Gunnar Valur Arason ráðinn þjálfari meistaraflokks karla

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur ráðið Gunnar Val Arason sem aðalþjálfara meistaraflokks karla til næstu tveggja ára.
Það er mikið ánægjuefni að Gunnar Valur hafi ákveðið að taka við liðinu og skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Með ráðningu hans stígur handknattleiksdeildin mikilvægt skref inn í komandi tímabil og bindur miklar vonir við áframhaldandi uppbyggingu liðsins undir hans stjórn. Gunnar Valur þekkir félagið einstaklega vel, bæði innan sem utan vallar, og hefur í undanfarin ár verið þjálfari meistaraflokks kvenna og yfirþjálfari yngri flokka. Hann er reynslumikill þjálfari með mikla þekkingu á leiknum, starfi félagsins og þeim gildum sem deildin vill vinna eftir.
Það er mikið fagnaðarefni að Gunnar Valur hafi tekið að sér þetta mikilvæga verkefni á þessum tímapunkti. Við erum sannfærð um að þekking hans, reynsla og metnaður muni nýtast liðinu vel og skapa góðan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Gunnar Valur hefst nú þegar handa við skipulag og undirbúning tímabilsins í Grill-66 deildinni sem framundan er. Jafnframt er unnið að því að semja við leikmenn liðsins og vonumst við til að geta á næstu vikum kynnt fleiri jákvæðar fréttir.
Stjórn handknattleiksdeildarinnar og meistaraflokkur karla lýsa yfir mikilli ánægju með að samkomulag hafi náðst við Gunnar Val og hlakka til farsæls samstarfs á komandi árum.
Velkominn til starfa, Gunnar Valur!
Aðrar fréttir af deildinni
Ólafur Malmquist framlengir við Fjölni
27/07/2026
Aníta Rut framlengir við Fjölni
23/07/2026
Karen Sævarsdóttir framlengir við Fjölni
22/07/2026
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026








