Fréttabréf Listskautadeildar


Upphaf tímabils

Upphaf tímabilsins hefur gengið vel. Strákanámskeiðið fylltist og gríðarlega gaman að sjá alla þessa stráka á svellinu. Skautasambandið hélt afreksbúðir í ágúst fyrir Basic Novice og upp. Fjölskylduæfing var haldin í september, þar sem foreldrum og systkinum var boðið að taka þátt í æfingu til að fá innsýn í líf skautaranna og vonum við að allir hafi skemmt sér vel þann daginn. Prufuæfingar í nýjum hópi fyrir 25 ára og eldri voru gríðarlega vel sóttar. Búið er að halda foreldrafundi, Skautasambandið er búið að halda dómaranámskeið og allt á fullu.

Júlía Sylvía Gunnarsdóttir er búin að flytja sig um set og farin að æfa í Salzburg með nýjum partner. Stefna þau að því að keppa fyrir Ungverjaland og óskum við þeim alls hins besta.


Junior Grand Prix

Elín Katla keppti fyrir hönd Íslands á JGP í Bangkok og gekk gríðarlega vel, en þar fékk hún hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið á JGP og vann sér inn rétt til að keppa á heimsmeistaramótinu sem verður haldið í Sofiu í febrúar.

Lesið meira um það hér:
https://www.iceskate.is/2026/09/06/elin-katla-tryggdi-ser-keppnisrett-a-isu-junior-worlds/


Haustmót

Fyrsta ÍSS-mót tímabilsins var að vanda Haustmótið sem haldið var í Egilshöll núna um helgina. Margir voru að keppa með ný prógröm og í nýjum flokkum.

Í félagalínunni 8 ára og yngri kepptu Ásthildur Erna, Hekla Hvönn, Lovísa Ljóney og Sigarr. Í flokknum 10 ára og yngri kepptu Amalía Tía, Hekla Eik, Helga Gunn, Hildur Ósk, Lísa Björg, Rakel Vala og Elía Sif. Í þessum flokkum eru ekki gefin upp stig heldur fá allir þátttökuverðlaun.

Vegna reiknivillu í tölvukerfinu kom í ljós að úrslit í félagalínu voru vitlaust reiknuð. Það var allt endurreiknað og uppfærð úrslit birt á iceskate.is. Ef endurútreikningurinn hafði í för með sér breytt verðlaunasæti verða nýjum verðlaunahöfum færð verðlaun.

Í flokknum 12 ára og yngri kepptu Amelia Júlía, Amelía Lind, Dagný Día, Linda Maria, Margrét Magdalena og Unnur. Þar fékk Linda gullið og Amelía Lind brons.

Í flokknum 14 ára og yngri kepptu Aníta Rós, Antonía Sif, Inga Dís, Lea Elisabeth, Perla Gabriela og Steinunn Embla. Þar fékk Steinunn silfrið. Í 15 ára og eldri keppti Arney Embla og hlaut hún bronsverðlaun. Í 25 ára og eldri keppti Cheryl og fékk brons. Í skautahlaupi keppti Thamar.

Í flokknum Cubs keppti Viktoría en í þeim flokki eru ekki gefin upp stig heldur veitt þátttökuverðlaun. Í Basic Novice fékk Karlína silfur með 33,67 stig, Elisabeth Rós brons með 27,76 stig og Elsa fékk 26,46 stig og endaði með því í 5. sæti.

Í Intermediate Men keppti Marínó Máni og fékk hann gullið með 27,18 stig. Í Intermediate Women fékk Ágústa gull með 28,11 stig, Una brons með 21,15 stig og Arna Björg fékk 18,94 stig og endaði með því í 5. sæti.

Eftir æsispennandi stutt prógramm hjá Advanced Novice, þar sem Arna Dís leiddi, munaði einungis 1,54 stigum á efstu fimm sætunum. Eftir frjálsa prógrammið endaði Arna Dís með silfur með 83,08 stig, Maxime brons með 78,62 stig og Ermenga Sunna fékk 67,46 stig og endaði með því í 5. sæti.

Með þessum frábæra árangri tryggðu allar í Advanced Novice sér sæti í hæfileikamótun landsliðsins. Óskum við öllum keppendum innilega til hamingju með flottan árangur og hlökkum til að fylgjast áfram með þeim.


Einkatímar

Hver skautari er einstakur og tekur framförum á sínum hraða. Í einkatíma fær skautarinn þjálfarann alveg út af fyrir sig. Þá er hægt að einbeita sér að því sem skautarinn er að vinna með akkúrat núna – hvort sem það er stökk, tækni, snúningar, spor eða keppnisprógram.

Stundum þarf bara smá auka athygli, aðra útskýringu eða fleiri endurtekningar. Einkatímar koma ekki í stað hópæfinga heldur eru viðbót sem veitir einstaklingsmiðaðan stuðning, eykur sjálfstraust og hjálpar skautaranum að þróast á sínum forsendum.

Foreldrar eru hvattir til að ræða við þjálfara ef þeir vilja ráðleggingar um hvort einkatímar henti barninu og hvað best væri að vinna með.


Framundan og þakkir

Grunnpróf fara fram í Laugardal 9.–11. október og verða upplýsingar sendar til þeirra sem verður boðið að taka þau. Hægt er að lesa um grunnpróf hér:
https://fjolnir.is/listskautar/grunnprof/

Helgina 29. október–1. nóvember fer alþjóðlega mótið Northern Lights Trophy fram í Laugardal. Við berum öll ábyrgð á því að manna sjálfboðaliðastöður fyrir þetta mót og hvetjum fólk til að skrá sig, en skráning fer fram hér:
https://www.iceskate.is/2026/09/18/vertu-hluti-af-aevintyrinu-ba-part-of-the-magic/

Einnig hvetjum við alla til að mæta, fylgjast með og hvetja skautarana okkar áfram. Aðgangur er ókeypis, skautarar koma alls staðar að til að keppa og verður þetta frábær skemmtun. Nokkrir keppendur eru þjálfarar í Skautaskólanum og gaman verður fyrir yngri iðkendur að fylgjast með þjálfurunum sínum keppa.

Að lokum viljum við þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til á mótinu um helgina! Því miður tókst ekki að manna allar vaktir en til þess að hægt sé að halda mót verðum við öll að vinna saman. Rekstur svona deildar byggir að miklu leyti á sjálfboðaliðastörfum og gengur þetta ekki nema við hjálpumst öll að.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »