Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði

Ungmennafélagið Fjölnir og Icewear hafa gert með sér samstarfssamning um íþróttafatnað fyrir íþróttagreinar félagsins. Samstarfið tekur til keppnis- og æfingafatnaðar fyrir handbolta, körfubolta og knattspyrnu, auk þjálfara- og félagsfatnaðar fyrir allar deildir félagsins. Samhliða verður unnið að þróun æfinga- og keppnisfatnaðar fyrir frjálsíþróttadeild Fjölnis og æfingarfatnaðar fyrir fimleika- og listskautadeildir.
Með samstarfinu verður Fjölnisfatnaður fáanlegur í nýrri verslun Icewear Sport í Fákafeni, þar sem hægt verður að kaupa fatnað og fá hann merktan. Einnig verður sett upp sérstök Fjölnissíða á heimasíðu Icewear þar sem félagsmenn munu geta kynnt sér úrvalið sem er í boði. Stefnt er að opnun verslunar í seinni part september.
Með samstarfinu er nýtt blað brotið í sögu beggja aðila, en Fjölnir verður hluti af fyrstu íþróttafélögum landsins til að keppa í fatnaði frá Icewear þvert á íþróttagreinar. Við hjá Fjölni erum stolt af því að keppa í fatnaði frá öflugu íslensku vörumerki og mun félagið njóta góðs af sterkri stöðu, reynslu og þekkingu Icewear á uppbyggingu vörumerkja, en þess má geta að Icewear var tilnefnt sem besta íslenska vörumerkið árið 2025.
„Við erum mjög ánægð með að fá Icewear til liðs við Fjölni. Það skiptir okkur miklu máli að félagsmenn hafi gott aðgengi að vönduðum Fjölnisfatnaði og að þjónustan sé einföld og aðgengileg. Við hlökkum til samstarfsins og teljum að það muni nýtast félaginu og okkar stóra hópi iðkenda vel,“ segir Guðmundur G. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.
„Við erum gríðarlega stolt af því að hefja þetta samstarf og fá tækifæri til að vinna með einu af stærstu íþróttafélögum landsins. Það er mikill metnaður hjá báðum aðilum og við erum virkilega spennt fyrir því sem fram undan er. Við lítum á þetta sem upphafið að öflugu og farsælu samstarfi til framtíðar, þar sem við getum lagt okkar af mörkum með vönduðum íþróttafatnaði, góðri þjónustu og öflugri vöruþróun. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í vegferð félagsins og sjá okkar vörur verða hluta af daglegu starfi þess, allt frá yngstu iðkendum upp í afreksfólk“ segir Heiðar Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Icewear.
Fjölnir býður Icewear hjartanlega velkomið í öflugan hóp samstarfsaðila félagsins og hlakkar til samstarfsins.
