Fannar Hafþórsson framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Fannar Hafþórsson til ársins 2028.

Fannar er uppalinn Fjölnismaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í meistaraflokki félagsins undanfarin ár. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki hátt í 150 leiki fyrir meistaraflokk og hefur jafnframt öðlast dýrmæta reynslu erlendis með Wesley Christian School í Kentucky í Bandaríkjunum.

Á síðustu árum hefur Fannar fest sig í sessi sem einn af leiðtogum liðsins, ekki síst í varnarleiknum þar sem baráttugleði hans og dugnaður hafa sett sterkan svip á leik liðsins.

Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Fannar verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Fannar hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu okkar undanfarin ár. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann tekið að sér leiðtogahlutverk í hópnum, ekki síst varnarlega þar sem hann setur tóninn með mikilli baráttu.“

Fannar er ánægður með að framlengja samning sinn við félagið: „Ég er mjög ánægður með að halda áfram í Fjölni. Ég hlakka til að byggja ofan á síðasta tímabil, halda áfram að þróast sem leikmaður og hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum.“

Við óskum Fannari innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »