Finnskur sigur á ICELAND ICE HOCKY CUP 2026
Finnskur sigur á ICELAND ICE HOCKY CUP 2026

Dagana 16.-19. apríl fór fram alþjóðlega íshokkímótið Iceland Ice Hockey Cup 2026 hér í Egilshöll. Það er fyrirtækið World Hockey Group sem hélt mótið í samvinnu við Íshokkídeild Fjölnis. Mótið fór fram í fyrsta skipti og aðeins var keppt í aldursflokki U14 að þessu sinni. Sex lið tókum þátt, þar af tvö lið frá okkur í Fjölni og tvö finnsk lið auk SA og SR sem sendu sitthvort liðið til keppni.
Það var svo finnska liðið VG-2 Yellow sem fagnaði sigri eftir skemmtilegan úrslitaleik við SA.
Ignat Timashov, markvörður Fjölnis, var valinn besti markmaður mótsins.
Öll úrslit og frekari upplýsingar frá mótinu má sjá hér.
Hér er tengill á instagram-síðu mótsins þar sem er að finna myndir og myndbönd.
Eins og áður segir var það fyrirtækið World Hockey Group sem hélt mótið en þar er forsprakki Sergei Zak sem var ein aðalsprauta íshókkídeildarinnar okkar í 14 ár eða svo, en hann flutti svo erlendis fyrir nokkrum árum og starfar nú við mótahald og framkvæmd æfingabúða í ýmsum löndum.
Íshokkídeild Fjölnis þakkar öllum flottu krökkunum okkar fyrir þátttökuna og ekki síður öllum foreldrunum fyrir sjálfboðastörfin í kringum mótið. Alþjóðlegt mót sem þetta kallar á mikla vinnu við margvísleg störf en jafnframt ber að þakka leikmönnum meistaraflokka sem aðstoðuðu við dómgæslu. Það er ekki sjálfgefið að fólk leggi fram vinnuframlag sem þetta og ber að þakka öllum kærlega fyrir að gera mótið jafn glæsilegt og raun ber vitni.
Við þökkum svo öllum keppendum og gestum fyrir komuna og þátttökuna á Iceland Ice Hockey Cup 2026 í Egilshöllinni!
Fyrsta“ Iceland Ice Hockey Cup“ mótið hefst í dag
Fyrsta "Iceland Ice Hockey Cup“ mótið hefst í dag

Kl 18:45 í dag, fimmtudaginn 16. apríl, verður blásið til fyrsta leiks í Alþjóðlega mótinu Iceland Ice Hockey Cup sem haldið verður hér í Egilshöll dagana 16.-19. apríl. Það er fyrirtækið World Hockey Group sem heldur mótið í samvinnu við Íshokkídeild Fjölnis. Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið og því er farið rólega af stað. Ef vel gengur er ætlunin að halda samstarfinu áfram og stækka mótið með fleiri erlendum liðum og jafnvel fleiri aldursflokkum.
Að þessu sinni eru einungis lið í AA/A, í aldursflokki U14 sem taka þátt. Alls verða 6 þátttökulið í þessu fyrsta móti: Tvö lið frá okkur í Fjölni, eitt lið frá Skautafélagi Akureyrar, eitt lið frá Skautafélagi Reykjavíkur og tvö finnsk lið sem við bjóðum sérstaklega velkomin til leiks. Leikið verður fimmtudag til sunnudags en á sunnudagsmorgun verða úrslitaleikir um öll sæti.
Fyrirtækið World Hockey Group heldur mótið eins og áður segir en þar er forsprakki Sergei Zak sem var ein aðalsprauta íshókkídeildarinnar okkar í 14 ár eða svo, en hann flutti svo erlendis fyrir nokkrum árum. Myndin var tekin á undirbúningsfundi í dag og Sergei fór að sjálfsögðu í okkar treyju í tilefni dagsins.
Við bjóðum keppendur og gesti velkomna til leiks á Iceland Ice Hockey Cup 2026 í Egilshöllinni. Góða skemmtun!
Allar nánari upplýsingar um mótið er að finna hér:
https://www.worldhockeygroup.com/icelandicehockeycup
Aðalfundur Fjölnis
Aðalfundur Fjölnis
Aðalfundur Fjölnis verður haldinn 28 apríl n.k. í félagsaðstöðu félagsins í Egilshöll og hefst kl. 17.30.
Dagskrá er samkvæmt lögum félagsins:
a) Skýrsla stjórnar
b) Reikningar félagsins
c) Lagabreytingar
d) Kjör formanns
e) Kjör stjórnarmanna
f) Kjör skoðunarmanna reikninga
g) Ákvörðun félagsgjalda
h) Önnur mál
Kosningar:
a) kosning formanns til eins árs,
b) kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára,
c) kosning tveggja manna í varastjórn til eins árs.
Tilkynningar um framboð skulu berast skrifstofu félagsins á netfangið gudmundur@fjolnir.is minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund.
Lagabreytingar:
Tillögur til breytinga á lögum félagsins, undirritaðar af flutningsmönnum, skulu berast skrifstofu félagsins á netfangið gudmundur@fjolnir.is minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund.

Annar framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis
Annar framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis
Annar framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis verður haldinn 20. apríl n.k. kl. 18:30 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.
Dagskrá:
Kosning formanns.
Í 17 grein laga félagsins segir:
Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.
Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.
Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is.

Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára – áhugasviðskönnun
Búið er að opna fyrir umsóknir fyrir vinnuskólann sumarið 2026
Skref 1 – Sækja um hjá vinnuskólanum
- https://reykjavik.is/vinnuskolinn/ Munið að merkja við að þið óskið eftir að vinna hjá Ungmennafélaginu Fjölni.
Skref 2 – Fylla út áhugasviðskönnun fyrir Fjölni
Athugið að þessi könnun er áhugasviðskönnun og er í rauninni ekki umsókn um vinnu en viðauki fyrir okkur til þess að vinna með.
Öllum umsóknum verður svarað.
Við bjóðum upp á fjölbreytt störf fyrir 15-16 ára. Í boði er að vinna á sumarnámskeiðum deilda, fjölgreinanámskeiði félagsins og leikjanámskeiði.
- Fyrir umsækjendur á aldrinum 15-16 ára (2011-2010)
- Umsækjendur þurfa að vera með lögheimili í Reykjavík.
Umsækjendur geta hakað við það starf sem þeir óska eftir, það er í boði að velja fleiri en eitt starf, t.d. að starfa á knattspyrnu- og listskautanámskeiðum.
Vinnutímabil fyrir 15-16 ára fer eftir nánara samkomulagi þegar ráðning liggur fyrir. Laun eru greidd út samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjölnis á sumarnamskeid@fjolnir.is.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl!
Athugið að það er frekar mikilvægt að umsækendur geti verið að mestu við vinnu á tímabilinu 8. júní – 10. júlí og 10. – 15. ágúst
Drög að dagskrá sumarsins :
- 15. – 12. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
- 22. – 26. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
- 29. júní – 3. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
- 6. – 10. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
- 10. – 14. ágúst – Sumarnámskeið Deilda og Fjölgreinanámskeið Egilshöll

Þór Guðmundsson ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik
Þór Guðmundsson ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik

Handknattleiksþjálfarinn Þór Guðmundsson hefur samið við Fjölni um að taka við starfi aðalþjálfara meistaraflokks kvenna næstu tvö árin. Samhliða því mun Þór einnig stýra 3. flokki kvenna hjá félaginu.
Þór kemur til Fjölnis með víðtæka reynslu úr þjálfun kvennahandbolta. Hann hefur áður þjálfað meistaraflokk og 3. flokk kvenna hjá Víkingi, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu þar sem hann þjálfaði einnig 3. flokk félagsins. Þjálfaraferill hans hófst hjá Fram þar sem hann starfaði ýmsa yngri flokka.
Eftir tveggja ára hlé frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu er Þór nú tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna. „Fjölnir er spennandi félag sem hefur staðið sig vel í uppbyggingu undanfarin ár. Eftir að hafa tekið tvö ár í pásu frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu var það ekki erfið ákvörðun að segja já við þessu verkefni,“ segir Þór. „Það er mikill heiður að fá að vinna með ungum, efnilegum og metnaðarfullum hópi og ég hlakka til að gera mitt besta til að stuðla að áframhaldandi árangri og uppbyggingu.“
Meistaraflokksráð kvenna hjá Fjölni segist afar ánægt með ráðninguna. „Þekking og reynsla Þórs mun styrkja starf liðsins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra jákvæðu áhrifa sem hann mun hafa á liðið,“ segir í yfirlýsingu ráðsins.
Að lokum vill meistaraflokksráð kvenna þakka Gunnari Val fyrir gríðarlega gott og óeigingjarnt starf fyrir meistaraflokkinn í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í öðrum spennandi verkefnum fyrir deildina.
Fjölnismenn í eldlínunni með A-landsliði karla í íshokkí
Fjölnismenn í eldlínunni með A-landsliði karla í íshokkí
A-landslið karla í íshokkí lauk um helgina keppni á Div2B á Heimsmeistaramóti karla í íshokkí sem fram fór í Búlgaríu. Ísland lék þar til úrslita um gullverðlaunin, en laut í lægra haldi í lokaleiknum, 2–5.
Fjölnir átti fjóra fulltrúa í hópnum að þessu sinni. Það voru þeir Róbert Pálsson og Hektor Hrólfsson, sem báðir leika með Fjölni, auk Viktors Mojzyszek, uppalins Fjölnismanns sem nú leikur erlendis. Þá var Marcin Mojzyszek, starfsmaður Egilshallar, einnig með liðinu sem tækjastjóri.
Það er afar ánægjulegt fyrir Fjölni að eiga svo sterka fulltrúa í verkefnum landsliðsins og fylgjast með Fjölnismönnum leggja sitt af mörkum á alþjóðlegum vettvangi.
Bjarki Fannar Arnþórsson semur við Fjölni
Bjarki Fannar Arnþórsson semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við Bjarki Fannar Arnþórsson fyrir komandi keppnistímabil.
Bjarki Fannar, sem er fæddur árið 2003, er uppalinn Fjölnismaður og hefur leikið með félaginu upp alla yngri flokka. Hann kemur úr afar sigursælum 2003 árgangi félagsins sem náði frábærum árangri á sínum tíma.
Síðustu ár hefur Bjarki leikið með Vængjum Júpíters, venslaliði Fjölnis, þar sem hann hefur þróað leik sinn mikið. Hann hefur verið lykilleikmaður liðsins, skorað fjölda marka og lagt upp mörg til viðbótar.
Bjarki er skapandi miðjumaður með gott auga fyrir spili og sterkt markanef. Hann hefur komið gríðarlega sterkur inn í lið Fjölnis í vetur og sýnt svo sannarlega að hann er tilbúinn í stærri áskoranir á næsta stigi.
Gunnar Már þjálfari liðsins er ánægður með nýjustu viðbót liðsins: „Bjarki Fannar er gegnheill Fjölnismaður sem kemur aftur yfir í Fjölni frá Vængjum, leikmaður sem mun gleðja stuðningsmenn með skemmtilegum tilþrifum og sigrum í komandi framtíð.“
Þá er Bjarki Fannar spenntur fyrir að taka skrefið úr Vængjum Júpíters í Fjölni: „Það er auðvitað bara frábært að vera kominn í Fjölni, virkilega skemmtilegur hópur og er ég mjög spenntur fyrir sumrinu. Grafarvogsbúar, mætið á völlinn, þetta verður veisla í sumar!“
Við bjóðum Bjarka hjartanlega velkominn í hópinn og hlökkum til að fylgjast með honum í gulu í sumar.
Aðrar fréttir af deildinni
María Eir framlengir við Fjölni
27/04/2026
Aníta Björg Sölvadóttir semur við Fjölni
22/04/2026
Aðalfundur Fjölnis
16/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
15/04/2026
Stelpurnar í U16 fengu silfur!
Stelpurnar í U16 fengu silfur!

Um helgina fór fram þriðja og síðasta helgarmót vetrarins í keppni liða í U16 deild kvenna. Að þessu sinni vorum við gestgjafarnir og fór leikirnir því fram hér í Egilshöllinni. Stelpurnar okkar stóðu sig hreint frábærlega en leikin var tvöföld umferð. Þær sigruðu lið SR sannfærandi í báðum viðureignunum en leikirnir gegn SA fóru báðir í framlengingu. Tapaðist annar í framlengingu en hinn í æsispennandi vítakeppni.
SA hlaut Íslandsmeistaratitillinn í U16 kvenna deildinni og óskum við þeim til hamingju. Stelpurnar okkar tryggðu sér hins vegar silfurverðlaun með þessari glæsilegu frammistöðu þrátt fyrir að aðalþjálfarinn, Laura-Ann Murphy, væri fjarverandi með kvennalandsliðinu. Stelpurnar hafa tekið gríðarlegum framförum í vetur því í fyrsta mótinu í haust töpuðu þær öllum leikjunum með töluverðum mun en fengu um helgina mikilvæg stig út úr öllum leikjunum.
Við óskum U16 liðinu okkar hjartanlega til hamingju með glæstan árangur!
Jafnframt þakkar íshokkídeildin kærlega þjálfurum, starfsmönnum og öllum foreldrum fyrir samstarf og samvinnu við að halda þetta stóra mót nú um helgina en það voru ansi mörg handtök sem þurfti að inna af hendi til að láta þetta ganga upp.
Fjölniskonur í eldlínunni með A-landsliði kvenna í íshokkí
Fjölniskonur í eldlínunni með A-landsliði kvenna í íshokkí
A-landslið kvenna í íshokkí hefur keppni á HM-móti sínu í Slóveníu í dag, 13. apríl. Fjölnir á þar góða fulltrúa, en þrír leikmenn félagsins eru í hópnum auk þess sem aðstoðarþjálfari liðsins kemur úr röðum Fjölnis.
Leikmennirnir Elísa Sigfinnsdóttir, Eva Hlynsdóttir og Laura-Ann Murphy eru allir hluti af landsliðshópnum, en Gunnar Guðmundsson er aðstoðarþjálfari liðsins á mótinu.
Ísland leikur fjóra leiki á mótinu:
- 13. apríl kl. 17:30 – Ísland vs. Slóvenía
- 15. apríl kl. 14:00 – Ísland vs. Pólland
- 17. apríl kl. 14:00 – Ísland vs. Ástralía
- 18. apríl kl. 14:00 – Ísland vs. Taívan
Nánari upplýsingar um mótið og textalýsingar má finna á heimasíðu mótsins. Einnig verður hægt að fylgjast með leikjum Íslands í beinni útsendingu á streymisvef ÍHÍ.
Fjölnir óskar okkar fólki góðs gengis á mótinu og hlökkum við til að fylgjast með þeim í keppninni.





























