Daníel Ágúst snýr aftur heim í Fjölni

Körfuknattleiksmaðurinn Daníel Ágúst Halldórsson er genginn aftur til liðs við Fjölni og mun leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili.
Daníel er uppalinn Fjölnismaður og þekkir félagið því vel. Undanfarin ár hefur hann aflað sér dýrmætrar reynslu bæði hér heima og erlendis. Hann lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum auk þess sem hann hefur reynslu úr efstu deild á Íslandi með Þór Þorlákshöfn og Haukum.
Það er því mikill styrkur fyrir Fjölni að fá Daníel aftur heim í Grafarvoginn. Hann kemur inn í hópinn með reynslu, gæði og leiðtogahæfileika sem munu nýtast liðinu vel, ekki síst ungum og efnilegum leikmannahópi félagsins.
Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar heimkomu Daníels. „Virkilega flottur leikmaður og karakter sem við í félaginu fáum. Daníel hefur sótt sér mikla reynslu bæði hérlendis og erlendis og mun koma til með að miðla henni áfram til yngri leikmanna.“
Daníel er ánægður með að vera kominn aftur á heimaslóðir. „Þakklæti er efst í huga þegar ég hugsa um að koma heim í Grafarvoginn. Ég er ótrúlega þakklátur Fjölni fyrir að taka mér opnum örmum, sérstaklega eftir erfið meiðsli. Ég er spenntur fyrir því að vinna að markmiðum með liðinu, leggja mitt af mörkum og taka þátt í því að byggja upp góðan hóp. Það verður líka sérstaklega gaman að fá að spila með vinum mínum aftur og njóta þess að vera á vellinum.“
Við bjóðum Daníel Ágúst hjartanlega velkominn aftur heim í Fjölni og hlökkum til að sjá hann í Fjölnisbúningnum á ný.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026









