Böðvar Óttar skrifar undir sinn fyrsta samning við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Böðvar Óttar Steindórsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk karla hjá Fjölni til tveggja ára.

Böðvar er ungur og efnilegur línumaður, fæddur árið 2010, sem hefur alla burði til að verða mikilvægur leikmaður fyrir Fjölni á komandi árum. Hann er einn af þeim ungu leikmönnum félagsins sem eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki.

Meistaraflokksráð karla fagnar því að Böðvar hafi skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið. „Það er mjög ánægjulegt að sjá unga og efnilega leikmenn taka næstu skref með Fjölni. Böðvar er metnaðarfullur leikmaður sem við höfum mikla trú á og hlökkum til að fylgjast með honum halda áfram að þróast og fá fleiri tækifæri með meistaraflokknum á komandi árum.“

Böðvar er ánægður með að hafa skrifað undir sinn fyrsta samning. „Ég er mjög glaður með að hafa skrifað undir samning við Fjölni og bíð spenntur eftir komandi tímabilum með þessum spennandi hópi.“

Við óskum Böðvari Óttari innilega til hamingju með fyrsta samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum í Fjölnisbúningnum á komandi árum!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »