Annar framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis
Annar framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis
Annar framhaldsfundur frjálsíþróttadeildar Fjölnis verður haldinn 20. apríl n.k. kl. 18:30 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.
Dagskrá:
Kosning formanns.
Í 17 grein laga félagsins segir:
Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.
Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.
Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is.

Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára – áhugasviðskönnun
Búið er að opna fyrir umsóknir fyrir vinnuskólann sumarið 2026
Skref 1 – Sækja um hjá vinnuskólanum
- https://reykjavik.is/vinnuskolinn/ Munið að merkja við að þið óskið eftir að vinna hjá Ungmennafélaginu Fjölni.
Skref 2 – Fylla út áhugasviðskönnun fyrir Fjölni
Athugið að þessi könnun er áhugasviðskönnun og er í rauninni ekki umsókn um vinnu en viðauki fyrir okkur til þess að vinna með.
Öllum umsóknum verður svarað.
Við bjóðum upp á fjölbreytt störf fyrir 15-16 ára. Í boði er að vinna á sumarnámskeiðum deilda, fjölgreinanámskeiði félagsins og leikjanámskeiði.
- Fyrir umsækjendur á aldrinum 15-16 ára (2011-2010)
- Umsækjendur þurfa að vera með lögheimili í Reykjavík.
Umsækjendur geta hakað við það starf sem þeir óska eftir, það er í boði að velja fleiri en eitt starf, t.d. að starfa á knattspyrnu- og listskautanámskeiðum.
Vinnutímabil fyrir 15-16 ára fer eftir nánara samkomulagi þegar ráðning liggur fyrir. Laun eru greidd út samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjölnis á sumarnamskeid@fjolnir.is.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl!
Athugið að það er frekar mikilvægt að umsækendur geti verið að mestu við vinnu á tímabilinu 8. júní – 10. júlí og 10. – 15. ágúst
Drög að dagskrá sumarsins :
- 15. – 12. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
- 22. – 26. júní – Sumarnámskeið deilda í Egilshöll
- 29. júní – 3. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
- 6. – 10. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
- 10. – 14. ágúst – Sumarnámskeið Deilda og Fjölgreinanámskeið Egilshöll

Þór Guðmundsson ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik
Þór Guðmundsson ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik

Handknattleiksþjálfarinn Þór Guðmundsson hefur samið við Fjölni um að taka við starfi aðalþjálfara meistaraflokks kvenna næstu tvö árin. Samhliða því mun Þór einnig stýra 3. flokki kvenna hjá félaginu.
Þór kemur til Fjölnis með víðtæka reynslu úr þjálfun kvennahandbolta. Hann hefur áður þjálfað meistaraflokk og 3. flokk kvenna hjá Víkingi, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu þar sem hann þjálfaði einnig 3. flokk félagsins. Þjálfaraferill hans hófst hjá Fram þar sem hann starfaði ýmsa yngri flokka.
Eftir tveggja ára hlé frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu er Þór nú tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna. „Fjölnir er spennandi félag sem hefur staðið sig vel í uppbyggingu undanfarin ár. Eftir að hafa tekið tvö ár í pásu frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu var það ekki erfið ákvörðun að segja já við þessu verkefni,“ segir Þór. „Það er mikill heiður að fá að vinna með ungum, efnilegum og metnaðarfullum hópi og ég hlakka til að gera mitt besta til að stuðla að áframhaldandi árangri og uppbyggingu.“
Meistaraflokksráð kvenna hjá Fjölni segist afar ánægt með ráðninguna. „Þekking og reynsla Þórs mun styrkja starf liðsins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra jákvæðu áhrifa sem hann mun hafa á liðið,“ segir í yfirlýsingu ráðsins.
Að lokum vill meistaraflokksráð kvenna þakka Gunnari Val fyrir gríðarlega gott og óeigingjarnt starf fyrir meistaraflokkinn í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í öðrum spennandi verkefnum fyrir deildina.
Fjölnismenn í eldlínunni með A-landsliði karla í íshokkí
Fjölnismenn í eldlínunni með A-landsliði karla í íshokkí
A-landslið karla í íshokkí lauk um helgina keppni á Div2B á Heimsmeistaramóti karla í íshokkí sem fram fór í Búlgaríu. Ísland lék þar til úrslita um gullverðlaunin, en laut í lægra haldi í lokaleiknum, 2–5.
Fjölnir átti fjóra fulltrúa í hópnum að þessu sinni. Það voru þeir Róbert Pálsson og Hektor Hrólfsson, sem báðir leika með Fjölni, auk Viktors Mojzyszek, uppalins Fjölnismanns sem nú leikur erlendis. Þá var Marcin Mojzyszek, starfsmaður Egilshallar, einnig með liðinu sem tækjastjóri.
Það er afar ánægjulegt fyrir Fjölni að eiga svo sterka fulltrúa í verkefnum landsliðsins og fylgjast með Fjölnismönnum leggja sitt af mörkum á alþjóðlegum vettvangi.
Bjarki Fannar Arnþórsson semur við Fjölni
Bjarki Fannar Arnþórsson semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við Bjarki Fannar Arnþórsson fyrir komandi keppnistímabil.
Bjarki Fannar, sem er fæddur árið 2003, er uppalinn Fjölnismaður og hefur leikið með félaginu upp alla yngri flokka. Hann kemur úr afar sigursælum 2003 árgangi félagsins sem náði frábærum árangri á sínum tíma.
Síðustu ár hefur Bjarki leikið með Vængjum Júpíters, venslaliði Fjölnis, þar sem hann hefur þróað leik sinn mikið. Hann hefur verið lykilleikmaður liðsins, skorað fjölda marka og lagt upp mörg til viðbótar.
Bjarki er skapandi miðjumaður með gott auga fyrir spili og sterkt markanef. Hann hefur komið gríðarlega sterkur inn í lið Fjölnis í vetur og sýnt svo sannarlega að hann er tilbúinn í stærri áskoranir á næsta stigi.
Gunnar Már þjálfari liðsins er ánægður með nýjustu viðbót liðsins: „Bjarki Fannar er gegnheill Fjölnismaður sem kemur aftur yfir í Fjölni frá Vængjum, leikmaður sem mun gleðja stuðningsmenn með skemmtilegum tilþrifum og sigrum í komandi framtíð.“
Þá er Bjarki Fannar spenntur fyrir að taka skrefið úr Vængjum Júpíters í Fjölni: „Það er auðvitað bara frábært að vera kominn í Fjölni, virkilega skemmtilegur hópur og er ég mjög spenntur fyrir sumrinu. Grafarvogsbúar, mætið á völlinn, þetta verður veisla í sumar!“
Við bjóðum Bjarka hjartanlega velkominn í hópinn og hlökkum til að fylgjast með honum í gulu í sumar.
Aðrar fréttir af deildinni
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára
08/04/2026
Tímamót hjá tennisdeild Fjölnis: Daniel Pozo fyrstur til að skrifa undir
Tímamót hjá tennisdeild Fjölnis: Daniel Pozo fyrstur til að skrifa undir

Daniel Pozo hefur skrifað undir samning við tennisdeild Fjölnis og verður þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að gera slíkan samning. Um er að ræða stórt skref fyrir félagið, en um leið verðskuldaða viðurkenningu á þeim árangri og þeirri framþróun sem Daniel hefur sýnt á undanförnum árum. Daniel er fæddur árið 2009 og hefur verið hluti af prógrammi tennisdeildar Fjölnis frá átta ára aldri.
Daniel hefur markvisst unnið sig upp sem einn af efnilegustu leikmönnum landsins. Með stöðugum framförum, sterkri keppnishugsun og skýrum metnaði hefur hann sýnt að hann býr yfir þeim eiginleikum sem þarf til að ná langt í íþróttinni. Hann hefur jafnframt náð alþjóðlegri stöðu á styrkleikalistum ITF og UTR og er sá leikmaður úr röðum tennisdeildar Fjölnis sem hefur náð hæstum styrkleika á þeim listum til þessa.
Framlag hans til tennisdeildar Fjölnis nær þó langt út fyrir úrslit og árangur á vellinum. Daniel hefur verið skýr fyrirmynd innan deildarinnar, sýnt fagmennsku í hvívetna og lagt mikla áherslu á aga, vinnusemi og jákvætt hugarfar. Viðhorf hans og framkoma hafa haft jákvæð áhrif á liðsfélaga og umhverfið í kringum deildina. Ungir leikmenn líta upp til hans og hefur hann verið frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn sem eru bæði að stíga sín fyrstu skref og vinna sig upp innan deildarinnar.
Þróun hans sem leikmanns og einstaklings hefur farið hönd í hönd, þar sem hann hefur þroskast jafnt innan vallar sem utan. Slík samsetning hæfileika, metnaðar og karaktereinkenna er lykilþáttur í uppbyggingu sterkra íþróttamanna.
Samningurinn markar upphaf nýs kafla, bæði fyrir Daniel og tennisdeild Fjölnis, þar sem horft er til áframhaldandi framfara, aukinnar fagmennsku og enn meiri árangurs í framtíðinni, með það að markmiði að styðja enn frekar við þróun hans og skapa tækifæri til frekari afreka.
Carola Frank, yfirþjálfari tennisdeildar Fjölnis segir að miklar væntingar séu bundnar við framtíð Daniels og að félagið hafi fulla trú á getu hans:
„Við trúum því að með réttum stuðningi geti Daniel orðið einn af sterkustu tennisleikmönnum, ekki aðeins í sögu Fjölnis, heldur einnig á landsvísu og jafnvel á alþjóðlegum vettvangi. Hann er afar metnaðarfullur leikmaður sem vinnur markvisst að eigin framförum og hefur sýnt bæði þroska og fagmennsku í sínu starfi. Við teljum að hann falli mjög vel að þeirri stefnu sem við viljum byggja upp innan deildarinnar og hlökkum til að fylgjast með honum taka næstu skref á sínum ferli.“
Tennisdeild Fjölnis óskar Daniel Pozo innilega til hamingju með samninginn og þessum mikilvægu tímamótum fyrir félagið!
Stelpurnar í U16 fengu silfur!
Stelpurnar í U16 fengu silfur!

Um helgina fór fram þriðja og síðasta helgarmót vetrarins í keppni liða í U16 deild kvenna. Að þessu sinni vorum við gestgjafarnir og fór leikirnir því fram hér í Egilshöllinni. Stelpurnar okkar stóðu sig hreint frábærlega en leikin var tvöföld umferð. Þær sigruðu lið SR sannfærandi í báðum viðureignunum en leikirnir gegn SA fóru báðir í framlengingu. Tapaðist annar í framlengingu en hinn í æsispennandi vítakeppni.
SA hlaut Íslandsmeistaratitillinn í U16 kvenna deildinni og óskum við þeim til hamingju. Stelpurnar okkar tryggðu sér hins vegar silfurverðlaun með þessari glæsilegu frammistöðu þrátt fyrir að aðalþjálfarinn, Laura-Ann Murphy, væri fjarverandi með kvennalandsliðinu. Stelpurnar hafa tekið gríðarlegum framförum í vetur því í fyrsta mótinu í haust töpuðu þær öllum leikjunum með töluverðum mun en fengu um helgina mikilvæg stig út úr öllum leikjunum.
Við óskum U16 liðinu okkar hjartanlega til hamingju með glæstan árangur!
Jafnframt þakkar íshokkídeildin kærlega þjálfurum, starfsmönnum og öllum foreldrum fyrir samstarf og samvinnu við að halda þetta stóra mót nú um helgina en það voru ansi mörg handtök sem þurfti að inna af hendi til að láta þetta ganga upp.
Fjölniskonur í eldlínunni með A-landsliði kvenna í íshokkí
Fjölniskonur í eldlínunni með A-landsliði kvenna í íshokkí
A-landslið kvenna í íshokkí hefur keppni á HM-móti sínu í Slóveníu í dag, 13. apríl. Fjölnir á þar góða fulltrúa, en þrír leikmenn félagsins eru í hópnum auk þess sem aðstoðarþjálfari liðsins kemur úr röðum Fjölnis.
Leikmennirnir Elísa Sigfinnsdóttir, Eva Hlynsdóttir og Laura-Ann Murphy eru allir hluti af landsliðshópnum, en Gunnar Guðmundsson er aðstoðarþjálfari liðsins á mótinu.
Ísland leikur fjóra leiki á mótinu:
- 13. apríl kl. 17:30 – Ísland vs. Slóvenía
- 15. apríl kl. 14:00 – Ísland vs. Pólland
- 17. apríl kl. 14:00 – Ísland vs. Ástralía
- 18. apríl kl. 14:00 – Ísland vs. Taívan
Nánari upplýsingar um mótið og textalýsingar má finna á heimasíðu mótsins. Einnig verður hægt að fylgjast með leikjum Íslands í beinni útsendingu á streymisvef ÍHÍ.
Fjölnir óskar okkar fólki góðs gengis á mótinu og hlökkum við til að fylgjast með þeim í keppninni.
Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ innanhúss 2026
Glæsilegur árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ innanhúss 2026

Dagana 18.–22. mars fór fram Íslandsmót TSÍ innanhúss í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppendur frá tennisdeild Fjölnis stóðu sig afar vel og unnu til fjölda verðlauna í ólíkum aldurs- og keppnisflokkum. Árangurinn er skýr vitnisburður um öflugt og metnaðarfullt starf deildarinnar.
Ungur leikmaður lætur til sín taka
Daniel Pozo, sem hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum og vakið verðskuldaða athygli, hafnaði í 3. sæti í meistaraflokki karla í einliðaleik eftir spennandi viðureign við Ómar Pál Jónasson (5–4, 2–4, 10–8). Hann bætti jafnframt við sig 3. sæti í U18 pilta einliða.
Framúrskarandi árangur í yngri flokkum
Systkinin Paula Marie og Juan Pablo Moreno Monsalve náðu góðum árangri. Paula tryggði sér 3. sæti í U14 stúlkna einliða og 2. sæti í U16 stúlkna einliða, á meðan Juan hafnaði í 2. sæti í U16 pilta einliða.
Í U12 stúlkna einliða sigraði hin aðeins 10 ára Hera Dröfn Guðmundsdóttir og varð þar með Íslandsmeistari í sínum flokki.
Í U18 stúlkna einliða stóð Saule Zukauskaite uppi sem sigurvegari og hlaut Íslandsmeistaratitil, en Íva Jovisic vann til silfurverðlauna. Þær Saule og Íva unnu einnig saman tvíliðaleik í U18 flokki og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitil.
Árangur í 30+ flokkum
Ása Björg Guðlaugsdóttir hafnaði í 2. sæti í 30+ kvenna einliða.
Irka Cacicedo Jaroszynska og Sigríður Sigurðardóttir unnu til gullverðlauna í 30+ kvenna tvíliða og urðu Íslandsmeistarar í þeim flokki.
Í 30+ karla tvíliða náðu Joaquin Armesto Nuevo og Hrólfur Sigurðsson 2. sæti.
Árangur í 50+ flokkum
Í 50+ karla einliða tryggði Ólafur Helgi Jónsson sér 2. sæti og Hrólfur Sigurðsson hafnaði í 3. sæti.
Þessi glæsilegi árangur endurspeglar metnaðarfullt og faglegt starf tennisdeildar Fjölnis og lofar góðu fyrir áframhaldandi uppbyggingu og framtíð deildarinnar.
Innilega til hamingju með frábæran árangur!
Markús Steinn Markan Ásmundsson semur við Fjölni
Markús Steinn Markan Ásmundsson semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við Markús Stein Markan Ásmundsson sem gengur til liðs við félagið fyrir komandi keppnistímabil.
Markús Steinn, sem fæddur er árið 2008, kemur til Fjölnis frá Breiðabliki þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka félagsins. Í Kópavogi var hann hluti af stórum og öflugum hópi efnilegra leikmanna og fékk meðal annars tækifæri með meistaraflokki félagsins í Lengjubikarnum í vetur áður en hann ákvað að taka næsta skref og ganga til liðs við Fjölni í Grafarvoginum.
Markús Steinn er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum, en leikur helst á miðjunni eða í sókn þar sem hann nýtir vel tæknilega hæfileika sína og mikla hlaupagetu.
Sterkar tengingar eru einnig til staðar við Fjölni í fjölskyldu Markúsar. Móðurbróðir hans er Pétur Georg Markan sem lék með Fjölni á sínum tíma og faðir hans er Ásmundur Arnarsson, fyrrum þjálfari Fjölnis. Telja má því líklegt að fyrsta liðstreyjan sem Markús klæddist hafi verið Fjölnistreyja.
Að sögn Gunnars þjálfara er mikil tilhlökkun með komu Markúsar:
„Markús kemur til okkar frá Breiðabliki og er gríðarlega spennandi leikmaður. Hann er tæknilega góður, metnaðarfullur og með mikla hlaupagetu. Þetta er leikmaður sem fellur vel að því sem við viljum gera hjá Fjölni og vonandi getur hann tekið næstu skref á sínum ferli og sýnt gæði sín á vellinum með Fjölni í sumar.“
Markús Steinn sjálfur er spenntur fyrir nýju áskoruninni í Grafarvoginum:
„Ég er ótrúlega glaður að vera kominn hingað í Fjölni í topp aðstæður og gott umhverfi. Ég vonast til að geta hjálpað þessum stóra klúbbi að komast aftur á sinn stað og á sama tíma þroskast og taka framförum sem leikmaður.“
Fjölnir býður Markús Stein hjartanlega velkominn til félagsins og hlakkar til að sjá hann í gulri treyju í sumar. Áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára
08/04/2026























