Fréttabréf 12. nóvember 2026 - Íshokkídeild Fjölnis
Fréttabréf 12. nóvember 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Glæsileg gjöf frá Gulldeildinni
Á dögunum barst íshokkídeildinni glæsileg gjöf frá Gulldeildinni. Gjöfin samanstendur af tveimur fullbúnum markmannssettum ásamt markmannskylfum fyrir unga markverði. Búnaðurinn er frá CCM og er hvort sett að verðmæti tæplega 200 þúsund krónur. Gulldeildin er skipulögð áhugamannadeild utan hefðbundinnar Íslandsmótakeppni, ætluð fullorðnu áhugafólki um íshokkí. Einkunnarorð mótsins eru: „Gamaldags hokkí. Engin tónlist, engar afsakanir – bara pökkurinn og hornin.“ Ein af okkar efnilegu markvörðum, Salka Sól, mun leika í öðru settinu í vetur en þessa dagana er verið að koma hinu settinu í góðar hendur hjá öðrum ungum markverði. Salka Sól er fremst á myndinni í nýju græjunum, ásamt nokkrum félögum sínum og þjálfurunum Flosrúnu, Cassöndru og Kris. Íshokkídeildin sendir forsvarsfólki Gulldeildarinnar hjartans þakkir fyrir þessa glæsilegu og höfðinglegu gjöf. Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli og hjálpar okkur að skapa enn betri aðstæður fyrir unga íshokkíiðkendur.
Nóg að gerast þessa dagana
Það er af nægu að taka í íshokkídeildinni þessa dagana. Á morgun heldur meistaraflokkur kvenna í Laugardalinn og mætir þar heimakonum í SR. Búast má við spennandi leik, enda fór síðasti leikur liðanna í sögubækurnar fyrir lengstu vítakeppni Íslandssögunnar, 42 víti takk fyrir, eins og frægt er orðið!
Á laugardaginn heldur meistaraflokkur karla norður til Akureyrar og mætir þar heimamönnum. Með í för verður 16A-liðið okkar, sem spilar við heimaliðið strax að loknum leik karlanna.
Á föstudaginn í næstu viku, 20. nóvember, fær meistaraflokkur karla svo SR í heimsókn í Egilshöllina. Þá helgi verður heldur betur líf og fjör í höllinni þegar við verðum gestgjafar annars helgarmóts tímabilsins hjá U12-liðum landsins.
Verum dugleg að mæta og styðja okkar fólk! 🏒🖤💛💙
Viltu leggja þitt af mörkum?
Til þess að jafn umfangsmikil starfsemi og fram fer hjá íshokkídeildinni okkar geti blómstrað þurfum við að treysta á krafta fjölda sjálfboðaliða. Sem betur fer höfum við verið einstaklega heppin með fólk sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum svo starf deildarinnar gangi sem best.
Við fáum grunnþjónustu frá skrifstofu Fjölnis en að öðru leyti er starf deildarinnar, fyrir utan þjálfunina, unnið í sjálfboðavinnu. Við erum ótrúlega þakklát öllum þeim sem gefa tíma sinn og krafta í starfið og mikilvægt er að við sýnum því fólki bæði þakklæti og virðingu. Stundum ganga hlutirnir kannski aðeins hægar fyrir sig en við myndum helst vilja, en þá er gott að hafa í huga að fólkið okkar sinnir þessu starfi launalaust í frítíma sínum.
Og okkur vantar alltaf fleiri í hópinn! Verkefnin eru fjölbreytt, meðal annars samfélagsmiðlar og auglýsingar, útbreiðslustarf, sjúkrateymi, störf á heimaleikjum og ýmis önnur verkefni. Þá fer einnig fram mikilvæg sjálfboðavinna innan hvers flokks hjá foreldraráðum og foreldrum.
Ef þú hefur áhuga á að kynnast skemmtilegu fólki, taka þátt í öflugu samfélagi og leggja þitt af mörkum til að gera deildina okkar enn betri, þá viljum við endilega heyra frá þér. Hafðu samband við einhvern úr stjórninni eða sendu okkur einfaldlega tölvupóst á hokki@fjolnir.is.
Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
Flosrún Vaka gerir nýjan samning


Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
Steinunn Erla áfram með Fjölni

Steinunn Erla áfram með Fjölni

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni


Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Tindra Mist skrifar undir sinn fyrsta samning
Tindra Mist skrifar undir sinn fyrsta samning

Tindra Mist skrifar undir sinn fyrsta samning
Tindra Mist Kristjánsdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Tindra Mist, sem er aðeins 14 ára gömul, hefur alist upp í yngri flokkum félagsins og getið sér mjög gott orð með frammistöðu sinni undanfarin ár. Hún er afar efnilegur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir mikinn dugnað, vinnusemi og einstaklega góðan leikskilning. Hún er yfirveguð í sínum aðgerðum og hefur sýnt mikinn metnað til að bæta sig og þróast áfram sem leikmaður.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Tindra Mist sýnt að hún er tilbúin að taka næsta skref. Það verður því spennandi að fylgjast með henni takast á við nýjar áskoranir með meistaraflokki og halda áfram að vaxa og þroskast sem leikmaður.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá unga leikmenn úr okkar eigin starfi taka skrefið upp í meistaraflokk. Tindra Mist hefur einstakan hæfileika til að lesa leikinn, er dugleg og metnaðarfull og við höfum mikla trú á henni til framtíðar. Hún á eftir að halda áfram að vaxa sem leikmaður og við hlökkum mikið til að fylgjast með hennar næstu skrefum,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með Tindru Mist á myndinni. 💛💙🏒

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning
Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning

Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning 💛💙🏒
Brynja Líf Jóhannesdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Brynja er yngsti leikmaður meistaraflokks kvenna í vetur, en hún er aðeins 13 ára gömul á þessu ári. Þrátt fyrir ungan aldur er hún gríðarlega efnilegur sóknarmaður og hefur verið mikill markahrókur í öllum yngri flokkum. Hún hefur vakið athygli fyrir mikla sóknarhæfileika, áræðni og gott auga fyrir marki.
Brynja hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum og er nú farin að stíga sín fyrstu skref sem fastamaður í meistaraflokki. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi þróun hennar á næstu árum.
„Það er frábært að vera með leikmann eins og Brynju í hópnum. Hún er gríðarlegt efni, metnaðarfull og virkilega gaman að fylgjast með henni þróast sem leikmanni. Ég er sannfærður um að áður en langt um líður munu allir sem fylgjast með íslensku íshokkíi vita hver Brynja Líf er,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með Brynju á myndinni. 💛💙🏒

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Eygló Yrsa gerir samning við Fjölni
Eygló Yrsa gerir samning við Fjölni

Eygló Yrsa gerir samning við Fjölni ![]()
![]()
![]()
Varnarjaxlinn Eygló Yrsa Þórhallsdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis. Eygló Yrsa er aðeins á 14 ári en afar efnilegur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir mikla vinnusemi og metnað. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik vorið 2025 og tók þátt í fimm leikjum liðsins í fyrra.
Eygló er nú á sínu fyrsta tímabili sem formlegur leikmaður með meistaraflokkshópi Fjölnis. Hún hefur tekið miklum framförum undanfarnar vikur og er strax að fá stærra hlutverk innan liðsins. Það er því ljóst að spennandi framtíð bíður hennar hjá félaginu.
„Eygló er frábær liðsfélagi og hefur komið af miklum krafti inn í meistaraflokkshópinn á sínu fyrsta tímabili. Hún er metnaðarfull, dugleg og tekur stöðugum framförum. Það verður virkilega gaman að fylgjast með henni í vetur og framtíðinni,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með Eygló á myndinni.

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Svandís Erla skrifar undir hjá Fjölni
Svandís Erla skrifar undir hjá Fjölni

Svandís Erla skrifar undir hjá Fjölni
Svandís Erla Pétursdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Svandís Erla er mjög efnilegur sóknarmaður. Þrátt fyrir ungan aldur lék hún sinn fyrsta leik með meistaraflokki félagsins vorið 2025 og festi sig í sessi sem fastamaður í liðinu á síðasta tímabili.
Aðeins 14 ára gömul var Svandís valin í U18 landslið kvenna í byrjun þessa árs og var hluti af íslenska landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Suður-Afríku. Þar öðlaðist hún dýrmæta reynslu á alþjóðlegum vettvangi sem án efa mun nýtast henni vel á komandi árum.
Svandís er fyrirmynd bæði innan vallar sem utan. Hún er samviskusöm, mætir af miklum dugnaði á æfingar og leggur áherslu á heilbrigðan lífsstíl. Þessir eiginleikar, ásamt hæfileikum hennar á ísnum, gera hana að verðmætum liðsmanni og spennandi leikmanni til framtíðar.
„Svandís er metnaðarfullur leikmaður sem leggur sig alltaf fram og er frábær liðsfélagi. Hún hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og við hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að vaxa og dafna í Fjölni,“ segir Krisjanis Abolins, yfirþjálfari Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með henni á myndinni💛💙🏒

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Heiða Marín skrifar undir hjá Fjölni
Heiða Marín skrifar undir hjá Fjölni

Heiða Marín Ásmundardóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Heiða Marín er afar efnilegur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir öruggan leik og mikla vinnusemi. Þrátt fyrir ungan aldur lék hún sína fyrstu leiki með meistaraflokki félagsins vorið 2025 og festi sig síðan í sessi sem fastamaður í liðinu á síðasta tímabili.
Íjanúar síðastliðnum var Heiða valin í U18 landslið kvenna, aðeins 14 ára gömul. Þar lék hún alla leiki Íslands á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Suður-Afríku og öðlaðist dýrmæta reynslu á alþjóðlegum vettvangi.
„Heiða er einstaklega dugleg að hvetja liðfélagana áfram og því frábært að hafa hana í okkar liði. Hún á bara eftir að verða ennþá betri,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með henni á myndinni![]()
![]()
![]()

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Andrea skrifar undir sinn fyrsta leikmannasamning
Andrea skrifar undir sinn fyrsta leikmannasamning

Andrea Kristjánsdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning hjá Íshokkídeild Fjölnis.
Andrea er ein efnilegasta íshokkístúlka landsins. Hún hefur tekið þátt í starfi meistaraflokks frá aðeins 12 ára aldri og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2025. Þrátt fyrir að vera aðeins 14 ára hefur hún þegar unnið sér inn mikilvægt hlutverk í varnarleik liðsins með dugnaði, metnaði og stöðugum framförum.
Andrea er einnig fyrirmynd utan vallar. Hún er samviskusöm á æfingum, leggur mikið upp úr heilbrigðum lífsstíl og sýnir þann aga og vinnusemi sem þarf til að ná langt í íþróttum.
„Andrea er leikmaður sem hvert lið myndi vilja hafa í sínum röðum og við hjá Fjölni erum afar heppin að hafa hana hjá okkur,“ segir Kris Abolis, yfirþjálfari Fjölnis, sem er með henni á myndinni.

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026

