Ölgerðin áfram í öflugu samstarfi við Ungmennafélagið Fjölnir

Fjölnir og Ölgerðin hafa endurnýjað samstarfssamning sinn og er um að ræða enn veglegri samning en áður, sem nær nú yfir fleiri deildir og viðburði innan félagsins.
Ölgerðin hefur verið einn af stærstu og mikilvægustu styrktaraðilum Fjölnis um langt árabil og hefur samstarfið reynst félaginu afar dýrmætt. Stuðningur fyrirtækisins skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf félagsins. Vörur frá Ölgerðinni eru stór hluti af leikdögum og viðburðum á vegum félagsins og eru einnig nýttar í almennri sjoppusölu hjá deildum Fjölnis. Sú sala er mikilvæg fjáröflun fyrir deildirnar og styður beint við öflugt íþrótta- og félagsstarf innan félagsins.
Þorgeir Örn Tryggvason, markaðsstjóri Fjölnis, er ánægður með nýja samninginn: „Ölgerðin hefur um árabil verið einn af stærstu styrktaraðilum Fjölnis og því afar ánægjulegt að efla það samstarf enn frekar. Með nýjum samningi eykst aðkoma Ölgerðarinnar að fleiri viðburðum og verkefnum innan félagsins, sem mun styrkja starf deildanna enn meira.“
Valdís María Einarsdóttir, sölustjóri á fyrirtækjasviði hjá Ölgerðinni, segir samstarfið mikilvægt: “Það er okkur hjá Ölgerðinni mikið ánægjuefni að efla enn frekar samstarfið við Fjölni, sem hefur staðið sterkt um árabil. Fjölnir er öflugt félag með mikilvægt hlutverk og við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum með áframhaldandi samstarfi.”
Fjölnir þakkar Ölgerðinni kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til áframhaldandi farsæls samstarfs á komandi árum.
