Karl Arnar ráðinn aðstoðar- og markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Karl Arnar Bjarnason um þjálfarastörf hjá félaginu fyrir komandi tímabil. Karl verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna, markmannsþjálfari meistaraflokks og mun jafnframt koma að þjálfun 3. flokks ásamt markmannsþjálfun hjá yngri flokkum félagsins.

Karl býr yfir áratuga reynslu úr handboltanum, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann lék sem markmaður með Fylki, Aftureldingu, Val, Stjörnunni, Þrótti og síðast Fjölni áður en hann sneri sér alfarið að þjálfun. Frá árinu 2010 hefur hann starfað sem aðstoðarþjálfari, markmannsþjálfari og styrktarþjálfari hjá meðal annars Þrótti, Fjölni, Aftureldingu og síðast Víkingi. Auk þess hefur hann komið að hæfileikamótun HSÍ og haldið fyrirlestra um styrktarþjálfun yngri leikmanna.

Meistaraflokksráð kvenna fagnar komu Karls til félagsins. „Við erum mjög ánægð með að fá Karl til liðs við okkur. Hann býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem mun nýtast leikmönnum félagsins afar vel. Við bindum miklar vonir við samstarfið og hlökkum til að sjá hann leggja sitt af mörkum í áframhaldandi uppbyggingu handboltastarfsins hjá Fjölni.“

Karl hlakkar til að snúa aftur til Fjölnis: „Ég er mjög spenntur að fá að vinna aftur hjá Fjölni og fá tækifærið til að vinna með Þór, stelpunum í meistaraflokknum, 3. flokki og markmönnum félagsins. Ég hef mikla trú á að við sem lið og félag getum náð góðum árangri og haldið áfram að byggja ofan á það öfluga starf sem unnið er hjá félaginu. Ég tel að reynsla mín, þekking og áhugi geti orðið gott púsl í þennan flotta hóp.“

Við bjóðum Karl hjartanlega velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins á komandi tímabili.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »