Júlíus Hrafn og Sófus Kári skrifa undir sinn fyrsta meistaraflokkssamning

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við tvo unga og efnilega leikmenn úr yngri flokkum félagsins, þá Júlíus Hrafn Marteinsson og Sófus Kára Einarsson.
Það er mikið ánægjuefni að Júlíus Hrafn og Sófus Kári hafi skrifað undir sinn fyrsta samning við uppeldisfélagið. Báðir hafa þeir leikið með Fjölni allt frá minnibolta og farið í gegnum alla yngri flokka félagsins. Samningarnir gilda til ársins 2028.
Með samningunum taka þeir næsta skref á sínum ferli og verða hluti af æfingahópi meistaraflokks karla. Samhliða því munu þeir áfram leika með sínum aldursflokki og Vængjum Júpíters í 2. deild.
Júlíus Hrafn og Sófus Kári eru báðir afar efnilegir leikmenn sem hafa sýnt miklar framfarir undanfarin ár. Þeir búa yfir góðum leikskilningi, miklum metnaði og eru sannir Fjölnismenn sem hafa verið til fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan.
Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar því að félagið haldi áfram að treysta á uppaldna leikmenn: „Það er skýr stefna hjá okkur í Fjölni að þróa okkar eigin leikmenn og gefa þeim verðskulduð tækifæri til að stíga næstu skref. Með því að taka þessa stráka inn í æfingahóp meistaraflokksins höldum við áfram að byggja upp öfluga leikmenn fyrir afreksstarf félagsins til framtíðar.“
Við óskum Júlíusi Hrafni og Sófusi Kára innilega til hamingju með samningana og hlökkum til að fylgjast með þeim taka næstu skref í gulum og bláum litum.
Aðrar fréttir af deildinni
Fannar Hafþórsson framlengir við Fjölni
28/07/2026
Fjölnir þiggur sæti í Bónus deild kvenna
15/07/2026









