Benóný Gunnar Óskarsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Benóný Gunnar Óskarsson til ársins 2028.

Benóný gekk til liðs við Fjölni árið 2023 og hefur síðan fest sig í sessi sem einn efnilegasti leikmaður landsins í sínum árgangi. Hann hefur verið valinn í æfingahópa yngri landsliða Íslands, tekið þátt í verkefni U15 landsliðsins í Finnlandi og var lykilmaður í bikarmeistaraliði Fjölnis í sínum aldursflokki, þar sem hann skoraði eftirminnilega sigurkörfuna í úrslitaleiknum.

Á síðasta tímabili var Benóný hluti af meistaraflokksliði Fjölnis samhliða því að leika með Vængjum Júpíters og hefur haldið áfram að taka stór skref í sinni þróun sem leikmaður.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Benóný verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Benóný kom inn í fyrra og varð bikarmeistari með sínum flokki þar sem hann skoraði eftirminnilega sigurkörfuna. Hann sýnir frábæra vinnusemi og hefur metnað til að halda áfram að vaxa sem leikmaður og taka sífellt stærra hlutverk með meistaraflokknum.“

Benóný er spenntur fyrir komandi tímabili: „Ég er spenntur fyrir komandi tímabili og hlakka til að bæta mig sem leikmaður.“

Við óskum Benóný innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »