Veselin Chilingirov framlengir við Fjölni

Veselin Chilingirov framlengir við Fjölni

VESKO FRAMLENGIR TIL NÆSTU 3 ÁRA

Knattspyrnudeild Fjölnis er stolt af því að tilkynna að Veselin Chilingirov, eða Vesko eins og hann er kallaður innan félagsins, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára.

Frá því Vesko kom til Fjölnis hefur hann haft gríðarlega jákvæð áhrif á allt starf knattspyrnudeildarinnar. Með fagmennsku sinni, metnaði og einlægum áhuga á uppbyggingu leikmanna og félagsins hefur hann skapað sterka menningu í kringum starfið – bæði hjá yngri flokkum og meistaraflokkum.

Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Nú í sumar leiddi Vesko meistaraflokk kvenna til glæsilegs árangurs þegar liðið tryggði sér sigur í 2. deild kvenna og þar með sæti í Lengjudeildinni á næsta ári. Það er stór áfangi fyrir félagið og afrakstur mikillar vinnu, samheldni og metnaðar.

Samhliða árangri meistaraflokkanna hefur yngri flokka starf félagsins tekið stórum framförum. Fjöldi iðkenda hefur aukist verulega og mikil áhersla hefur verið lögð á að skapa gott umhverfi þar sem leikmenn fá tækifæri til að þroskast bæði sem knattspyrnumenn og einstaklingar.

Vesko hefur ekki aðeins komið inn með þekkingu og reynslu sem þjálfari heldur einnig með sterka sýn á hvernig byggja á upp félag til framtíðar. Hann hefur verið frábær viðbót við samfélagið í Grafarvogi, kynnst fólkinu í kringum félagið og lagt sig fram um að vera mikilvægur hluti af þeirri uppbyggingu sem á sér stað innan Fjölnis.

Það er því mikið fagnaðarefni að hafa tryggt áframhaldandi starfskrafta Vesko hjá félaginu. Við hlökkum til næstu ára og munum áfram leggja okkur fram við að styðja við hans starf, hugmyndir og þá vegferð sem við erum á saman.


Fréttabréf 22. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Fréttabréf 22. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Frábær byrjun hjá meistaraflokki karla

Frá síðasta fréttabréfi hefur heilmikið verið að gerast í félaginu okkar. Hæst ber þó án efa glæsilegur sigur meistaraflokks karla í fyrsta heimaleik tímabilsins sem fram fór á laugardaginn. Þar unnu þeir sannfærandi 4-1 sigur á Skautafélagi Akureyrar.

Það var frábært að sjá hversu margir mættu til að styðja liðið okkar og lukkukrakkarnir sem komu fram í byrjun gáfu sannarlega tóninn fyrir skemmtilegan og fjörugan leik. Myndasyrpu frá leiknum má finna á Facebook-síðu íshokkídeildarinnar.

Fleiri flokkar hafa einnig verið í eldlínunni. Síðastliðinn þriðjudag sigraði U18-liðið okkar SR í hörkuspennandi leik. U16-liðin léku bæði um síðustu helgi. Á föstudaginn fór U16B-liðið í heimsókn í Laugardalinn þar sem heimaliðið hafði betur. Á laugardaginn tók U16A-liðið á móti SA og tapaði 4-5 í æsispennandi leik.

Í kvöld tekur U16B-liðið á móti SR í Egilshöllinni. Fyrir komandi helgi ríkir mikil spenna þar sem fyrsta helgarmótið í U12-flokki fer fram á Akureyri. Þar erum við með þrjú lið til keppni og verður án efa mikið fjör.

Að lokum er rétt að geta þess að lítið verður um æfingar í Egilshöllinni um helgina vegna mótahalds á vegum listskautadeildarinnar. Nánari upplýsingar má finna í Abler.

 

Stelpurnar okkar á Atlantic Cup um helgina

Nú um helgina tekur meistaraflokkur kvenna þátt í skemmtilegu æfingamóti, Atlantic Cup, sem fram fer á skautasvellinu í Laugardal. Þátttökuliðin eru fjögur. Auk íslensku liðanna þriggja verður landslið Írlands gestalið mótsins. Ekki er langt síðan írska kvennalandsliðinu var komið á fót og er liðið nú að stíga sín fyrstu skref.

Okkar stelpur leika einmitt opnunarleik mótsins gegn Írum og verður spennandi að fylgjast með þeirri viðureign. Eins og áður segir fara allir leikir mótsins fram í Laugardalnum og hér fyrir neðan er dagskráin. Við hvetjum sem flesta til að mæta og styðja stelpurnar okkar.

Föstudagur 25. september kl. 18:45
Fjölnir – Írland

Laugardagur 26. september kl. 16:45
Fjölnir – Skautafélag Akureyrar

Sunnudagur 27. september kl. 20:00
Fjölnir – Skautafélag Reykjavíkur

 

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Í upphafi keppnistímabils er ágætt að við foreldrar stöldrum aðeins við og minnum okkur á að við erum mikilvægustu fyrirmyndir barna okkar, bæði innan vallar og utan.

Þegar við mætum á leiki og æfingar fylgjast börnin með okkur ekki síður en þjálfurunum. Orð okkar, viðbrögð og framkoma kenna þeim hvernig á að sýna öðrum virðingu, takast á við sigra og ósigra og vera góðir liðsfélagar.

Hvetjum, styðjum og fögnum öllum börnum fyrir þeirra framlag. Gætum að orðum okkar gagnvart dómurum, andstæðingum, þjálfurum og öðrum foreldrum. Ef okkur þykir eitthvað verulega ábótavant í framkomu dómara eða annarra og teljum mikilvægt að koma því á framfæri, skulum við gæta þess að slíkar umræður fari ekki fram fyrir framan börnin okkar. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Með jákvæðri framkomu hjálpum við til við að skapa umhverfi þar sem börnum líður vel, njóta íþróttanna og geta blómstrað.

Munum að leikurinn er þeirra, en fyrirmyndin er okkar.


Daniel Pozo sigrar Haustmót TSÍ 100 2026

Daniel Pozo sigrar Haustmót TSÍ 100 2026

Haustmót TSÍ 100 2026 var haldið dagana 31. ágúst til 6. september á vegum Tennissambands Íslands. Mótið fór fram í Reykjavík og tóku leikmenn Fjölnis þátt í keppninni með góðum árangri.

Daniel Pozo með sannfærandi sigur

Daniel Pozo, leikmaður tennisdeildar Fjölnis, átti frábært mót og tryggði sér sigur í karlaflokki. Daniel, sem er aðeins 17 ára, sýndi mikla yfirburði á leið sinni að titlinum og vann báða leiki sína í útsláttarkeppninni í tveimur settum.

Í undanúrslitum mætti Daniel Felix Hjálmarssyni og hafði þar öruggan sigur, 6–1, 6–1. Í úrslitaleiknum mætti hann síðan Raj Kumar Bonifacius (Víkingur), einum af öflugustu leikmönnum landsins, og hélt uppteknum hætti með enn einum sannfærandi sigrinum, 6–1, 6–1.

Daniel vann því Haustmót TSÍ 100 án þess að tapa setti og sýndi afar öfluga frammistöðu alla leið að titlinum. Svo öruggur sigur gegn leikmanni af þessum styrkleika segir mikið um það hvar Daniel er kominn í dag og þær miklu framfarir sem hann hefur tekið.

Sigurinn gefur Daniel 100 TSÍ-stig og er hann nú kominn í 2. sæti á stigalista TSÍ með 505 stig, aðeins 95 stigum frá efsta sæti listans.

Árangurinn er enn einn stór áfanginn hjá Daniel, sem hefur átt afar gott ár og haldið áfram að sækja fram meðal sterkustu leikmanna landsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann öðlast mikla reynslu í keppni og sýnt stöðugt meiri þroska og öryggi á vellinum.

Sigurinn á Haustmóti TSÍ 100 er því enn ein staðfestingin á þeirri þróun sem Daniel hefur verið í og þeim mikla árangri sem hann hefur náð á undanförnum misserum. Fyrir tennisdeild Fjölnis er sérstaklega ánægjulegt að sjá ungan leikmann úr uppbyggingu félagsins ná slíkum árangri í meistaraflokki.

Daniel hefur verið hluti af tennisstarfi Fjölnis frá ungum aldri og hefur með mikilli vinnu, metnaði og sterku keppnishugarfari tekið stöðugum framförum. Hann er jafnframt mikilvæg fyrirmynd fyrir yngri leikmenn deildarinnar og sýnir hvað hægt er að ná langt með markvissri vinnu og réttum stuðningi.

Tennisdeild Fjölnis óskar Daniel innilega til hamingju með glæsilegan sigur og hlakkar til að fylgjast með honum halda áfram að taka næstu skref á sínum tennisferli!

Paula Marie í úrslitaleik kvenna

Fjölnir átti einnig fulltrúa í úrslitaleik kvenna þar sem Paula Marie Moreno Monsalve lék til úrslita. Paula mætti Hildi Sóley Freysdóttur (Víkingur) í úrslitaleiknum og hafnaði í 2. sæti eftir 7–5, 6–3 tap.

Þetta var góður árangur hjá Paulu sem er enn ungur leikmaður og er að öðlast mikilvæga reynslu með því að keppa í meistaraflokki. Hún hefur á síðustu mótum fengið tækifæri til að takast á við sterkari og reyndari leikmenn og heldur þannig áfram að byggja upp keppnisreynslu sína.

Tennisdeild Fjölnis óskar Paulu einnig til hamingju með silfurverðlaunin!


Hulda Ósk framlengir við Fjölni

Hulda Ósk framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleikskonan Hulda Ósk Bergsteinsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni og mun leika með liðinu í efstu deild á komandi tímabili.

Hulda er reynslumesti leikmaður liðsins og hefur verið mikilvægur hluti af uppbyggingu þess undanfarin ár. Hún tók við fyrirliðabandinu í sumar og mun leiða ungan og efnilegan leikmannahóp Fjölnis inn í komandi tímabil.

Þetta verður í annað sinn sem Hulda tekur slaginn með Fjölni í efstu deild, en reynsla hennar og leiðtogahæfileikar verða mikilvægir fyrir liðið í þeim verkefnum sem fram undan eru.

Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar framlengingunni. „Ég fagna því að fyrirliðinn okkar Hulda skuli hafa framlengt samning sinn fyrir komandi tímabil. Hulda er sannkallaður leiðtogi sem hefur verið burðarás í liðinu og sýnir frábært fordæmi fyrir þann efnilega hóp yngri leikmanna sem er að koma upp.“

Hulda er spennt fyrir því að takast á við efstu deild á ný með Fjölni. „Það er virkilega gaman að vera búin að endursemja við Fjölni og ég er mjög spennt fyrir vetrinum framundan. Það bíða okkar spennandi áskoranir og ég hlakka til að takast á við þær með liðinu. Við erum með mjög ungt lið, þannig verður sérstaklega gaman að fylgjast með efnilegu stelpunum okkar stíga upp og sýna öllum hvað í þeim býr.“

Við óskum Huldu til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá fyrirliðann leiða liðið út á völlinn í efstu deild á komandi tímabili.


Mæðgur léku saman með Fjölni í Toppdeildinni

Mæðgur léku saman með Fjölni í Toppdeildinni

Mæðgur léku saman með Fjölni í Toppdeildinni

Sá sjaldgæfi en skemmtilegi atburður átti sér stað í leik Skautafélags Akureyrar og Fjölnis í Toppdeild kvenna síðasta laugardag að mæðgur léku hlið við hlið í liði Fjölnis.

Á laugardaginn var fyrsti leikur Fjölniskvenna í Toppdeild kvenna þennan veturinn. Þar lék Elísabet Erla Grétarsdóttir (14 ára) sinn fyrsta leik í meistaraflokki með liði Fjölnis. Ekki er það eina fréttnæmt því með liðinu leikur einnig móðir hennar Sigrún Agatha Árnadóttir, margreynd landsliðskona í íshokkí. Þó úrslitin hafi ekki verið eins og best verður á kosið verður þetta örugglega eftirminnileg stund fyrir þær. Samkvæmt heimildum er þetta í fyrsta skipti sem mæðgur leika saman með kvennaliði Fjölnis í íshokkí, jafnvel innan alls félagsins.

Ekki er ólíklegt að þær mæðgur leiki aftur saman í fleiri leikjum í vetur.


Fréttabréf 14. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Fréttabréf 14. september 2026 - Björninn, Íshokkídeild Fjölnis

Foreldrafundir ganga vel – Takk fyrir góða þátttöku!

Í síðustu viku fóru fram foreldrafundir hjá U16, U14 og U12 en í eldri hópunum eru iðkendur líka boðaðir. Íshokkídeild vill þakka fyrir glimmrandi mætingu, frábært andrúmsloft og jákvæð viðbrögð við að finna fólk í þau verkefni sem framundan eru í foreldrastarfinu og starfi deildarinnar. Ennþá eru þó ýmis verkefni ómönnuð þannig að endilega látið í ykkur heyra ef þið hafið tíma aflögu í skemmtileg og mikilvæg verkefni. Það má til dæmis gera með því að hafa samband hokkiformadur@fjolnir.is

Á næstunni verð svo boðaðir foreldrafundir fyrir þau yngstu sem ætlunin er að fram fari í næstu viku.

 

Keppnistímabilið hafið hjá okkar fólki – Fyrsti heimaleikur meistaraflokks karla á laugardaginn!

Um síðustu helgi hófst keppnistímabilið hjá okkar fólki. Á föstudagskvöldið vann U16A glæsilegan sigur á SR. Á laugardaginn lék svo meistaraflokkur kvenna sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar þær héldu til Akureyrar og mættu heimakonum í SA. Þar biðu okkar dömur lægri hlut líkt U16B liðið okkar, sem einnig spilaði við SA á Akureyri á laugardag.

U18 ára liðið okkar mætir svo SR í Laugardalnum 15. september og á föstudagskvöld fer U16B í heimsókn í Laugardalinn. Á laugardaginn hefur meistaraflokkur karla svo leik á þessu tímabili. Þá er fyrsti heimaleikurinn þegar við tökum á móti SA hér í Egilshöllinni kl 16:45 og hvetjum við alla til að fjölmenna. Strax eftir karlaleikinn á laugardaginn fær svo U16A liðið okkar SA í heimsókn hingað í Egilshöllina.

 

Sala árskorta hafin – Tryggðu þér eintak!

Samhliða upphafi keppnistímabilsins hjá meistaraflokkunum okkar fer í gang sala árskorta. Árskortin eru mikilvægur liður í fjáröflunarstarfi meistaraflokkanna auk þess sem þau tryggja þér aðgang að Toppdeildum karla og kvenna í svölustu íþrótt í heimi, ásamt hressingu úr bestu búð landsins, Bjarnarbúðinni. Árskortin eru þetta árið boðin í fjórum mismunandi flokkum: Brons, silfur, gull og demantur. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvað mismunandi flokkar árskorta fela í sér.

Hægt er að tryggja sér eintak með því að senda póst á hokki@fjolnir.is.


Þórir, Einar og Tuomas komnir í þjálfarahóp Íshokkídeildar

Þórir, Einar og Tuomas komnir í þjálfarahóp Íshokkídeildar

Íshokkídeild hefur ráðið þrjá nýja þjálfara í barna- og unglingastarfið, þá Þóri Hermannsson Aspar, Einar Hildarson og Tuomas Ilmari Heikkonen.

 

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Þórir Hermannsson Aspar leikið íshokkí bæði hér á landi og í Svíþjóð. Hann hefur komið að aðstoðarþjálfun síðustu ár hjá Fjölni en kemur nú inn í lykilþjálfarastöðu hjá U14 og U16 liðunum ásamt Kris yfirþjálfara félagsins. Þórir mun jafnframt koma að markmannsþjálfun hjá yngstu iðkendunum.

 

Einar Hildarson hefur æft íshokkí árum saman. Hann hefur undanfarin ár aðstoðað við þjálfun yngstu iðkendana en kemur nú formlega inn í þjálfarateymið sem aðstoðarþjálfari með yfirþjálfurunum Andra og Flosrúnu í Hokkískóla barna ásamt U8 og U10 ára aldursflokkunum.

 

Tuomas Ilmari Heikkonen kom til Fjölnis á síðasta ári sem markvörður meistaraflokks karla. Hann er frá Finnlandi þar sem hann hefur spilað íshokkí frá blautu barnsbeini ásamt því að sinna þjálfun á síðustu árum. Tuomas mun sjá um þjálfun markvarða í U12, U14 og U16 flokkum.

 

Íshokkídeildin býður þá félaga hjartanlega velkomna til starfa!


Daníel Ágúst snýr aftur heim í Fjölni

Daníel Ágúst snýr aftur heim í Fjölni

Körfuknattleiksmaðurinn Daníel Ágúst Halldórsson er genginn aftur til liðs við Fjölni og mun leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili.

Daníel er uppalinn Fjölnismaður og þekkir félagið því vel. Undanfarin ár hefur hann aflað sér dýrmætrar reynslu bæði hér heima og erlendis. Hann lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum auk þess sem hann hefur reynslu úr efstu deild á Íslandi með Þór Þorlákshöfn og Haukum.

Það er því mikill styrkur fyrir Fjölni að fá Daníel aftur heim í Grafarvoginn. Hann kemur inn í hópinn með reynslu, gæði og leiðtogahæfileika sem munu nýtast liðinu vel, ekki síst ungum og efnilegum leikmannahópi félagsins.

Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar heimkomu Daníels. „Virkilega flottur leikmaður og karakter sem við í félaginu fáum. Daníel hefur sótt sér mikla reynslu bæði hérlendis og erlendis og mun koma til með að miðla henni áfram til yngri leikmanna.“

Daníel er ánægður með að vera kominn aftur á heimaslóðir. „Þakklæti er efst í huga þegar ég hugsa um að koma heim í Grafarvoginn. Ég er ótrúlega þakklátur Fjölni fyrir að taka mér opnum örmum, sérstaklega eftir erfið meiðsli. Ég er spenntur fyrir því að vinna að markmiðum með liðinu, leggja mitt af mörkum og taka þátt í því að byggja upp góðan hóp. Það verður líka sérstaklega gaman að fá að spila með vinum mínum aftur og njóta þess að vera á vellinum.“

Við bjóðum Daníel Ágúst hjartanlega velkominn aftur heim í Fjölni og hlökkum til að sjá hann í Fjölnisbúningnum á ný.


Elín Katla nær lágmörkum fyrir HM unglinga

Elín Katla nær lágmörkum fyrir HM unglinga

Elín Katla Sveinbjörnsdóttir, listskautakona úr Fjölni, hefur náð þeim lágmörkum sem þarf til að vinna sér inn keppnisrétt á heimsmeistaramóti unglinga í listskautum, ISU World Junior Figure Skating Championships.

Elín Katla náði lágmörkunum á sínu fyrsta móti í ISU Junior Grand Prix-mótaröðinni, sem fram fór í Bangkok um síðustu helgi. Þar hafnaði hún í 14. sæti af 38 keppendum og fékk samtals 141,83 stig, 51,10 fyrir stutta prógrammið og 90,73 fyrir frjálsa prógrammið.

Til að ná lágmörkum fyrir HM unglinga þurfa keppendur í flokki Junior Women að ná að minnsta kosti 72,00 tæknistigum. Elín Katla fékk 75,22 stig og náði því tilskildum lágmörkum.

Árangurinn er sérstaklega glæsilegur í ljósi þess að Elín Katla er á sínu fyrsta ári í unglingaflokki og var mótið í Bangkok aðeins annað alþjóðlega mót hennar. Hún er jafnframt aðeins annar íslenski skautarinn í sögunni til að ná lágmörkum fyrir heimsmeistaramót unglinga.

Heimsmeistaramót unglinga fer fram í Sofia í Búlgaríu í febrúar 2027. Fram undan hjá Elínu Kötlu eru fleiri verkefni, meðal annars Northern Lights Trophy í Reykjavík og Norðurlandamótið í Finnlandi.

Við hjá Fjölni óskum Elínu Kötlu innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi keppnistímabili!

Hægt er að horfa á frammistöðu Elínar Kötlu frá mótinu í Bangkok hér:

⛸️ Stutta prógrammið: https://youtu.be/pSVNj-P7ib8
⛸️ Frjálsa prógrammið: https://youtu.be/CAk4T4cBI_g


Góð æfingaferð Fjölnisstúlkna til Svendborg

Góð æfingaferð Fjölnisstúlkna til Svendborg

Meistaraflokkur, 1 og 2. flokkur kvenna í hópfimleikum hjá Fjölni hélt í æfingaferð til Svendborg í Danmörku í ágúst. Alls tóku 27 stelpur þátt í ferðinni.

Stelpurnar fengu tækifæri til að æfa við frábærar aðstæður í Svendborg, þar sem þær höfðu aðgang að glæsilegum æfingasölum og góðum áhöldum. Aðstaðan bauð upp á fjölbreyttar og krefjandi æfingar og nýttu stelpurnar tímann vel.

Æfingaferð af þessu tagi er hluti af starfi hópfimleikadeildar Fjölnis og er farin í á tveggja ára fresti. Mikil ánægja er með þessar ferðir enda skapa þær gott tækifæri fyrir iðkendur til að æfa við nýjar aðstæður, efla hópinn og safna dýrmætri reynslu.

Ferðin einkenndist af miklum og góðum æfingum, skemmtilegum samverustundum og góðri upplifun. Stelpurnar snúa því heim reynslunni ríkari og taka með sér bæði nýja þekkingu og góðar minningar inn í komandi tímabil hjá Fjölni.


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »