleika- og listskautadeildir.
Með samstarfinu verður Fjölnisfatnaður fáanlegur í nýrri verslun Icewear Sport í Fákafeni, þar sem hægt verður að kaupa fatnað og fá hann merktan. Einnig verður sett upp sérstök Fjölnissíða á heimasíðu Icewear þar sem félagsmenn munu geta kynnt sér úrvalið sem er í boði. Stefnt er að opnun verslunar í seinni part september.
Með samstarfinu er nýtt blað brotið í sögu beggja aðila, en Fjölnir verður hluti af fyrstu íþróttafélögum landsins til að keppa í fatnaði frá Icewear þvert á íþróttagreinar. Við hjá Fjölni erum stolt af því að keppa í fatnaði frá öflugu íslensku vörumerki og mun félagið njóta góðs af sterkri stöðu, reynslu og þekkingu Icewear á uppbyggingu vörumerkja, en þess má geta að Icewear var tilnefnt sem besta íslenska vörumerkið árið 2025.
„Við erum mjög ánægð með að fá Icewear til liðs við Fjölni. Það skiptir okkur miklu máli að félagsmenn hafi gott aðgengi að vönduðum Fjölnisfatnaði og að þjónustan sé einföld og aðgengileg. Við hlökkum til samstarfsins og teljum að það muni nýtast félaginu og okkar stóra hópi iðkenda vel,“ segir Guðmundur G. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.
„Við erum gríðarlega stolt af því að hefja þetta samstarf og fá tækifæri til að vinna með einu af stærstu íþróttafélögum landsins. Það er mikill metnaður hjá báðum aðilum og við erum virkilega spennt fyrir því sem fram undan er. Við lítum á þetta sem upphafið að öflugu og farsælu samstarfi til framtíðar, þar sem við getum lagt okkar af mörkum með vönduðum íþróttafatnaði, góðri þjónustu og öflugri vöruþróun. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í vegferð félagsins og sjá okkar vörur verða hluta af daglegu starfi þess, allt frá yngstu iðkendum upp í afreksfólk“ segir Heiðar Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Icewear.
Fjölnir býður Icewear hjartanlega velkomið í öflugan hóp samstarfsaðila félagsins og hlakkar til samstarfsins.
Glæsilegur árangur Fjölnis á MÍ 11–14 ára
Glæsilegur árangur Fjölnis á MÍ 11–14 ára

Meistaramót Íslands 11–14 ára í frjálsum íþróttum fór fram í Borgarnesi helgina 15.–16. ágúst. Átta iðkendur Fjölnis tóku þátt á mótinu og stóðu sig frábærlega.
Margir iðkendanna bættu sinn persónulega árangur í ýmsum greinum. Hæst ber að nefna að Fjölnir varð stigahæsta félagið í flokki 14 ára stúlkna og þar með Íslandsmeistari í flokknum.
Að auki unnu iðkendur Fjölnis til fjölda Íslandsmeistaratitla og verðlaunasæta í einstaklingsgreinum og boðhlaupi.
Frábær árangur hjá okkar unga og öfluga frjálsíþróttafólki.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
Tveir Fjölnisiðkendur á HM U20 í Oregon í frjálsum íþróttum
Tveir Fjölnisiðkendur á HM U20 í Oregon í frjálsum íþróttum

Dagana 5.-9. ágúst fer fram Heimsmeistaramót undir 20 ára í frjálsum íþróttum, í Oregon í Bandaríkjunum. Fjölnir á tvo af fimm fulltrúum Íslands á mótinu, en ná þarf ströngum lágmörkum til að vinna sér inn keppnisrétti á því.
Alba í 100 metra hlaupi
Christina Alba Marcus Hafliðadóttir keppti í undanrásum í 100 metra hlaupi þann 5.ágúst. Því miður var Alba eilítið lasin á keppnisdegi og því þónokkuð frá sínu besta í hlaupinu en kemur heim reynslunni ríkari.
Alba hefur tekið stór skref á hlaupabrautinni undanfarna mánuði. Hún varð Íslandsmeistari í 100 metra hlaupi í júlí þegar hún hljóp á 11,83 sekúndum en Alba hefur hlaupið best á 11,71sekúndum í sumar sem er einungis 0,15 sekúndum frá Íslandsmetinu. Það verður spennandi að sjá hvað Alba gerir á næstu misserum.
Kjartan Óli í 400 metra hlaupi
Kjartan Óli Bjarnason keppti í undanrásum í 400 metra hlaupi þann 6. ágúst. Hann hljóp á tímanum 47,94 sekúndum, sem er hans næst besti tími í vegalengdinni.
Kjartan hefur bætt sig mikið á árinu og hljóp á 47,44 sekúndum á móti í Osló í júni. Sá tími er Íslandsmet U20. Kjartan varð einnig Íslandsmeistari í greininni í júlí þegar hann kom í mark á 48,47 sekúndum.
Glæsilegur árangur hjá okkar fólki sem spennandi verður að fylgjast með á næstu misserum.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí!

Miðvikudaginn 15. júlí opna haustskráningar í íþróttastarfi Fjölnis fyrir komandi tímabil.
Fjölnir býður upp á fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn, ungmenni og fullorðna þar sem lögð er áhersla á faglegt starf, jákvæða upplifun og öflugt félagslíf. Hvort sem markmiðið er að stunda íþróttir sér til ánægju, eignast nýja vini eða stefna langt í sinni grein, þá er pláss fyrir alla í Fjölni.
Við hvetjum bæði núverandi og nýja iðkendur til að kynna sér það fjölbreytta starf sem í boði er hjá félaginu og ganga frá skráningu þegar hún opnar.
Skráning fer fram í Abler og verður hægt að nálgast allar upplýsingar um æfingatíma, árganga og skráningu í gegnum skráningarkerfið.
Við hlökkum til að taka á móti iðkendum á nýju og spennandi tímabili og sjá Fjölnisfjölskylduna stækka enn frekar.
Skráningar opna miðvikudaginn 15. júlí. Við sjáumst í Fjölni! 💙💛
Fjölnir og Keiluhöllin framlengja og efla samstarf sitt
Fjölnir og Keiluhöllin framlengja og efla samstarf sitt

Fjölnir og Keiluhöllin í Egilshöll hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning sem gildir til 1. september 2028. Með samningnum er samstarf aðila ekki aðeins framlengt heldur einnig eflt með auknum ávinningi fyrir iðkendur, foreldra, sjálfboðaliða og stuðningsfólk félagsins.
Keiluhöllin hefur verið öflugur samstarfsaðili Fjölnis um árabil og átt stóran þátt í fjölmörgum viðburðum og verkefnum félagsins. Með nýjum samningi eykst jafnframt sýnileiki Keiluhallarinnar innan félagsins, en fyrirtækið verður með vörumerki sitt á upphitunartreyjum meistaraflokka boltagreina auk þess að vera sýnilegt á helstu keppnisvöllum Fjölnis. Þetta styrkir enn frekar tengsl fyrirtækisins við félagið og samfélagið í Grafarvogi.
Meðal þess sem felst í samningnum er að uppskeruhátíð Fjölnis verður áfram haldin í samstarfi við Keiluhöllina og að sumarnámskeið félagsins munu áfram nýta aðstöðu Keiluhallarinnar í hádeginu næstu tvö sumur. Þá mun Keiluhöllin áfram leggja til vinninga í helstu happdrætti félagsins og styðja þannig við fjölmörg verkefni á vegum Fjölnis.
Samningurinn felur jafnframt í sér aukinn ávinning fyrir iðkendur og stuðningsfólk. Allir meðlimir 112unnar fá boltatilboð á drykkjum og 15% afslátt af matseðli gegn framvísun skírteinis, á meðan allir hópar og deildir á vegum Fjölnis geta nýtt sér 20% hópeflisafslátt af matseðli þegar bókað er í gegnum félagið. Þá munu Fjölnir og Keiluhöllin kynna sérstakan afmælispakka fyrir iðkendur félagsins. Iðkendur sem halda afmæli í Keiluhöllinni fá fría afmælisköku með pakkanum og um leið rennur stuðningur til Fjölnis í formi gjafabréfa sem nýtast í starfsemi félagsins.
Keiluhöllin stefnir sömuleiðis að því að bjóða þátttakendum á mótum sem haldin eru af Fjölni í Egilshöll sérstök tilboð á mótsdögum, þegar aðstæður og fyrirvari leyfa. Markmiðið er að gera mótsupplifun þátttakenda og fjölskyldna þeirra enn betri. Þá felur samstarfið einnig í sér aukin tækifæri til sameiginlegra markaðs- og kynningarverkefna, þar sem Keiluhöllin getur í samráði við félagið og viðkomandi deildir nýtt leikmenn Fjölnis í kynningarefni og auglýsingar tengdar samstarfinu.
Lóa Bjarnadóttir, rekstrarstjóri Keiluhallarinnar, segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið: „Við erum einstaklega stoltir samstarfsaðilar Fjölnis. Við sjáum fjölmörg tækifæri í að efla samstarfið enn frekar og nýta alla þá fjölbreyttu afþreyingu sem við höfum upp á að bjóða. Iðkendur Fjölnis eru hjartað og lífið í Egilshöllinni og frábærir nágrannar. Við hlökkum til samvinnunnar.“
Þorgeir Örn Tryggvaon, markaðsstjóri Fjölnis, tekur undir með Lóu: „Fjölnir fagnar áframhaldandi samstarfi við Keiluhöllina og hlakkar til að byggja enn frekar á þeim sterka grunni sem skapast hefur á undanförnum árum. Samstarfið mun áfram styðja við öflugt félagsstarf og skapa aukið virði fyrir iðkendur, fjölskyldur þeirra og stuðningsfólk félagsins“.
Fjölnir fagnar því að hafa endurnýjað og eflt samstarfið við Keiluhöllina til næstu ára og hlakkar til að byggja áfram á því góða samstarfi sem aðilar hafa átt um árabil, samfélagi Fjölnis til heilla.
















