Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni

Handknattleikskonan Ragnheiður Sæunn Aðalsteinsdóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni til næstu tveggja ára.

Ragnheiður er uppalin hjá Fjölni og hefur þróast í öflugan leikmann. Hún er sterk í vörninni, öflug skytta og býr yfir góðu auga fyrir leiknum sem nýtist liðinu vel beggja vegna vallarins.

Meistaraflokksráð kvenna fagnar því að Ragnheiður verði áfram hluti af liðinu og telur áframhaldandi veru hennar mikilvæga fyrir uppbyggingu hópsins. „Það er okkur mikið ánægjuefni að Ragnheiður verði áfram í Fjölnislitunum. Hún er uppalin hjá félaginu og hefur sýnt stöðugar framfarir undanfarin ár. Við hlökkum til að sjá hana halda áfram að vaxa með liðinu og óskum henni innilega til hamingju með nýja samninginn.“

Ragnheiður segist spennt fyrir komandi verkefnum: „Ég hlakka til frábærs tímabils og til að leggja mitt af mörkum með þessum geggjuðu stelpum!“

Við óskum Ragnheiði innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með henni í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »