Tveir Fjölnisiðkendur á HM U20 í Oregon í frjálsum íþróttum

Tveir Fjölnisiðkendur á HM U20 í Oregon í frjálsum íþróttum

Dagana 5.-9. ágúst fer fram Heimsmeistaramót undir 20 ára í frjálsum íþróttum, í Oregon í Bandaríkjunum.  Fjölnir á tvo af fimm fulltrúum Íslands á mótinu, en ná þarf ströngum lágmörkum til að vinna sér inn keppnisrétti á því.

Alba í 100 metra hlaupi

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir keppti í undanrásum í 100 metra hlaupi þann 5.ágúst. Því miður var Alba eilítið lasin á keppnisdegi og því þónokkuð frá sínu besta í hlaupinu en kemur heim reynslunni ríkari.

Alba hefur tekið stór skref á hlaupabrautinni undanfarna mánuði. Hún varð Íslandsmeistari í 100 metra hlaupi í júlí þegar hún hljóp á 11,83 sekúndum en Alba hefur hlaupið best á 11,71sekúndum í sumar sem er einungis 0,15 sekúndum frá Íslandsmetinu.  Það verður spennandi að sjá hvað Alba gerir á næstu misserum.

Kjartan Óli í 400 metra hlaupi

Kjartan Óli Bjarnason keppti í undanrásum í 400 metra hlaupi þann 6. ágúst.  Hann hljóp á tímanum 47,94 sekúndum, sem er hans næst besti tími í vegalengdinni.

Kjartan hefur bætt sig mikið á árinu og hljóp á 47,44 sekúndum á móti í Osló í júni.  Sá tími er Íslandsmet U20. Kjartan varð einnig Íslandsmeistari í greininni í júlí þegar hann kom í mark á 48,47 sekúndum.

Glæsilegur árangur hjá okkar fólki sem spennandi verður að fylgjast með á næstu misserum.


Festival vika Fjölnis slær öll aðsóknarmet

Festival vika Fjölnis slær öll aðsóknarmet

Á mánudaginn hefst íshokkínámskeiðið Iceland Hockey Festival 2026 sem fram fer í Egilshöll. Það má sannarlega kalla þetta námskeið íshokkíhátíð eða festival. Það eru Íshokkídeild Fjölnis og fyrirtækið Festival Hokeja sameina krafta sína á ný en í fyrra hófst samstarf þessara aðila með mjög vel heppnuðu námskeiði sem fram fór í ágúst í fyrra.

Nú er bætt í frá fyrra ári en Iceland Hockey Festival 2026 stendur yfir dagana 10.-16. Ágúst. Þetta er æfinga- og upplifunarævintýri sem er opið leikmönnum frá öllum íslenskum og erlendum félögum en þátttakendur eru fæddir á árunum 2006-2020. Yfirþjálfari verður rétt eins og í fyrra hinn pólski Maciek Fabiańczyk en í þjálfarahópnum með honum verða meðal annars Emil fráfarandi yfirþjálfari Fjölnis og Kris, nýr yfirþjálfari Fjölnis, Þjálfarahópurinn kemur frá þremur löndum, auk Íslands.

Viðtökurnar voru hreint frábærar og flest 77 sæti námskeiðsins seldust upp strax um páskana þegar opnað var fyrir skráningar. Því miður eru öll sæti full núna og ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Námskeið sem þessi eru frábært tækifæri til að kynnast nýjum vinum, bæta leikskilning og tækni og ekki síst að eiga skemmtilega viku bæði innan og utan íssins.

Íshokkídeild Fjölnis óskar þátttakendum Iceland Hockey Festival 2026 góðrar skemmtunar.


Kjartan Karl Gunnarsson framlengir við Fjölni

Kjartan Karl Gunnarsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Kjartan Karl Gunnarsson til ársins 2028.

Kjartan er uppalinn Fjölnismaður sem hefur átt farsælan feril í yngri flokkum félagsins og unnið fjölda titla. Hann hefur jafnframt öðlast dýrmæta reynslu á venslasamningi hjá Aftureldingu og haldið áfram að þróast sem leikmaður.

Á síðasta tímabili tók Kjartan stór skref með meistaraflokki Fjölnis og sýndi að hann á fullt erindi á hæsta stigi. Hann hefur ávallt verið öflugur stigaskorari og er tilbúinn að taka enn stærra hlutverk með liðinu á komandi tímabilum.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Kjartan verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Kjartan tók stórt skref á síðasta tímabili. Hann hefur alltaf verið mikill skorari í yngri flokkunum og í fyrra sýndi hann að hann er klár í stærra hlutverk í meistaraflokki.“

Kjartan er ánægður með að framlengja samning sinn við félagið: „Ég er þakklátur fyrir traustið sem Fjölnir sýnir mér og er spenntur fyrir komandi tímabili með liðinu.“

Við óskum Kjartani innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.


Ísarr Logi Arnarsson framlengir við Fjölni

Ísarr Logi Arnarsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Ísarr Loga Arnarsson til ársins 2028.

Ísarr er uppalinn Fjölnismaður og einn efnilegasti leikmaður landsins í sínum árgangi. Hann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og öðlaðist dýrmæta reynslu á síðasta ári með U16 landsliðinu, bæði á Norðurlandamótinu í Finnlandi og Evrópumótinu í Norður-Makedóníu.

Á síðasta tímabili lék Ísarr með meistaraflokki Fjölnis samhliða því að spila með Vængjum Júpíters. Hann átti einnig stóran þátt í bikarmeistaratitli Fjölnis í sínum aldursflokki og heldur áfram að taka mikilvæg skref í átt að stærra hlutverki með meistaraflokknum.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Ísarr verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Ísarr fékk nasaþefinn af meistaraflokki í fyrra eftir frábært sumar með U16 landsliðinu. Hann varð bikarmeistari í sínum flokki og ég hlakka til að sjá hann halda áfram að vaxa og þroskast sem leikmaður og taka enn meira til sín þrátt fyrir ungan aldur.“

Ísarr er spenntur fyrir komandi tímabili: „Ég hlakka mikið til komandi tímabils og allra þeirra tækifæra sem bíða mín. Ég er tilbúinn að leggja hart að mér og þróast sem leikmaður og gera mitt besta.“

Við óskum Ísarri innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.


Elín Katla Sveinbjörnsdóttir valin til keppni á Junior Grand Prix

Elín Katla Sveinbjörnsdóttir valin til keppni á Junior Grand Prix

Listskautakonan Elín Katla Sveinbjörnsdóttir úr Fjölni hefur verið valin til að keppa fyrir hönd Íslands á Junior Grand Prix (JGP) mótaröðinni árið 2026.

Junior Grand Prix er alþjóðleg mótaröð á vegum Alþjóðaskautasambandsins (ISU) þar sem efnilegustu unglingar heims koma saman til keppni. Um er að ræða kvótamót, þar sem hver þjóð fær ákveðinn fjölda keppnisrétta á mótaröðinni út frá árangri fyrri ára.

Stjórn ÍSS, með aðstoð afreksnefndar, hefur valið þá skautara sem munu keppa fyrir Íslands hönd á mótaröðinni í ár. Elín Katla er einn þeirra sem hljóta það verðskuldaða verkefni.

Elín mun keppa á Junior Grand Prix mótinu sem fram fer í Bangkok í Taílandi dagana 3.–5. september.

Við hjá Fjölni óskum Elínu Kötlu innilega til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis í undirbúningi og keppni.


Bogdana Semyryazhko ráðin þjálfari hjá listskautadeild Fjölnis

Bogdana Semyryazhko ráðin þjálfari hjá listskautadeild Fjölnis

Listskautadeild Fjölnis hefur ráðið Bogdönu Semyryazhko, sem jafnan er kölluð Dana, til starfa sem þjálfari hjá félaginu.

Dana er fyrrverandi meðlimur í ítalska landsliðinu í listskautum og býr yfir fjölbreyttri reynslu bæði sem keppandi og þjálfari. Hún hefur starfað við þjálfun frá árinu 2017 og er jafnframt tæknisérfræðingur (Technical Specialist) í íþróttinni.

Auk reynslu sinnar úr listskautunum er Dana með háskólagráður í íþróttafræði og fyrirbyggjandi og aðlagaðri hreyfingu (Preventive and Adapted Physical Activity), sem nýtast henni vel í starfi með iðkendum á öllum aldri og getustigum.

Hjá Fjölni mun Dana koma að þjálfun allra hópa innan listskautadeildarinnar og gegna mikilvægu hlutverki í áframhaldandi uppbyggingu starfsins.

Við bjóðum Dönu hjartanlega velkomna til Fjölnis og hlökkum til samstarfsins.


Benóný Gunnar Óskarsson framlengir við Fjölni

Benóný Gunnar Óskarsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Benóný Gunnar Óskarsson til ársins 2028.

Benóný gekk til liðs við Fjölni árið 2023 og hefur síðan fest sig í sessi sem einn efnilegasti leikmaður landsins í sínum árgangi. Hann hefur verið valinn í æfingahópa yngri landsliða Íslands, tekið þátt í verkefni U15 landsliðsins í Finnlandi og var lykilmaður í bikarmeistaraliði Fjölnis í sínum aldursflokki, þar sem hann skoraði eftirminnilega sigurkörfuna í úrslitaleiknum.

Á síðasta tímabili var Benóný hluti af meistaraflokksliði Fjölnis samhliða því að leika með Vængjum Júpíters og hefur haldið áfram að taka stór skref í sinni þróun sem leikmaður.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Benóný verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Benóný kom inn í fyrra og varð bikarmeistari með sínum flokki þar sem hann skoraði eftirminnilega sigurkörfuna. Hann sýnir frábæra vinnusemi og hefur metnað til að halda áfram að vaxa sem leikmaður og taka sífellt stærra hlutverk með meistaraflokknum.“

Benóný er spenntur fyrir komandi tímabili: „Ég er spenntur fyrir komandi tímabili og hlakka til að bæta mig sem leikmaður.“

Við óskum Benóný innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.


Garðar Kjartan Arnarsson framlengir við Fjölni

Garðar Kjartan Arnarsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Garðar Kjartan Arnarsson til ársins 2028.

Garðar, eða Gassi eins og hann er jafnan kallaður, er uppalinn Fjölnismaður sem hefur farið í gegnum alla yngri flokka félagsins. Á yngri árum vann hann fjölda titla með Fjölni og bar meðal annars fyrirliðaband U16 landsliðs Íslands. Hann hefur fest sig í sessi sem öflugur leikstjórnandi sem er þekktur fyrir mikinn leikskilning, smitandi orku og óbilandi baráttu.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Garðar verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Gassi er karakter sem öll lið vilja hafa. Hann kemur með smitandi jákvæða orku og mikla baráttu inn á völlinn auk þess að vera mjög snjall leikstjórnandi.“

Garðar er ánægður með að framlengja samning sinn við félagið: „Ég er mjög þakklátur fyrir traustið og spenntur að halda áfram með Fjölni. Hlakka til að leggja mitt af mörkum og sjá hvað tímabilið hefur upp á að bjóða.“

Við óskum Garðari innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.


Fjölnir styrkir leikmannahópinn fyrir lokakafla tímabilsins

Fjölnir styrkir leikmannahópinn fyrir lokakafla tímabilsins

Mynd: Toggi Media

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur styrkt leikmannahóp meistaraflokks karla með komu þriggja leikmanna fyrir lokakafla tímabilsins. Til liðsins koma þeir Dagur Ingi Axelsson, Mikael Trausti Viðarsson og Ýmir Hjálmsson.

Dagur Ingi Axelsson snýr aftur heim í Fjölni á láni frá HK út tímabilið. Dagur, sem er fæddur árið 2002 og uppalinn hjá Fjölni, hefur leikið átta leiki í Lengjudeildinni í sumar. Hann er öflugur bakvörður og kantmaður sem bætir bæði hraða, karakter og reynslu við leikmannahópinn.

Mikael Trausti Viðarsson kemur á láni frá ÍR út tímabilið. Mikael er fæddur árið 2005, uppalinn hjá Fram og leikur sem hafsent og bakvörður. Hann kemur til félagsins til að styrkja varnarlínuna með krafti og áræðni.

Ýmir Hjálmsson gengur til liðs við Fjölni frá Völsungi. Hann hefur leikið sex leiki í Lengjudeildinni í sumar og hefur áður spilað með Njarðvík. Ýmir er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst bæði stöður á miðjunni og í vörninni. Hann bætir við hópinn góðri tækni, hlaupagetu og leikskilningi.

Gunnar Már, þjálfari meistaraflokks karla, fagnar komu leikmannanna: „Við erum mjög ánægðir með að fá Dag, Mikael og Ými til liðs við okkur. Þeir koma allir með eigin styrkleika sem munu nýtast liðinu vel og styrkja okkur fyrir lokakafla tímabilsins. Þeir leysa þau skörð sem myndast hafa eftir að Þengill, Róbert og Fjölnir héldu til Bandaríkjanna í háskólanám og við hlökkum til að sjá þá leggja sitt af mörkum í baráttunni fram undan.“

Leikmennirnir eru spenntir fyrir komunni í Grafarvoginn.

Dagur Ingi segir: „Gott að vera kominn aftur heim og geta hjálpað liðinu að komast upp í Lengjudeildina. Allir á völlinn! Áfram Fjölnir.“

Mikael Trausti segir: „Það er gott að vera kominn í Fjölni og fá tækifæri til að leggja allt í þetta það sem eftir er af tímabilinu.“

Ýmir segir: „Ég er spenntur og ánægður með að fá þetta tækifæri. Mér líst vel á hópinn og þjálfarana og hlakka til að klæðast gulu treyjunni í baráttunni með Fjölni um sæti í Lengjudeildinni.“

Við bjóðum Dag, Mikael og Ými hjartanlega velkomna í Fjölni og óskum þeim góðs gengis í gulu treyjunni.


Fannar Hafþórsson framlengir við Fjölni

Fannar Hafþórsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Fannar Hafþórsson til ársins 2028.

Fannar er uppalinn Fjölnismaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í meistaraflokki félagsins undanfarin ár. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki hátt í 150 leiki fyrir meistaraflokk og hefur jafnframt öðlast dýrmæta reynslu erlendis með Wesley Christian School í Kentucky í Bandaríkjunum.

Á síðustu árum hefur Fannar fest sig í sessi sem einn af leiðtogum liðsins, ekki síst í varnarleiknum þar sem baráttugleði hans og dugnaður hafa sett sterkan svip á leik liðsins.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Fannar verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Fannar hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu okkar undanfarin ár. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann tekið að sér leiðtogahlutverk í hópnum, ekki síst varnarlega þar sem hann setur tóninn með mikilli baráttu.“

Fannar er ánægður með að framlengja samning sinn við félagið: „Ég er mjög ánægður með að halda áfram í Fjölni. Ég hlakka til að byggja ofan á síðasta tímabil, halda áfram að þróast sem leikmaður og hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum.“

Við óskum Fannari innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »