Reir Verk nýjasti samstarfsaðili knattspyrnudeildar Fjölnis
Reir Verk nýjasti samstarfsaðili knattspyrnudeildar Fjölnis

Knattspyrnudeild Fjölnir hefur gengið frá samstarfssamningi við Reir Verk sem verður nýjasti samstarfsaðili deildarinnar út yfirstandandi tímabil. Þá mun merki Reir Verks prýða treyjur meistaraflokka karla og kvenna hjá félaginu út tímabilið.
Samstarfið er mikilvæg viðbót við þann öfluga hóp samstarfsaðila sem styður við starf knattspyrnudeildarinnar og áframhaldandi uppbyggingu hennar. Knattspyrnudeild Fjölnis leggur mikla áherslu á öflugt samstarf við fyrirtæki og einstaklinga sem vilja styðja við starf félagsins og samfélagið í Grafarvogi. Með samstarfinu við Reir Verk styrkist sá grunnur enn frekar.
Viðar Árnason, formaður knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar samstarfinu: „Það er frábært þegar Fjölnisfólk vill styðja við starf deildarinnar og þá góðu vinnu sem félagið vill standa fyrir. Stuðningur Reir Verks er staðfesting á því að Fjölnir heldur áfram að byggja upp öflugt starf bæði innan sem utan vallar.“
Páll Edwald, yfirlögfræðingur hjá Reir Verk og uppalinn Fjölnismaður, segist einnig ánægður með samstarfið: „Það er mikill heiður fyrir mig að geta stutt við uppeldisfélagið mitt fyrir hönd Reir Verks. Ég er spenntur að leggja mitt af mörkum í þeirri uppbyggingu sem er fram undan á næstu árum og hjálpa til við að koma Fjölni upp í Bestu deildina þar sem félagið á heima.“
Áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Tvö silfur til íshokkídeildar Fjölnis í U14 Íslandsmótinu
Tvö silfur til íshokkídeildar Fjölnis í U14 Íslandsmótinu

Lokahelgi Íslandsmóts U14 í íshokkí fór fram um þarsíðustu helgi þar sem lið Fjölnis, Björninn AAA og Ísbjörninn AA, luku keppnistímabilinu með glæsilegum árangri. Bæði lið enduðu mótið í 2. sæti og tryggðu sér silfurverðlaun eftir frammistöðu sem liðunum og íshokkídeild Fjölnis má vera afar stolt af.
Liðin hafa tekið miklum framförum yfir tímabilið og það hefur verið gaman að fylgjast með leikmönnum vaxa og dafna bæði sem einstaklingar og liðsheild. Í lokaumferðunum mættu þau sterkum andstæðingum og mörgum krefjandi leikjum, en sýndu á sama tíma mikla seiglu, baráttuanda og aukna færni þegar mest á reyndi.
Árangurinn er frábær uppskera eftir veturinn og sýnir vel það öfluga starf sem unnið er innan íshokkídeildar Fjölnis.
Við óskum öllum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með silfurverðlaunin og glæsilegt tímabil. Íshokkíframtíðin hjá Fjölni er sannarlega björt.
Aðrar fréttir af deildinni
Aðalfundur Fjölnis
16/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
15/04/2026
Stelpurnar í U16 fengu silfur!
13/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára
08/04/2026
Framboð svara um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis fyrir borgarstjórnarkosningar
Framboð svara um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis fyrir borgarstjórnarkosningar

Knattspyrnudeild Fjölnis sendi nýverið fyrirspurn á öll framboð sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara um miðjan maí, þar sem óskað var eftir afstöðu þeirra til aðstöðumála deildarinnar.
Í erindinu kom fram að deildin standi frammi fyrir verulegum aðstöðuvanda sem hafi hamlandi áhrif á starfsemi, iðkendur og áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í Grafarvogi. Þá var bent á að mikil fjölgun íbúa á svæðinu á næstu árum, meðal annars í Keldnalandi og Gufunesi, muni auka enn frekar álag á núverandi aðstöðu.
Framboðin voru beðin um að svara fjórum spurningum:
- Hvort þau hefðu kynnt sér aðstöðumálin
- Hvernig þau hyggðust bæta aðstöðuna
- Hvaða tímarammi væri fyrirhugaður
- Hvort þau myndu setja málið í forgang á næsta kjörtímabili
Svör framboða bárust og eru birt hér að neðan óbreytt:
Vinstrið
Fulltrúar Vinstrisins þekkja ágætlega til aðstöðumála Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi, sem er mikilvæg stofnun í hverfinu, bæði út frá lýðheilsu og forvarnarsjónarmiðum, en ekki síður til að stuðla að hverfisanda og samstöðu. Vinstrið leggur mikla áherslu á að efla hverfafélög á borð við Fjölni.
Til skamms tíma lagði Fjölnir áherslu á uppbyggingu vallarsvæðis í Dalhúsum og studdi Reykjavíkurborg við uppbyggingu þar með ýmsum hætti. Í seinni tíð hefur áherslan færst yfir á Egilshallarsvæðið, þar sem félagið sér fyrir sér framtíðaraðsetur fótboltans og fleiri greina. Þessi stefnubreyting kallar á kostnaðarsamar framkvæmdir af hálfu borgarinnar sem væri ábyrgðarlaust að lofa með ákveðnum ártölum að svo komnu máli. Hugmyndir fasteignafélagsins Reita, sem jafnframt er eigandi Egilshallar, um uppbyggingu íþróttasvæða fyrir Fjölni í skiptum fyrir byggingarland eru allrar athygli verðar en eru alltof skammt á veg komnar til að einu eða neinu verði lofað á einn veg eða annan.
Samfylkingin
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Samfylkingin er upplýst um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis sem eru ófullnægjandi. Heiða Björg Borgarstjóri Samfylkingar skipaði einmitt starfshóp til að meta þarfir og tækifæri ti að mæta þörfum og efla starf þessa stækkandi félags. Mikil fjölgun iðkenda sem er jákvæð og borgin á að styðja við hana með uppbyggingu í takt við þarfir félagsins. Til skoðunar hefur verið aukin uppbygging við Egilshöll og úrbætur á aðstöðu þar fyrir fótboltann væru mjög góður kostur að okkar mati þannig að deildin væri sameinuð á einn stað. Það er hinsvegar knattspyrnudeildar Fjölnis sem hefur næsta leik og við bíðum þess að fá niðurstöðu starfshópsins sem samanstendur af fulltrúum Fjölnis, íþróttabandalags Reykjavíkur og Reykjavíkurborg. Frambjóðendur eiga líka bókaða heimsókn til Fjölnis núna í kosningabaráttunni.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Verið er að kortleggja hverjar þarfir Ungmennafélagsins Fjölnis eru þegar kemur að aðstöðu knattspyrnudeildar félagsins, í Dalhúsum og í/við Egilshöll. Væntanleg er skýrsla um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis sem mun leggja fram tillögur sem Fjölnir, Íþróttabandalag reykjavíkur og reykjavíkurborg telja bestu leiðina. Samfylkingin vil vinna þannig með grasrót á hverjum stað og styrkja aðstöðu til þess að efla deildina enn frekar, annars vegar til skamms tíma og hins vegar til frambúðar
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Þegar niðurstaðan um hvað við ætlum að gera er klár þá getum við sett fram raunhæfa tímaáætlun en í samtölum okkar við Fjölni og eigendur Egilshallar þá ættum við að geta framkvæmt hratt.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Eitt af markmiðum Samfylkingarinnar er að börn og ungmenni geti stundað íþróttir óháð efnahag eða félagslegri stöðu. Það er gleðilegt að iðkendum er að fjölga hjá Fjölni og að sjálfsögðu viljum við styðja við að svo verði áfram. Framundan er mikil uppbygging i kringum félagið sem mun krefjast þess að við styrkjum aðstöðu og starfsemi þess. Knattspyrnudeildar sem og annarra deilda.
Framsóknarflokkurinn
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já við höfum átt í góðum samskiptum við Fjölni og þekkjum til mála. Dalhúsavöllur er orðinn illa farinn og afar brýnt að bæta úr. Þar eru æfingavellir sem einnig eru nánast ónothæfir. Gervigrasvöllurinn við Egilshöll er einnig farinn að láta á sjá en hann er í eigu Heima. Þar þarf að hefja samtal við Fjölni um hvernig félagið vill horfa á uppbyggingu íþróttamannvirkja í Grafarvogi til framtíðar. Framsókn reiðubúin til þess strax í byrjun næsta kjörtímabils.
Flokkur fólksins
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já, það liggur fyrir að núverandi aðstaða knattspyrnudeildar félagsins er ófullnægjandi og mætir þörfum félagsins vegna aukins fjölda iðkenda illa.
Flokkur fólkins styður að Fjölnir eins og önnur íþróttafélög víðs vegar um borgina hafði góða aðstöðu sem þjónar þörfum hverfanna. Ljóst er að auka verður framlög til þessa málaflokks. Til þess að svo megi verða þarf að forgangsraða fjármunum borgarinnar eins og við höfum lagt til í þágu íbúanna í stað alls kyns gæluverkefna.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Það er öllum ljóst að ný íþróttamannvirki verða ekki skipulögð og byggð á nokkrum vikum eða mánuðum. Það er forgangsröðin sem skiptir öllu máli og henni þarf að breyta.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Já, úrbætur á aðstöðu Fjölnis og annarra íþróttafélaga verða í algjörum forgangi á næsta kjörtímabili. Starf íþróttafélagnanna er eitt af því mikilvægast í þágu þroska og heilbrigði barnanna í borginni.
Góðan daginn framboðið
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Við höfum ekki náð að kynna okkur það náið en við þekkjum vel til félagsins enda er oddvitinn og nr. 3 á listanum búsettir í Grafarvognum. Við vitum hins vegar að aðstaða ykkar er líklega sú lakasta á höfuðborgarsvæðinu.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Fyrsta skrefið er að koma í heimsókn til ykkar og fara yfir stöðuna með ykkur og finna leiðir til úrbóta. Í stefnuskrá okkar er m.a. sagt um íþróttir: Ástundun í þrótta er ein besta leiðin að stunda heilbrigt líferni. Oft er íþróttafélag í hverfinu stærsti þátturinn í að sameina hverfið. Félagslegi þátturinn er mjög mikilvægur, sérstaklega hjá unga fólkinu. Við leggjum því mikið upp úr öflugu íþróttastarfi og viljum leggja okkar á vogarskálarnar til efla það.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Það fer dálítið eftir umfanginu en ljóst er að úrbóta er þörf fljótt.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Þeir sem eru í framboði fyrir Góðan daginn eru upp til hópa fólk sem stundað hefur íþróttir og þekkir það vel að aðstaðan skiptir máli. Því eigum við mjög auðvelt að setja okkur í ykkar spor og leggja okkar á vogarskálarnar þannig að þið fáið úrbætur á aðstöðunni.
Okkar borg
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Við erum nýtt framboð og höfum ekki kynnt okkur málið sérstaklega. Hins vegar er ljóst að uppbygging í hverfum kallar á að innviðir séu metnir heildstætt.
Hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Við teljum mikilvægt að taka slíkar ákvarðanir á grundvelli heildarmats þar sem þörf, forgangsröðun og fjárhagslegt svigrúm eru skoðuð saman. Íþróttaaðstaða er hluti af þeirri heild.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum?
Tímasetningar ráðast af niðurstöðu slíkrar greiningar og fjárhagsstöðu borgarinnar.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang?
Á meðan við höfum ekki fulla yfirsýn yfir fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar teljum við óábyrgt að gefa loforð um einstök verkefni. Við leggjum hins vegar áherslu á ábyrga forgangsröðun þar sem þarfir barna og ungmenna verða metnar í samhengi við aðra grunninnviði.
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á öflugt íþróttastarf í Reykjavík og að öllum börnum verði tryggð jöfn tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar í borginni. Brýnt er að forgangsraða fjárveitingum til íþrótta – og æskulýðsmála til að styðja við lykilhlutverk íþrótta og tómstunda í uppeldi, forvörnum, lýðheilsu og félagsþroska barna og ungmenna.
Það er ljóst að framtíðaruppbygging í Grafarvogi, meðal annars í Keldnalandi og Gufunesi, mun auka álag á núverandi innviði. Við teljum að slík uppbygging verði að ganga hönd í hönd við uppbyggingu þjónustu og aðstöðu, þar á meðal íþróttamannvirkja.
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já. Við höfum átt tvo mjög upplýsandi og góða fundi með fulltrúum Fjölnis þar sem farið var yfir stöðuna, áskoranir og framtíðarþarfir félagsins. Sú vinna hefur gefið okkur skýra mynd af þeim aðstöðuvanda sem deildin stendur frammi fyrir.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Á fyrstu 100 dögunum eftir að við tökum við stjórn borgarinnar ætlum við að fara í heildstæða kortlagningu á aðstöðumálum íþróttafélaga og fjárframlögum til þeirra. Markmiðið er að forgangsraða verkefnum á faglega og tryggja jafnræði milli félaga.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Án heildstæðrar kortlagningar á stöðunni teljum við ekki rétt að setja fram nákvæman tímaramma, það væri einfaldlega ekki trúverðugt. Við höfum hins vegar sett fram skýrar og tímasettar aðgerðir í aðstöðumálum íþróttafélaga:
- Innan 100 daga: Heildstæð kortlagning á aðstöðu og fjárframlögum, sem leggur grunn að forgangsröðun.
- Innan 12 mánaða: Tímasett aðgerðaáætlun um úrbætur, byggð á þörf og stöðu hvers félags.
- Á kjörtímabilinu: Markviss uppbygging í áföngum, þar sem brýnustu verkefnin fara fremst í forgangsröðunina.
Markmiðið er að fara hratt af stað en gera það rétt. Það er eina leiðin til að tryggja að úrbætur verði bæði markvissar og vel unnar.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Við ætlum setja íþrótta- og æskulýðsmál í borginni í forgang, það er alveg skýrt. Forgangsröðun viðhalds- og uppbyggingarverkefna liggur ekki fyrir en við skiljum vanda félagsins og munum hafa vinnu starfshópsins sem nú er að kortleggja aðstöðumál Fjölnis til hliðsjónar í þeirri forgangsröðun.
Við leggjum áherslu á áframhaldandi samtal og samstarf við ykkur um þessi mikilvægu mál.
Viðreisn
Takk fyrir að hafa samband. Við kunnum vel að meta það starf sem þið vinnið og mikilvægi þess fyrir hverfið. Okkur finnst líka mikilvægt að eiga gott samtal við ykkur um það sem betur má fara og hvernig borgin getur stutt betur við starfið og viljum gjarnan eiga það samtal eftir kosningar. Afstaða okkar er sú að Reykjavík þarf að ná betri tökum á rekstrinum svo hægt sé að standa við það sem hefur verið lofað. Það gengur ekki til lengdar að gera áætlanir eða samninga sem síðan reynist erfitt að fylgja eftir. Við viljum breyta því og setja meiri festu í fjármálin. Við teljum að það þurfi að færa meiri fjármuni út í hverfin. Þar eru íþróttamannvirki og íþróttastarf barna mjög ofarlega hjá okkur. Við viljum sjá minna fara í yfirbyggingu og meira í það sem skiptir fólk máli í daglegu lífi, s.s. minna ráðhús og meiri hverfi.
Sósíalistaflokkur Íslands
Sósíalistaflokkurinn hefur ekki sett sér sérstaka stefnu né aðgerðaplan í aðstöðu Fjölnis sérstaklega. Við myndum gjarnan vilja vita meira um ykkar kringumstæður. Við höfum einblínt á að tryggja jafnt aðgengi barna af mismunandi bakgrunni, hvort sem er efnahagslegum eða þjóðernis, að íþróttum og tómstund enda þátttaka í frístundastarfi af þeirri gerð gríðarlega mikilvæg fyrir andlega, líkamlega og samfélagslega heilsu. Að því sögðu þá þarf svo sannarlega að huga að innviðum hverfanna með aukinni þéttingu og áformum um heil ný hverfi eins og þið nefnið réttilega á Keldum og í Gufunesi. Við Sósíalistar teljum lykilinn að því að byggja þá innviði sem þörf er á að borgin geri það beint og sjálf, að við förum betur með skattfé borgarbúa með því að hætta útvistun og þannig búum við til aukið svigrúm fyrir ýmis konar stuðning við félags- og íþróttastarf. Við erum jafnframt mjög meðvituð um oft þröngan stakk sveitarfélaga og þess vegna viljum við þrýsta á Alþingi að leggja útsvar á fjármagnstekjur, en slík breyting myndi skila mörgum milljörðum til borgarinnar á hverju ári og búa til miklu traustari grundvöll til framtíðar hvað varðar stuðning og fjármögnun ýmissa verkefna. Þá er einnig mikilvægt að það komi fram að Sósíalistar leggja mikið upp úr því að fá álit og þátttöku íbúa á verkefnin sem varða þau beint, en þá ekki síður íþróttafélaga eins og í þessu tilviki. Móta þarf stefnu og áform með ykkar aðkomu, því þið vitið best hver staðan er í ykkar hverfi og starfi.
Miðflokkurinn
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já Miðflokkurinn hefur kynnt sér aðstöðumál Fjölnis og annara íþróttafélaga í Reykjavík. Það er augljóst að Reykjavíkurborg hefur sýnt íþróttafélögunum í Reykjavík óvild og beitt valdahroka í samskiptum við þau. Það er algjörlega óviðunandi. Það þarf að tryggja samtal borgarinnar, skóla og frístundaheimila og tengja þau við íþróttafélögin, en það samtal er ekkert í dag. Í tengslum við Fjölni þá er núverandi ástand á aðstöðu félagsins, sérstaklega í knattspyrnunni, ekki gott. Það þarf að endurskipuleggja framtíðar félags- og æfingaaðstöðu fótboltans hjá Fjölni og tryggja að Fjölnir byggi upp sína starfsemi til framtíðar í sátt við félagið og Reykjavíkurborg. Við í Miðflokknum erum tilbúin í það samtal.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Endurskipulag á framtíðar félagssvæði félagsins í samstafi við Fjölni. Það þarf að tryggja að Fjölnir njóti sambærilegrar aðstöðu og önnur félög í borginni.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Það verður farið strax í þetta samtal eftir kosningar, ef Miðflokkurinn kemst í meirihluta. Markmiðið er að ná utan um þær innviðaskuldir sem Reykjavíkurborg hefur vanefnt. Núverandi innviðaskuld við íþróttafélögin (í samningum sem nú þegar hefur samið við íþróttafélögin um) er sennilega yfir 20 milljarðar, fyrir utan viðhaldsskuld eldri mannvirkja og loforð um þjóðarleikvanga.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Já. Miðflokkurinn hefur sett það í forgang að standa við gerða samninga við félögin og taka upp samtal við íþróttafélögin um framtíðar uppbyggingu á félagssvæðum þeirra.
Píratar
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Píratar hafa kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Píratar hafa á síðasta kjörtímabili lagt áherslu á endurbætur á íþróttamannvirkjum í Reykjavík, þar á meðal hjá Fjölni. Við teljum mikilvægt að ungmenni hafi fleiri og betri tækifæri til að verja frítíma sínum á öruggum stöðum og þar á meðal við íþróttaiðkun.
Við leggjum áherslu á að úrbætur verði unnar í nánu samráði við iðkendur, félagið sjálft og íbúa hverfisins. Hverfislyftan er ný útfærsla á hverfislýðræði þar sem leiðin milli íbúa og Reykjavíkurborgar styttist. Píratar munu horfa til þeirra áherslna sem hafa verið settar fram í samstarfi milli borgarinnar og Fjölnis hingað til, meðal annars með yfirlýsingu borgarstjórnar í nóvember 2020 og halda áfram samtali um næstu skref.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Píratar myndu vilja hefja vinnuna snemma á kjörtímabilinu. Nánari tímasetning og forgangsröðun myndi ráðast í samráði við hverfið, íbúa og viðkomandi félög.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Fyrir liggur fyrir að knattspyrnuaðstaða Fjlönis var sett í forgang með tillögu borgarstjóra í nóvember 2020, þar sem meðal annars var talið mikilvægt að rýna aðstöðu við Dalshús og Egilshöll. Píratar vilja afla frekari upplýsinga um stöðu mála og vinna áfram að því að úrbætur verði settar í forgang í góðu samráði við félagið og hverfið, með það að leiðarljósi að styrkja
íþróttastarf og aðstöðu.
Aðrar fréttir af deildinni
Aðalfundur Fjölnis 2026: Jákvæð rekstrarstaða og heiðursviðurkenningar til sjálfboðaliða
Aðalfundur Fjölnis 2026: Jákvæð rekstrarstaða og heiðursviðurkenningar til sjálfboðaliða

Aðalfundur Fjölnis fór fram sl. þriðjudag 28. apríl, í Miðjunni, félagsrými Fjölnis í Egilshöll.
Formaður aðalstjórnar fór yfir það helsta í starfi félagsins á árinu 2025 og framkvæmdastjóri kynnti ársreikning þess. Annað árið í röð er hagnaður af rekstri og því óhætt að segja að bjartar horfur eru í fjármálum félagsins. Félagið í heild skilaði 40,9 m.kr. rekstrarafgangi á árinu 2025 samanborið við 6,3 m.kr. afgang á árinu 2024.
Árskýrslu félagsins má sjá hér.
Aðalstjórn lagði fram breytingar á lögum félagsins. Nokkur umræða skapaðist um ýmis ákvæði laganna en framlagðar breytingatillögur voru að mestu samþykktar. Nýsamþykkt lög félagsins verða birt hér á vefsíðunni þegar þau taka gildi með staðfestingu stjórnar ÍBR og framkvæmdastjórar ÍSÍ.
Líkt og venjan er á aðalfundi félagsins voru veittar heiðursviðurkenningar fyrir óeigingjarnt starf sjálfboðaliða fyrir félagið. Heiðursviðurkenningar hlutu:
Silfurmerki:
- Sigurður Einar Guðbrandsson (knattspyrnudeild)
- Sigríður Sigurðardóttir (tennisdeild)
- Alana Elín Steinarsdóttir (tennisdeild)
- Kristín Fossdal (íshokkídeild)
- Hafdís Baldursdóttir (íshokkídeild)
- Arnar B. Sigurðsson (körfuknattleiksdeild)
Gullmerki:
- Þorsteinn Yngvi Guðmundsson (karatedeild)
- Róbert Línberg Runólfsson (handknattleiksdeild)
- Halldór Torfi Pedersen (handknattleiksdeild)
- Magnús Þór Arnarson (handknattleiksdeild)
- Rakel Hákonardóttir (listskautadeild)
- Sveinn Þorgeirsson (handknattleiksdeild)
- Gunnar Jónatansson (aðalstjórn)
- Bogi Nils Bogason (aðalstjórn)
Ný stjórn var kjörin líkt og lög gera ráð fyrir. Nýr í aðalstjórn er Eyþór Jónsson en Gunnar Bjarnason og Inga Björk Guðmundsdóttir fengu áframhaldandi kosningu í aðalstjórn. Bjarni Sigurðsson og Guðlaugu Björk Karlsdóttir gáfu ekki kost á sér sem áframhaldandi varamenn en í stað þeirra koma inn Álfheiður Sif Jónasdóttir og Sigurður Einar Guðbrandsson. Þá var Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir endurkjörin sem formaður aðalstjórnar.
Sjá upplýsingar um aðalstjórnstjórn hér.
Ávarp flutti Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ og afhenti Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur, formanni Fjölnis, gullmerki UMFÍ.
Gunnar Valur framlengir sem yfirþjálfari handknattleiksdeildar Fjölnis
Gunnar Valur framlengir sem yfirþjálfari handknattleiksdeildar Fjölnis

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur framlengt samning við Gunnar Val Arason um yfirþjálfarastöðu deildarinnar til næstu fjögurra ára.
Gunnar Valur hefur gegnt stöðu yfirþjálfara deildarinnar síðastliðin ár og verið í lykilhlutverki í uppbyggingu starfsins. Hann hefur reynst deildinni afar verðmætur starfskraftur og sinnt starfinu af mikilli fagmennsku og kostgæfni.
Í starfi sínu hefur Gunnar lagt áherslu á markvissa uppbyggingu yngri flokka, faglegt þjálfunarumhverfi og skýra stefnu í þróun leikmanna. Með áframhaldandi samstarfi við Gunnar er handknattleiksdeild Fjölnis að styrkja enn frekar þann grunn sem byggður hefur verið upp á síðustu árum.
Róbert Línberg Runólfsson, formaður barna- og unglingaráðs handknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar framlengingunni: „Sem formaður barna- og unglingaráðs vil ég óska deildinni til hamingju með að fá að hafa Gunnar áfram hjá okkur í deildinni. Ég tel það mikinn happafeng fyrir deildina að halda áfram samstarfi við hann.“
Gunnar Valur segist sjálfur ánægður með að halda áfram starfi sínu hjá félaginu: „Ég er mjög glaður með að gera nýjan samning sem yfirþjálfari. Ég hlakka til að halda áfram að efla unga og efnilega leikmenn félagsins,“ segir Gunnar.
Aðrar fréttir af deildinni
Sara Kristín framlengir við Fjölni
11/05/2026
Aðalsteinn Örn framlengir við Fjölni
25/04/2026
Aðalfundur Fjölnis
16/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
15/04/2026
Verðlaun og viðurkenningar veitt á lokahófi körfuknattleiksdeildar eftir góðan vetur
Verðlaun og viðurkenningar veitt á lokahófi körfuknattleiksdeildar eftir góðan vetur

Á lokahófinu körfuknattleiksdeildar voru veittar viðurkenningar og verðlaun.
Veitt voru eftirfarandi verðlaun fyrir meistaraflokka karla og kvenna:
Mestu framfarir 2025–26: Katla Lind Guðjónsdóttir og Garðar Kjartan Norðfjörð
Bestu varnarmenn 2025–26: Aðalheiður María Davíðsdóttir og Guðlaugur Heiðar Davíðsson
Mikilvægasti leikmaður 2025–26: Leilani Kapinus, Sigvaldi Eggertsson og Vikar Máni Steffensen
Einnig voru eftirfarandi sjálfboðaliðar heiðraðir á lokahófinu:
Heimir, Alexíus og Jökull voru heiðraðir fyrir ótrúlegt framlag í vetur við ritaraborð og í dómgæslu á yngriflokkaleikjum.
Linda Bergdís var heiðruð fyrir aðstoð við starfið og skemmtilega myndbandsvinnu fyrir yngriflokka.
Soffía Auður var heiðruð fyrir störf sín í stjórn félagsins og framlag til starfs deildarinnar.
Ásgerður Sófusdóttir var heiðruð fyrir störf sín í barna- og unglingaráði.
Berglind Hreiðarsdóttir var heiðruð fyrir störf sín innan félagsins og í meistaraflokksráði kvenna.
Á lokahófinu var Toggi, markaðsstjóri Fjölnis, með myndavélina á lofti og tók myndir af verðlaunahöfum fyrir okkur.
Stjórn félagsins þakkar kærlega fyrir skemmtilegan vetur og hlakkar til að hefja leik á ný í haust.
Ótrúlega flottur hópur af fólki og strax komin mikil tilhlökkun fyrir næsta tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
15/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára
08/04/2026
Aðalsteinn Örn framlengir við Fjölni
Aðalsteinn Örn framlengir við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni til næstu tveggja ára.
Aðalsteinn hefur verið einn af lykilmönnum liðsin og átti frábært síðasta tímabil þar sem hann var valinn handboltamaður ársins hjá Fjölni árið 2025. Aðalsteinn, sem er uppalinn Fjölnismaður, kom aftur til Fjölnis sumarið 2024 eftir tveggja ára veru hjá Stjörnunni og hefur síðan verið einn af máttarstólpum liðsins bæði innan vallar sem utan. Á liðinni leiktíð vakti hann mikla athygli fyrir frammistöðu sína í Grill 66 deildinni þar sem hann varð markakóngur deildarinnar. Samhliða því hefur hann einnig lagt sitt af mörkum til félagsins með því að þjálfa yngri flokka við mjög góðan orðstír.
Meistaraflokksráð karla fagnar því að Aðalsteinn hafi ákveðið að halda áfram með liðinu. „Alli er einn af máttarstólpum liðsins og hefur sýnt það bæði á æfingum og í leik að hann býr yfir þeim gæðum og karakter sem þarf til að leiða liðið áfram. Við erum afar ánægðir með að hann haldi áfram í Fjölni og hlökkum til komandi tímabils,“ segja Sveinn Þorgeirsson og Daníel Rúnarsson fyrir hönd meistaraflokksráðs karla.
Aðalsteinn segist sjálfur spenntur fyrir framhaldinu hjá félaginu: „Ég er einstaklega stoltur að halda áfram að vera partur af þeirri vegferð og uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Fjölni,“ segir Aðalsteinn.
Markmið liðsins er skýrt fyrir komandi tímabil þar sem stefnan er sett á að berjast um sæti í efstu deild. Með áframhaldandi framlagi Aðalsteins styrkist liðið enn frekar í þeirri vegferð.
Aðrar fréttir af deildinni
Sara Kristín framlengir við Fjölni
11/05/2026
Aðalsteinn Örn framlengir við Fjölni
25/04/2026
Aðalfundur Fjölnis
16/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
15/04/2026
Halldór Boði og Oliver Máni valdnir í lokahóp hæfileikamótunar KSÍ
Halldór Boði og Oliver Máni valdnir í lokahóp hæfileikamótunar KSÍ

Tveir fulltrúar Fjölnis í lokahóp hæfileikamótunar KSÍ drengja
Halldór Boði Jónsson og Oliver Máni Bergdal Pálsson hafa verið valdir í lokahóp hæfileikamótunar Knattspyrnusamband Íslands. Valið er frábær viðurkenning á þeirri vinnu og framförum sem þeir hafa sýnt.
Hæfileikamótun Knattspyrnusamband Íslands og N1 er mikilvægt þróunarverkefni þar sem ungir og efnilegir knattspyrnumenn víðs vegar að af landinu koma saman til æfinga. Markmið verkefnisins er að fylgjast með stærri hópi leikmanna en áður, kynna yngri leikmenn fyrr inn í landsliðsumhverfið og undirbúa þá betur fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar síðar meir.
Upphaflega voru átta Fjölnisstrákar valdir í æfingahópa verkefnisins og erum við afar stolt af öllum hópnum:
Benedikt Nói Valsson
Benjamín Aron Árnason
Björn Fannar Bergsson
Grétar Hrafn Jakobsson
Gylfi Freyr Sveinsson
Halldór Boði Jónsson
Oliver Máni Bergdal Pálsson
Walter Robert Clarkson
Vel gert strákar, við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt af ykkur!
Aðrar fréttir af deildinni
Aníta Björg Sölvadóttir semur við Fjölni
Aníta Björg Sölvadóttir semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Anítu Björgu Sölvadóttur.
Aníta er uppalin Fjölniskona sem lék með félaginu upp alla yngri flokka áður en hún hélt til KR. Hún sneri aftur í Fjölni síðasta sumar og hefur síðan þá verið mikilvægur hluti af uppbyggingu liðsins.
Aníta er kraftmikill sóknarleikmaður með góða tækni og næmt auga fyrir marki. Hún getur bæði skorað sjálf og lagt upp mörk fyrir samherja sína og hefur sýnt í vetur að hún ætlar sér stórt hlutverk í liðinu á komandi tímabili.
Vesko, þjálfari liðsins, er ánægður með að hafa tryggt þjónustu Anítu áfram:
„Ég er mjög ánægður að við höfum tryggt Anítu næstu tvö árin. Hún hefur tekið stór framförum í vetur og sýnt að hún er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hún getur bæði skorað mörk og lagt upp fyrir aðra og þannig hjálpað liðinu að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur næstu tímabil. Hún er með sterkan karakter en á sama tíma mjög metnaðarfull til að bæta sig, sem gerir það mjög skemmtilegt að vinna með henni og er hún frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur.“
Aníta sjálf er spennt fyrir komandi sumri:
„Ég er mjög spennt fyrir sumrinu. Við ætlum okkur upp í Lengjudeildina og ég hvet alla til að mæta á völlinn og styðja okkur í sumar. Við erum með frábæran hóp og lofum alvöru stemningu!“
Við hjá Fjölni erum afar ánægð að Aníta verði áfram í gulu og hlökkum til að fylgjast með henni á vellinum næstu tvö árin.
Aðrar fréttir af deildinni
Kristalssýning listskautadeildar Fjölnis - sala hafin
Kristalssýning listskautadeildar Fjölnis

Listskautadeild Fjölnis heldur sína árlegu vorsýningu laugardaginn 9. maí. Í ár er þema Kristalssýningarinnar sirkus, þar sem iðkendur deildarinnar stíga á ísinn í litríkum og skemmtilegum atriðum.
Tvær sýningar verða á dagskrá:
Kl. 17:30 – Skautaskóli og hópar 1–4
Kl. 19:30 – Hópar 1–5
Miðaverð:
• 2.500 kr.
• 1.500 kr. fyrir börn 6–12 ára
• Frítt fyrir 5 ára og yngri
Hægt er að kaupa miða í Skautaskólanum á laugardögum og einnig á sýningardag.
Sýningarnar eru stærsta fjáröflun listskautadeildarinnar, þannig að við hvetjum alla til að mæta, njóta sýningarinnar og styðja við starfið. Mætið tímanlega og svöng! 🎪⛸️







































































