Fréttabréf 11. október 2026 – Íshokkídeild Fjölnis

Hér kemur fréttabréf Íshokkídeildar í október.
Nóg að gerast á öllum vígstöðvum
Það hefur sannarlega verið mikið um að vera í Íshokkídeild Fjölnis undanfarnar vikur og má sjá umfjöllun um fjölbreytta starfsemi okkar, meðal annars í myndasyrpum á Facebook-síðu deildarinnar.
Yngstu iðkendur okkar tóku þátt í fyrsta móti vetrarins í Laugardalnum um síðustu helgi þar sem gleðin og stemningin voru í fyrirrúmi. U12-liðin okkar heimsóttu Akureyri á dögunum og gekk það afar vel. Um helgina fór síðan fram fyrsta U14 mót vetrarins. Stóðu bæði lið Fjölnis sig frábærlega og snúa heim efst í sínum flokkum.
U16A-liðið er á glæsilegri siglingu eftir sigra gegn SA á Akureyri og SR í Laugardalnum nýlega og situr liðið nú á toppi deildarinnar. U16B-liðið hefur átt aðeins erfiðara uppdráttar að undanförnu, en með áframhaldandi vinnu og samheldni er ljóst að betri tímar séu fram undan.
U18-liðið leikur sinn fyrsta heimaleik vetrarins á þriðjudagskvöld klukkan 19:45 gegn SR. Liðin mættust nýverið í Laugardalnum þar sem við höfðum sigur. U17 kvenna hefur síðan keppni á Akureyri síðar í þessum mánuði.
Meistaraflokkur kvenna leikur næst í Laugardalnum þriðjudaginn 27. október, en meistaraflokkur karla tekur þátt í fyrstu ofurhelgi ársins dagana 23.-25. október, þar sem liðið leikur einnig í Laugardalnum.
Við hvetjum alla stuðningsmenn til að fylgjast með starfseminni og mæta á leiki til að styðja liðin okkar.
Hokkískóli fullorðinna – þar sem draumarnir rætast
Einn stærsti og skemmtilegasti hópur í Íshokkídeild Fjölnis er hokkískóli fullorðinna. Hópurinn æfir tvisvar í viku undir stjórn Andra Freys þjálfara þar sem þátttakendur fara í gegnum æfingar og spila íshokkí í frábærum félagsskap.
Í hópnum eru einstaklingar á öllum getustigum og er sérstaklega vel tekið á móti nýliðum sem eru að stíga sín fyrstu skref, eða réttara sagt skauta sína fyrstu metra, á ísnum.
Allur nauðsynlegur búnaður er til útláns og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við Andra í gegnum netfangið andri.freyr@fjolnir.is.
Mynd fréttabréfsins að þessu sinni var tekin á æfingu hjá hokkískólanum nýlega.
Leikmannasamningar
Þessa dagana er verið að ganga frá leikmannasamningum við leikmenn meistaraflokka félagsins. Samningarnir fela fyrst og fremst í sér táknræna viljayfirlýsingu um samstarf leikmanns og félags á hæsta keppnisstigi í íslensku íshokkíi.
Fyrir félagið er öflug starfsemi meistaraflokka mikilvægur þáttur í uppbyggingu og þróun íshokkístarfsins. Sterkir meistaraflokkar hafa jákvæð áhrif á barna- og unglingastarfið og veita yngri iðkendum mikilvægar fyrirmyndir og markmið til að stefna að.
Á sama tíma er rekstur meistaraflokkanna enn krefjandi. Tekjur starfseminnar eru takmarkaðar og rekstur hennar stendur vart undir sér. Unnið er markvisst að því að fjölga styrktaraðilum og efla tekjugrunn félagsins til framtíðar.
Félagið leggur því áherslu á að veita leikmönnum eins góða aðstöðu, þjálfun og umgjörð og kostur er hér á landi. Þó eru fjárhagsleg framlög og búnaðarstyrkir enn takmarkaðir og byggir starfsemin að miklu leyti á þeirri ástríðu og metnaði sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar leggja í starfið á hverjum degi.
Leikmannsamningar verða kynntir með myndum af viðkomandi leikmönnum á miðlum félagsins. Fyrstu kynningarnar birtust í dag en svo munu koma 2-3 fréttir á dag, á næstu dögum og vikum.
Við hvetjum sem flesta til að vera dugleg að „læka“ á fréttirnar og hvetja þannig leikmennina okkar til dáða.
Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026






