Fjölnir þiggur sæti í Bónus deild kvenna

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur ákveðið að þiggja sæti í Bónus deild kvenna fyrir komandi keppnistímabil.
Undanfarin tvö ár hefur markviss uppbygging átt sér stað á kvennastarfi körfuboltadeildarinnar. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en meistaraflokkur kvenna lék til úrslita um sæti í Bónus deildinni síðastliðið vor og hefur sýnt að liðið á fullt erindi meðal þeirra bestu.
Í kjölfar þeirra breytinga sem orðið hafa á deildarkeppninni undanfarna daga bauðst Fjölni sæti í efstu deild og hefur félagið ákveðið að þiggja það. Deildin lítur á þetta sem mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu kvennakörfunnar innan félagsins.
Fram undan er spennandi verkefni þar sem leikmenn, þjálfarar, sjálfboðaliðar og stuðningsfólk munu sameinast um að gera liðið samkeppnishæft í deild þeirra bestu. Nú er tækifærið til að fylkja sér á bak við liðið og styðja við áframhaldandi framþróun kvennakörfunnar í Grafarvogi.
Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segist afar stoltur af þeirri vegferð sem liðið hefur verið á síðustu tvö ár. „Við höfum lagt mikla áherslu á markvissa uppbyggingu á kvennastarfinu og það er afar ánægjulegt að sjá þá vinnu skila sér. Ég er gríðarlega stoltur af þeim árangri sem liðið hefur náð á þessum tíma og hef fulla trú á því að stelpurnar standi sig vel í Bónus deildinni. Það sem gerir þetta enn ánægjulegra er að kjarninn í liðinu er skipaður uppöldum Fjölnisstelpum sem hafa unnið sér inn þetta tækifæri með dugnaði og metnaði. Þessi áfangi hefði þó aldrei náðst án þess öfluga samstarfs og stuðnings sem við höfum notið frá öllum þeim fjölmörgu sem koma að starfinu utan vallar. Það er ómetanlegt að hafa svona sterkt bakland og fyrir það erum við afar þakklát.“
Körfuknattleiksdeild Fjölnis hlakkar til komandi tímabils og þess að sjá liðið mæta til leiks í Bónus deild kvenna með stuðning Fjölnisfjölskyldunnar að baki.
Aðrar fréttir af deildinni
Fannar Hafþórsson framlengir við Fjölni
28/07/2026






