Hulda Ósk framlengir við Fjölni

Körfuknattleikskonan Hulda Ósk Bergsteinsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni og mun leika með liðinu í efstu deild á komandi tímabili.
Hulda er reynslumesti leikmaður liðsins og hefur verið mikilvægur hluti af uppbyggingu þess undanfarin ár. Hún tók við fyrirliðabandinu í sumar og mun leiða ungan og efnilegan leikmannahóp Fjölnis inn í komandi tímabil.
Þetta verður í annað sinn sem Hulda tekur slaginn með Fjölni í efstu deild, en reynsla hennar og leiðtogahæfileikar verða mikilvægir fyrir liðið í þeim verkefnum sem fram undan eru.
Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar framlengingunni. „Ég fagna því að fyrirliðinn okkar Hulda skuli hafa framlengt samning sinn fyrir komandi tímabil. Hulda er sannkallaður leiðtogi sem hefur verið burðarás í liðinu og sýnir frábært fordæmi fyrir þann efnilega hóp yngri leikmanna sem er að koma upp.“
Hulda er spennt fyrir því að takast á við efstu deild á ný með Fjölni. „Það er virkilega gaman að vera búin að endursemja við Fjölni og ég er mjög spennt fyrir vetrinum framundan. Það bíða okkar spennandi áskoranir og ég hlakka til að takast á við þær með liðinu. Við erum með mjög ungt lið, þannig verður sérstaklega gaman að fylgjast með efnilegu stelpunum okkar stíga upp og sýna öllum hvað í þeim býr.“
Við óskum Huldu til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá fyrirliðann leiða liðið út á völlinn í efstu deild á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026









