Kolbrún Ída framlengir við Fjölni

Handknattleikskonan Kolbrún Ída hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni.
Kolbrún er efnilegur markmaður, fædd árið 2010, sem hefur tekið miklum framförum undanfarin misseri. Hún hefur sýnt að hún býr yfir miklum hæfileikum og hefur með vinnusemi sinni haldið áfram að þróast sem leikmaður. Miklar vonir eru bundnar við áframhaldandi þróun hennar á komandi árum.
Meistaraflokksráð kvenna fagnar því að Kolbrún verði áfram hluti af liðinu og telur áframhaldandi veru hennar mikilvæga fyrir framtíðina. „Það gleður okkur mjög að Kolbrún hafi framlengt samning sinn við félagið. Hún hefur tekið miklum framförum undanfarin misseri og við bindum miklar vonir við áframhaldandi þróun hennar. Við hlökkum til að fylgjast með henni vaxa og dafna í Fjölnisbúningnum.“
Kolbrún segist spennt fyrir komandi verkefnum: „Ég er rosalega spennt fyrir komandi tímabili og hlakka til að bæta mig sem leikmaður í þessu geggjaða liði.“
Við óskum Kolbrúnu innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með henni í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Ólafur Malmquist framlengir við Fjölni
27/07/2026
Aníta Rut framlengir við Fjölni
23/07/2026
Karen Sævarsdóttir framlengir við Fjölni
22/07/2026









