Fréttabréf Listskautadeildar
Síðustu vikur vorannar
Nokkrir skautarar þreyttu grunnpróf í apríl. Þetta eru próf sem hægt er að taka eftir að hafa lokið Skautum regnbogans og sýna getustig iðkenda með tilliti til keppnisþátttöku.
Skautaþing ÍSS fór fram í maí, mikilvægt er að Fjölnir eigi virka fulltrúa í stjórnum og nefndum innan Skautasambands Íslands. Einnig tóku þjálfarar, landslið og hæfileikamótun þátt í afreksbúðum Skautasambandsins og ISU Visiting Coach.
Hin árlega vorsýning var að þessu sinni með circus þema og tóku iðkendur frá öllum getustigum þátt. Einstaklega vel heppnaðar sýningar. Takk öll sem mættuð og studduð iðkendurna okkar!
Lokahóf var svo haldið úti í byrjun júní með grilli og leik. Sumaræfingabúðir eru nú í fullum gangi og nóg um að vera.
Ísabella kveður okkur að sinni. Þökkum við henni fyrir vel unnin störf sem þjálfari og samfylgdina til fjölda ára en hún hefur skautað hjá félaginu frá unga aldri. Takk fyrir allt Ísabella og gangi þér allt í haginn í framtíðinni.
Strákanámskeið
Augljóst er að skortur er á strákum í íþróttinni og höfum við fengið styrk til að bjóða upp á frítt námskeið fyrir 6-12.ára stráka. Skráning á Abler byrjar í júlí, takmörkuð pláss.
Nýr þjálfari
Við erum spennt að kynna nýja þjálfarann okkar hana Dönu: Bogdana Semyryazhko er þjálfari, tæknisérfræðingur (Technical Specialist) og fyrrverandi meðlimur í ítalska landsliðinu í listskautum. Hún hefur starfað sem þjálfari frá árinu 2017 og er með háskólagráður í íþróttafræði og fyrirbyggjandi og aðlagaðri hreyfingu (Preventive and Adapted Physical Activity).
JGP 2026
Elín Katla hefur verið valin til að keppa á Junior Grand Prix fyrir Íslands hönd, en Skautasambandið hefur ákveðið að senda hana á fyrra mótið sem Ísland á pláss á en það verður á Thailandi 2-5.september. Það verður spennandi að fylgjast með henni keppa í Bangkok á sínu fyrsta JGP.
Haustönn
Æfingar hefjast aftur strax eftir verslunarmannahelgi. Skráning byrjar á Abler í júlí. Haustönnin verður 4. ágúst til 19. desember og stefnum við á jólasýningu á lokadag annar, 19.desember.
Að lokum viljum við þakka ykkur öllum fyrir frábært tímabil og hlökkum til að sjá ykkur hress og kát á nýju tímabili. Einnig viljum við þakka sjálfboðaliðunum, svona starf eins og okkar byggist að miklu leyti á sjálfboðavinnu og væri einfaldlega ekki mögulegt án ykkar!
Dagskrá næsta veturs (með fyrirvara um breytingar)
- Afreksbúðir 4-7. ágúst
- Dómaranámskeið ágúst
- JGP Bangkok 2-5. september, Gdansk 7-10. október
- Haustmót Egilshöll 25-27. september
- Grunnpróf verða í október
- NLT Laugardal 29. október til 1. nóvember
- Íslandsmót Akureyri 28-29. nóvember
- Norðurlandamót Finnland 14-17. janúar
- Vormót Akureyri 2-4. apríl
- Grunnpróf verða í apríl
- Skautaþing áætlað í maí
- Afreksbúðir







