Hæfi – þjónusta fyrir iðkendur Fjölnis

Fjölnir og Hæfi endurhæfingarstöð vinna saman að því að styðja við heilsu og vellíðan iðkenda félagsins. Samstarfið auðveldar iðkendum aðgang að fagfólki vegna meiðsla, endurhæfingar og annarra þátta sem tengjast íþróttaiðkun.
Hæfi er staðsett í Egilshöll, Fossaleyni 1, í næsta nágrenni við æfingaaðstöðu Fjölnis.
Meiðsli og endurhæfing
Iðkendur Fjölnis hafa greiðan aðgang að sjúkraþjálfurum og læknum Hæfis vegna meiðsla og stoðkerfisvanda. Markmiðið er að bregðast við meiðslum samdægurs, eftir því sem framboð tíma leyfir.
Þjónustan felur meðal annars í sér:
-
Mat, greiningu og meðferð meiðsla.
-
Meðferð vegna verkja og annars stoðkerfisvanda.
-
Endurhæfingu og áætlun um endurkomu til æfinga.
Þegar við á er hægt að vinna endurhæfingaráætlun í samvinnu við iðkanda og þjálfara, með samþykki iðkanda eða forráðamanns.
Ráðgjöf og stuðningur
Samstarfið nær einnig til aðgangs að sálfræðingum, íþróttasálfræðingum, næringarfræðingum og markþjálfum Hæfis.
Hægt er að óska eftir einstaklingsráðgjöf. Deildir geta jafnframt haft samband vegna ráðgjafar, fræðslu eða fyrirlestra fyrir hópa.
Hvernig panta ég tíma?
Iðkendur eða forráðamenn geta haft samband við Hæfi til að óska eftir tíma eða fá upplýsingar um þjónustuna.
Sími: 511 1011
Netfang: mottaka@haefi.is
Heimasíða: www.haefi.is
Staðsetning: Egilshöll, Fossaleyni 1, 112 Reykjavík.
Taktu fram að þú sért iðkandi hjá Fjölni og hjá hvaða deild þú æfir. Ef um ný meiðsli er að ræða skaltu láta það koma fram þegar þú óskar eftir tíma.
Hæfi veitir nánari upplýsingar um viðeigandi þjónustu, næstu lausu tíma og verð.
Hvað kostar þjónustan?
Iðkendur greiða sjálfir fyrir einstaklingsbundna þjónustu. Hæfi upplýsir um verð og kjör áður en þjónustan hefst.
Fræðsla fyrir iðkendur og foreldra
Hæfi og Fjölnir stefna að því að halda regluleg námskeið fyrir iðkendur Fjölnis og, eftir því sem við á, foreldra og þjálfara. Stefnt er að fjórum námskeiðum árlega.
Efnið getur meðal annars tengst næringu, forvörnum og markþjálfun. Stefnt er að því að þátttaka verði ókeypis. Upplýsingar um efni, skráningu ogmögulegt þátttökugjald verða kynntar fyrir hvert námskeið.
