Aníta Rut framlengir við Fjölni

Handknattleikskonan Aníta Rut Jónsdóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni.
Aníta er skytta, fædd árið 2009, og hefur sýnt stöðugar framfarir undanfarin ár. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir tveimur tímabilum og hefur síðan þróast í öflugan leikmann sem á bjarta framtíð fyrir sér í Fjölnisbúningnum.
Meistaraflokksráð kvenna fagnar því að Aníta verði áfram hluti af liðinu og telur áframhaldandi veru hennar mikilvæga fyrir framtíð félagsins. „Það gleður okkur mikið að Aníta hafi framlengt samning sinn við félagið. Við erum sannfærð um að hún eigi eftir að styrkja lið Fjölnis mikið á komandi árum og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun hennar.“
Aníta segist spennt fyrir komandi verkefnum: „Ég er virkilega spennt fyrir komandi tímabili og þeim tækifærum sem það býður upp á. Ég hlakka til að bæta mig sem leikmaður og leggja mig fram.“
Við óskum Anítu innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með henni í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Ólafur Malmquist framlengir við Fjölni
27/07/2026
Karen Sævarsdóttir framlengir við Fjölni
22/07/2026
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026









