Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ innanhúss 2026

Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ innanhúss 2026

Dagana 18.–22. mars fór fram Íslandsmót TSÍ innanhúss í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppendur frá tennisdeild Fjölnis stóðu sig afar vel og unnu til fjölda verðlauna í ólíkum aldurs- og keppnisflokkum. Árangurinn er skýr vitnisburður um öflugt og metnaðarfullt starf deildarinnar.

Ungur leikmaður lætur til sín taka

Daniel Pozo, sem hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum og vakið verðskuldaða athygli, hafnaði í 3. sæti í meistaraflokki karla í einliðaleik eftir spennandi viðureign við Ómar Pál Jónasson (5–4, 2–4, 10–8). Hann bætti jafnframt við sig 3. sæti í U18 pilta einliða.

Framúrskarandi árangur í yngri flokkum

Systkinin Paula Marie og Juan Pablo Moreno Monsalve náðu góðum árangri. Paula tryggði sér 3. sæti í U14 stúlkna einliða og 2. sæti í U16 stúlkna einliða, á meðan Juan hafnaði í 2. sæti í U16 pilta einliða.

Í U12 stúlkna einliða sigraði hin aðeins 10 ára Hera Dröfn Guðmundsdóttir og varð þar með Íslandsmeistari í sínum flokki.

Í U18 stúlkna einliða stóð Saule Zukauskaite uppi sem sigurvegari og hlaut Íslandsmeistaratitil, en Íva Jovisic vann til silfurverðlauna. Þær Saule og Íva unnu einnig saman tvíliðaleik í U18 flokki og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitil.

Árangur í 30+ flokkum

Ása Björg Guðlaugsdóttir hafnaði í 2. sæti í 30+ kvenna einliða.

Irka Cacicedo Jaroszynska og Sigríður Sigurðardóttir unnu til gullverðlauna í 30+ kvenna tvíliða og urðu Íslandsmeistarar í þeim flokki.

Í 30+ karla tvíliða náðu Joaquin Armesto Nuevo og Hrólfur Sigurðsson 2. sæti.

Árangur í 50+ flokkum

Í 50+ karla einliða tryggði Ólafur Helgi Jónsson sér 2. sæti og Hrólfur Sigurðsson hafnaði í 3. sæti.

Þessi glæsilegi árangur endurspeglar metnaðarfullt og faglegt starf tennisdeildar Fjölnis og lofar góðu fyrir áframhaldandi uppbyggingu og framtíð deildarinnar.

Innilega til hamingju með frábæran árangur!


Markús Steinn Markan Ásmundsson semur við Fjölni

Markús Steinn Markan Ásmundsson semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við Markús Stein Markan Ásmundsson sem gengur til liðs við félagið fyrir komandi keppnistímabil.

Markús Steinn, sem fæddur er árið 2008, kemur til Fjölnis frá Breiðabliki þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins. Í Kópavogi var hann hluti af stórum og öflugum hópi efnilegra leikmanna og fékk meðal annars tækifæri með meistaraflokki félagsins í Lengjubikarnum í vetur áður en hann ákvað að taka næsta skref og ganga til liðs við Fjölni í Grafarvoginum.

Markús Steinn er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum, en leikur helst á miðjunni eða í sókn þar sem hann nýtir vel tæknilega hæfileika sína og mikla hlaupagetu.

Sterkar tengingar eru einnig til staðar við Fjölni í fjölskyldu Markúsar. Móðurbróðir hans er Pétur Georg Markan sem lék með Fjölni á sínum tíma og faðir hans er Ásmundur Arnarsson, fyrrum þjálfari Fjölnis. Telja má því líklegt að fyrsta liðstreyjan sem Markús klæddist hafi verið Fjölnistreyja.

Að sögn Gunnars þjálfara er mikil tilhlökkun með komu Markúsar:
„Markús kemur til okkar frá Breiðabliki og er gríðarlega spennandi leikmaður. Hann er tæknilega góður, metnaðarfullur og með mikla hlaupagetu. Þetta er leikmaður sem fellur vel að því sem við viljum gera hjá Fjölni og vonandi getur hann tekið næstu skref á sínum ferli og sýnt gæði sín á vellinum með Fjölni í sumar.“

Markús Steinn sjálfur er spenntur fyrir nýju áskoruninni í Grafarvoginum:
„Ég er ótrúlega glaður að vera kominn hingað í Fjölni í topp aðstæður og gott umhverfi. Ég vonast til að geta hjálpað þessum stóra klúbbi að komast aftur á sinn stað og á sama tíma þroskast og taka framförum sem leikmaður.“

Fjölnir býður Markús Stein hjartanlega velkominn til félagsins og hlakkar til að sjá hann í gulri treyju í sumar. Áfram Fjölnir!


Aðalfundur karatedeildar Fjölnis

Aðalfundur karatedeildar Fjölnis

Aðalfundur karatedeildar Fjölnis verður haldinn 15. apríl n.k. kl. 20.00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf

Í 17 grein laga félagsins segir:

Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.

Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

 

Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is.


Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára

Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára

Við höfum opnað fyrir umsóknir í sumarstörf Fjölnis 2026. Öllum umsóknum verður svarað.

Við bjóðum upp á fjölbreytt störf fyrir 17-25 ára. Í boði er að vinna á sumarnámskeiðum deilda,  fjölgreinanámskeiði félagsins og leikjanámskeiði.

  • Fyrir umsækjendur á aldrinum 17-25 ára
  • Umsækjendur þurfa að vera með lögheimili í Reykjavík.
  • Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.

Umsækjendur geta hakað við það starf sem þeir óska eftir, það er í boði að velja fleiri en eitt starf, t.d. að starfa á knattspyrnu- og listskautanámskeiðum.
Vinnutímabil fyrir 17-25 ára fer eftir nánara samkomulagi þegar ráðning liggur fyrir. Laun eru greidd út samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjölnis á sumarnamskeid@fjolnir.is.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl!

Athugið að það er frekar mikilvægt að umsækendur geti verið að mestu við vinnu á tímabilinu 8. júní – 10. júlí og 10. – 15. ágúst   

Drög að dagskrá sumarsins :

  • 15. – 12. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
  • 22. – 26. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
  • 29. júní – 3. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
  • 6. – 10. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
  • 10. – 14. ágúst – Sumarnámskeið Deilda og Fjölgreinanámskeið Egilshöll

Sækja um með því að smella hér


9.flokkur drengja í Fjölni á Scania Cup 2026

9.flokkur drengja í Fjölni á Scania Cup 2026

Fjölnis tók þátt í hinu vinsæla Scania Cup körfuboltamóti í Södertälje yfir páskana. Liðið stóð sig ágætlega og vann tvo af fimm leikjum sínum, en mætti sterkri samkeppni frá liðum víðs vegar um Norðurlöndin.

Þrátt fyrir að ná ekki alveg sama árangri og í bikarkeppninni hér heima, þar sem þeir stóðu uppi sem meistarar, kemur liðið reynslunni ríkara úr ferðinni og vel stemmt fyrir komandi úrslitakeppni.

Nokkrir leikmenn liðsins stóðu upp úr sóknarlega, en Víkingur Eldon Arnarsson var með um 20 stig að meðaltali í leik, Jónatan Montoro skoraði um 18 stig að jafnaði og Ólafur Thorarensen var með um 15 stig í leik. Þeir voru meðal stigahæstu leikmanna í sínum aldursflokki á mótinu.

Mótið bauð upp á bæði krefjandi og skemmtilega leiki og lauk með skemmtidegi í Stokkhólmi á annan dag páska.


Vinningaskrá – Páskahappdrætti Fjölnis 2026

Vinningaskrá – Páskahappdrætti Fjölnis 2026

Dregið hefur verið í páskahappdrætti Fjölnis 2026. Alls seldust yfir 3.000 miðar og voru 57 vinningar dregnir út.

Við viljum þakka öllum þeim sem studdu við happdrættið, bæði styrktaraðilum sem gáfu vinninga og öllum þeim sem keyptu miða. Stuðningurinn skiptir félagið miklu máli.

Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Hægt er að vitja vinninga á skrifstofu Fjölnis og eru vinningshafar beðnir um að gera það fyrir 1. júní.


Þrjú fengu silfurmerki KSÍ á aðalfundi knattspyrnudeildar

Þrjú fengu silfurmerki KSÍ á aðalfundi knattspyrnudeildar

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Fjölnis í gær voru þrír einstaklingar heiðraðir með silfurmerki KSÍ fyrir framlag sitt til knattspyrnunnar.

Viðurkenninguna hlutu:

  • Hildigunnur Smáradóttir
  • Sigurður Einar Guðbrandsson
  • Sigurður Rúnar Sveinsson

Það var Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, stjórnarmaður KSÍ, sem afhenti heiðursmerkin.

Silfurmerki KSÍ er veitt einstaklingum sem hafa unnið vel og dyggilega að eflingu knattspyrnuíþróttarinnar í áratug eða lengur. Fjölnir óskar þeim innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar fyrir mikilvægt framlag til félagsins og knattspyrnunnar.

Þá voru framboð til stjórnar samþykkt og ný stjórn deildarinnar því skipuð.

Viðar Árnason var kjörinn formaður til tveggja ára. Í stjórn til tveggja ára voru kjörnir Hjálmar Vilhjálmsson, Björgvin Jón Bjarnason og Pétur Blöndal.

Sem varamenn til eins árs voru kjörnir Bjarni Sigurðsson og Arnar Már Jóhannesson.

Þau Þóra Ingimundardóttir, Pétur Elvar Birgisson og Sveinn Guðmundsson sitja áfram í stjórn eftir kjör á fyrra ári.

Ný stjórn tekur nú til starfa og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar knattspyrnustarfs Fjölnis.


Fjölnir er bikarmeistari í listskautum 2026 – fjórða árið í röð!

Fjölnir er bikarmeistari í listskautum 2026 – fjórða árið í röð!


Helgina 27.–29. mars fór Vormót ÍSS fram á Akureyri. Alls tóku 36 keppendur frá Fjölni þátt í mótinu, þar af margir sem voru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Farið var í hópferð líkt og venjan er og er þetta ferð sem margir skautarar bíða spenntir eftir allt árið.

Keppendur Fjölnis stóðu sig með mikilli prýði á mótinu og voru félaginu til fyrirmyndar jafnt innan sem utan íssins.

Með þeim árangri sem skautarar Fjölnis náðu á Vormóti ÍSS, ásamt góðum árangri á öðrum mótum tímabilsins, tryggði félagið sér bikarmeistaratitilinn í listskautum árið 2026. Þetta er fjórða árið í röð sem Fjölnir hampað þessum glæsilega titli.

Helstu úrslit keppenda Fjölnis

12 ára og yngri

  • Unnur Harðardóttir – 2. sæti
  • Amelía Lind Hreiðarsdóttir – 3. sæti

15 ára og eldri karlar

  • Marinó Máni Þorsteinsson – 1. sæti

Intermediate Women

  • Ágústa Ólafsdóttir – 1. sæti
  • Lilja Harðardóttir – 2. sæti

Basic Novice

  • Maxime Hauksdóttir – 1. sæti
  • Ermenga Sunna Víkingsdóttir – 2. sæti
  • Karlina Kreislere – 3. sæti

Advanced Novice

  • Elín Katla Sveinbjörnsdóttir – 1. sæti
  • Arna Dís Gísladóttir – 2. sæti

Skautahlaup – Senior Women (222m, 500m og 1000m)

  • Thamar Heijstra – 1. sæti

Við óskum öllum keppendum Fjölnis innilega til hamingju með frábæran árangur og vel heppnað mót.


Framhaldsfundur íshokkídeildar Fjölnis

Framhaldsfundur íshokkídeildar Fjölnis

Framhaldsfundur íshokkídeildar Fjölnis Fjölnis verður haldinn 7. apríl n.k. kl. 17.00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.

Dagskrá:

Kosning stjórnarmanna.

Í 17 grein laga félagsins segir:

Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.

Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

 

Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is.


Framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis

Framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis

Framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis verður haldinn 13. apríl n.k. kl. 17.00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.

Dagskrá:

Kosning stjórnarmanna.

Í 17 grein laga félagsins segir:

Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.

Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

 

Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is.


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »