Þorleifur Rafn framlengir við Fjölni til tveggja ára

Handknattleiksmaðurinn Þorleifur Rafn Aðalsteinsson hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni til tveggja ára.

Þorleifur er reyndur miðjumaður og uppalinn Fjölnismaður sem þekkir félagið vel. Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu og mun reynsla hans og leikskilningur nýtast hópnum vel í þeim verkefnum sem fram undan eru.

Meistaraflokksráð karla fagnar því að Þorleifur verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Við erum afar ánægð með að Þorleifur hafi framlengt samning sinn við félagið. Hann er reynslumikill leikmaður sem þekkir félagið vel og gegnir mikilvægu hlutverki innan hópsins. Við höfum mikla trú á því að hann muni áfram reynast liðinu mikilvægur á komandi tímabilum.“

Þorleifur er sömuleiðis ánægður með að halda áfram í Grafarvoginum. „Ég er hæstánægður með að halda áfram með Fjölni. Það er mikil samheldni í hópnum og nýju strákarnir hafa komið vel inn í liðið og fært góða orku inn í hópinn. Við vitum að það er erfið vinna fram undan en ég held að við getum gert mjög spennandi hluti saman. Ég hef mikla trú á okkur og er virkilega spenntur fyrir komandi tímum.“

Við óskum Þorleifi til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hann áfram í Fjölnisbúningnum á komandi árum!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »