Hagkaup og knattspyrnudeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning

Hagkaup og knattspyrnudeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning

Hagkaup og Fjölnir skrifa undir þriggja ára samstarfssamning

Hagkaup og knattspyrnudeild Fjölnis hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu starfs deildarinnar. Samningurinn styður við öflugt barna-, unglinga- og afreksstarf félagsins og styrkir enn frekar þær stoðir sem starfsemin byggir á.

Sem hluti af samstarfinu mun Hagkaup jafnframt bera nafn Þorramóts félagsins fyrir 8. flokk, sem framvegis mun heita Hagkaupsmótið. Mótið hefur verið fastur liður í starfi félagsins um árabil og er einn af hápunktum yngri flokka starfsins á hverju ári. Hagkaup mun einnig leggja til verðlaun fyrir iðkendur mótsins, meðal annars ávexti og verðlaunapeninga.

Birgir Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar samstarfinu og telur það mikilvægt fyrir áframhaldandi þróun starfsins.

„Samningurinn styrkir stoðir starfsins innan frá og við fögnum ríkulegri aðkomu Hagkaupa að starfsemi félagsins. Hagkaup er stór hluti af lífi Grafarvogsbúa og því sérstaklega ánægjulegt að hefja þetta samstarf“, segir Birgir.

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, segir fyrirtækið stolt af því að taka þátt í starfi félagsins.

„Við erum afar stolt af því að hefja þetta samstarf með Fjölni. Í Hagkaup leggjum við mikla áherslu á að styðja við heilbrigt og öflugt samfélag og þar gegna íþróttafélög lykilhlutverki. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að geta lagt okkar af mörkum til barna- og unglingastarfs félagsins og tekið þátt í að skapa jákvæðar upplifanir fyrir ungt íþróttafólk og fjölskyldur þeirra. Við hlökkum til samstarfsins á komandi árum og að sjá Hagkaupsmótið vaxa og dafna“, segir Eva Laufey.

Knattspyrnudeild Fjölnis fagnar samstarfinu og hlakkar til að vinna með Hagkaup á komandi árum að áframhaldandi uppbyggingu öflugs knattspyrnustarfs í Grafarvogi.


Aron Breki framlengir við Fjölni

Aron Breki framlengir við Fjölni


Fjölnir og Aldan sameinast um öflugt samstarf í Grafarvogi

Fjölnir og Aldan sameinast um öflugt samstarf í Grafarvogi


Frábær árangur hjá yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Fjölnis

Frábær árangur hjá yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Fjölnis

Það var sannkölluð gleði hjá yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Fjölnis á dögunum þegar bæði 9. flokkur kvenna og 10. flokkur karla fögnuðu glæsilegum árangri eftir frábært tímabil.

Stelpurnar í 9. flokki, sem skipa sameiginlegt lið Fjölnis og Skallagríms, gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér sæti í 1. deild á næsta tímabili með sigri á Hamar/Þór í úrslitaleik um laust sæti. Liðið endaði efst í sínum riðli og hefur staðið sig einstaklega vel í vetur. Frábær endir á sterku tímabili hjá stelpunum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

Ekki var minni árangur hjá 10. flokki karla sem vann sannfærandi sigur á Skallagrími, 95–53, í úrslitaleik 3. deildar. Strákarnir áttu magnað tímabil þar sem þeir unnu alla sína leiki nema einn og hafa sýnt miklar framfarir og flottan liðsheildaranda í vetur.

Það er ljóst að framtíð körfuknattleiksins í Grafarvogi er björt og óskum við öllum iðkendum, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með frábæran árangur.


Sara Xiao semur við Fjölni

Sara Xiao semur við Fjölni


Ölgerðin áfram í öflugu samstarfi við Ungmennafélagið Fjölnir

Ölgerðin áfram í öflugu samstarfi við Ungmennafélagið Fjölnir


Signý Harðardóttir framlengir við Fjölni

Signý Harðardóttir framlengir við Fjölni


Fjölnir og Olís framlengja samstarf sitt til næstu fjögurra ára fyrir Fjölnishlaup Olís

Fjölnir og Olís framlengja samstarf sitt til næstu fjögurra ára fyrir Fjölnishlaup Olís


Lokahóf handknattleiksdeildar Fjölnis fór fram með glæsibrag

Lokahóf handknattleiksdeildar Fjölnis fór fram með glæsibrag


Sara Kristín framlengir við Fjölni

Sara Kristín framlengir við Fjölni


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »