Ísarr Logi Arnarsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Ísarr Loga Arnarsson til ársins 2028.

Ísarr er uppalinn Fjölnismaður og einn efnilegasti leikmaður landsins í sínum árgangi. Hann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og öðlaðist dýrmæta reynslu á síðasta ári með U16 landsliðinu, bæði á Norðurlandamótinu í Finnlandi og Evrópumótinu í Norður-Makedóníu.

Á síðasta tímabili lék Ísarr með meistaraflokki Fjölnis samhliða því að spila með Vængjum Júpíters. Hann átti einnig stóran þátt í bikarmeistaratitli Fjölnis í sínum aldursflokki og heldur áfram að taka mikilvæg skref í átt að stærra hlutverki með meistaraflokknum.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Ísarr verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Ísarr fékk nasaþefinn af meistaraflokki í fyrra eftir frábært sumar með U16 landsliðinu. Hann varð bikarmeistari í sínum flokki og ég hlakka til að sjá hann halda áfram að vaxa og þroskast sem leikmaður og taka enn meira til sín þrátt fyrir ungan aldur.“

Ísarr er spenntur fyrir komandi tímabili: „Ég hlakka mikið til komandi tímabils og allra þeirra tækifæra sem bíða mín. Ég er tilbúinn að leggja hart að mér og þróast sem leikmaður og gera mitt besta.“

Við óskum Ísarri innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »