Valur Fannar og Bjarni Freyr framlengja við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Handknattleiksmennirnir Valur Fannar Traustason og Bjarni Freyr Ásgeirsson hafa framlengt samninga sína við meistaraflokk karla hjá Fjölni.

Valur og Bjarni eru báðir fæddir árið 2009 og tilheyra efnilegum árgangi félagsins sem hefur verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Framlenging þeirra er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu handknattleiksdeildarinnar.

Valur Fannar er öflugur línumaður sem steig sín fyrstu skref með meistaraflokki á síðasta tímabili. Hann hefur sýnt miklar framfarir og félagið bindur miklar vonir við að hann verði lykilmaður í liðinu á komandi árum.

Bjarni Freyr er öflug örvhent skytta og uppalinn Fjölnismaður. Hann er einn af efnilegustu leikmönnum félagsins og hefur alla burði til að ná langt í handboltanum. Félagið hlakkar til að sjá hann halda áfram að blómstra í Fjölnisbúningnum.

Gunnar Valur, yfirþjálfari og meistaraflokksþjálfari karla fagnar því að báðir leikmennirnir hafi framlengt samninga sína. „Við erum afar ánægð með að Valur og Bjarni verði áfram hluti af Fjölni. Báðir hafa þeir sýnt miklar framfarir, mikinn metnað og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Við hlökkum til að fylgjast með þeim taka næstu skref í meistaraflokki og leggja sitt af mörkum til liðsins á komandi árum.“

Valur Fannar og Bjarni Freyr eru báðir hluti af spennandi framtíð handknattleiksdeildar Fjölnis og við óskum þeim innilega til hamingju með nýju samningana. Við hlökkum til að sjá þá áfram í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »