Ólafur Malmquist framlengir við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Ólafur Malmquist hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni.
Ólafur, eða Óli Mall eins og hann er oftast kallaður, hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár. Hann er öflugur varnarmaður sem leggur alltaf hart að sér og hefur með reynslu sinni, baráttugleði og dugnaði verið mikilvægur hlekkur í liðinu bæði innan vallar sem utan.
Meistaraflokksráð karla fagnar því að Ólafur verði áfram hluti af liðinu. „Það gleður okkur mikið að Ólafur Malmquist hafi framlengt samning sinn við félagið. Hann hefur verið einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins undanfarin ár og við erum sannfærð um að hann eigi eftir að halda áfram að leggja liðinu mikið til á komandi árum.“
Ólafur segist spenntur fyrir komandi verkefnum: „Ég er hæstánægður að halda áfram í Grafarvoginum. Við erum með frábæran hóp af strákum og Gunni kemur inn með mikinn metnað. Ég hef mikla trú á því sem við erum að gera og er mjög spenntur fyrir komandi tímabili.“
Við óskum Ólafi innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hann áfram í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Aníta Rut framlengir við Fjölni
23/07/2026
Karen Sævarsdóttir framlengir við Fjölni
22/07/2026
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026









