Guðmundur Hlífar gengur til liðs við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Guðmundur Hlífar hefur gengið til liðs við meistaraflokk karla hjá Fjölni frá Þór og skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Guðmundur, eða Mundi eins og hann er jafnan kallaður, er ungur og efnilegur hornamaður, fæddur árið 2006. Hann kemur til með að styrkja leikmannahóp Fjölnis og verður spennandi að fylgjast með honum taka næstu skref á sínum ferli í Grafarvoginum.
Meistaraflokksráð karla fagnar komu Guðmundar til félagsins. „Við erum mjög ánægð með að fá Munda til liðs við okkur. Hann er ungur og efnilegur leikmaður sem við höfum mikla trú á. Við hlökkum til að fá hann inn í hópinn og fylgjast með honum halda áfram að þróast sem leikmaður á komandi árum.“
Guðmundur er spenntur fyrir nýju verkefni í Fjölnisbúningnum. „Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir og hlakka mikið til að takast á við komandi tímabil með Fjölni. Það eru spennandi tímar fram undan og ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum með liðinu í vetur.“
Við bjóðum Guðmund Hlífar hjartanlega velkominn í Fjölni og hlökkum til að sjá hann í gulu og bláu á komandi tímabili!
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026









