Karen Sævarsdóttir framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Handknattleikskonan Karen Sævarsdóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni.

Karen er miðjumaður, fædd árið 2009, og hefur sýnt stöðugar framfarir undanfarin misseri. Hún er öflugur og fjölhæfur leikmaður sem hefur sérstaklega skarað fram úr í varnarleiknum. Á síðasta tímabili steig hún sín fyrstu skref með meistaraflokki og stóð sig afar vel.

Meistaraflokksráð kvenna fagnar því að Karen verði áfram hluti af liðinu og lítur á hana sem mikilvægan þátt í framtíð félagsins. „Það gleður okkur mikið að Karen hafi framlengt samning sinn við félagið. Við bindum miklar vonir við hana og hlökkum til að sjá hana halda áfram að þróast og ná enn lengra í Fjölni.“

Karen segist spennt fyrir komandi verkefnum: „Ég er virkilega spennt fyrir komandi tímabili og að vera hluti af liðinu. Ég hlakka til að halda áfram að þróast sem leikmaður og leggja mitt af mörkum.“

Við óskum Karenu innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með henni í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »