Fréttabréf 31. ágúst 2026 – Íshokkídeild Fjölnis.

Kæru iðkendur, foreldrar og aðrir velunnarar Íshokkídeildar Fjölnis,
Nýtt tímabil og fréttbréf fer í loftið.
Nú er nýtt og spennandi íshokkítímabil að hefjast og sannarlega skemmtilegur vetur framundan. Síðustu vikur hefur verið í óvenju mörg horn að líta í starfi deildarinnar enda margt í gangi. Hæst ber auðvitað að við fengum nýjan yfirþjálfara, Kris, sem hefur verið að nota síðustu vikur til að kynnast starfseminni, félaginu og krökkunum okkar.
Til að miðla upplýsingum um allt það helsta sem er að gerast svo þið getið verið upplýst, mun íshokkídeildin senda frá sér fréttabréf með reglulegum hætti hér á þessum vettvangi. Nú í september kemur það vikulega – á mánudögum – en svo verður útgáfan mánaðarlega, þó við munum sjálfsagt leyfa okkur að skjóta inn aukalega öðru hverju.
Við ætlum einnig líka að vera duglega að segja áfram frá starfinu á samfélagsmiðlum og auglýsa þar, enda svo fjölmargt skemmtilegt að gerast hjá okkur.
Minnum þó að nákvæmari upplýsingar í hverjum flokki verða gegnum Abler og við hvetjum því alla til að drífa í skráningum svo upplýsingarnar þar verði aðgengilegar.
Kærar þakkir fyrir þolinmæðina
Nú í ágúst hefur Kris verið að stíga sín fyrstu skref hjá félaginu okkar. Það er margt fyrir að hann að læra og stilla upp. Þess vegna höfum við vísvitandi haft æfingafyrirkomulagið með óvenjulegum hætti fyrstu vikurnar. Mjög mikilvægt er að Kris kynnist starfseminni, félaginu, iðkendum og öllu hinu, þannig að hann geti sem best stillt upp starfinu og hvaða hópar æfa saman hverju sinni ásamt því að meta hve margar þjálfara þarf hverju sinni. Kris verður yfirþjálfari allra hópa frá U12 og verður í hringiðu flestra æfinga. Eðlilega þarf hann gott fólk með sér og hann þarf auðvitað tíma til meta þetta allt.
Við þökkum ykkur öllum fyrir þolinmæðina og skilninginn í kringum þetta allt. Nú í vikunni gefum við svo út æfingatöflu vetrarins og kynnum þjálfarana sem verða með Kris í hverjum flokki. Jafnframt er gaman að segja frá því að mikil áhersla verður á markamannsþjálfun í vetur þar sem slík þjálfun verður inn í æfingatöflu deildarinnar eins og önnur þjálfun.
Foreldrafundir framundan og fjör fyrir þau yngstu á sunnudag
Í lok þessarar viku og í þeirri næstu verðum við með foreldrafundi fyrir allra flokka í barna- og unglingastarfinu með þeirri undantekningu að við geymum þó þau allra yngstu aðeins meira inn í haustið. Á fundunum kynnum við þjálfara flokksins, segjum frá starfinu, veljum í foreldraráð og förum yfir ýmis praktísk mál fyrir veturinn. Fylgist með þegar þeir verða boðaðir.
Á sunnudag verðum við svo með opna æfingu fyrir þau yngstu þar sem allir eru velkomnir að prófa. Endilega kíkið á auglýsingar um viðburðinn og verið dugleg að deila og bjóða.
Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026






