Fréttabréf Tennisdeildar

Fréttabréf Tennisdeildar


Fréttir af háskólastelpunum okkar

Háskólastelpurnar okkar Bryndís og Eygló hafa hafið keppnistímabilið af fullum krafti. Bryndís er á háskólastyrk við University of the Cumberlands í Williamsburg í Kentucky þar sem hún er á sínu öðru ári, en Eygló er á sínu fyrsta ári á háskólastyrk við University of Southern New Hampshire í Manchester í New Hampshire.

Bryndís hefur þegar látið að sér kveða og var valin NAIA Mid-South Conference Player of the Week í síðustu viku og bætir þar með fyrsta MSC Tennis Player of the Week titlinum á ferilskrána sína.

Í byrjun árs mætti hún einnig Bellarmine University sem er D1 skóli. Andstæðingurinn hennar í einliðaleiknum er í kringum sæti 5700 á heimslistanum, en Bryndís vann leikinn sannfærandi eftir að hafa tapað fyrsta settinu, 3–6, 6–3, 6–3. Þetta er risastór sigur fyrir Bryndísi og tennisdeild Fjölnis og stærsti sigur hennar hingað til.


Árangur innanlands

Daniel Pozo hefur einnig verið að standa sig afar vel hér heima á Íslandi. Hann er ótrúlega metnaðarfullur leikmaður sem hefur verið að stíga mikið upp að undanförnu og sýnt stöðugar framfarir í sínum leik.

Fyrsta tennismót ársins á vegum Tennissambands Íslands var Vormót HMR-TSÍ, þar sem Daniel komst alla leið í úrslit. Þar spilaði hann hörkuleik gegn Rafni Kumar Bonifacius, sem er númer eitt á Íslandi, og sýndi þar vel hversu langt hann er kominn í sinni þróun sem leikmaður.



Fjölnisstrákar á reynslu hjá Sandefjord í Noregi

Fjölnisstrákar á reynslu hjá Sandefjord í Noregi

Í síðustu viku fóru fjórir efnilegir leikmenn úr Fjölni á reynslu til norska félagsins Sandefjord. Um er að ræða þá Baltasar Þór Laufarsson (2009), Brynjar Elí Jóhannsson (2010), Elvar Inga Pétursson (2010) og Frosta Hjaltason (2010).

Strákarnir æfðu með U17 ára liði félagsins við frábærar aðstæður á Jotun Arena vellinum, en þjálfari liðsins er Axel Örn Sæmundsson sem er að hefja sitt annað tímabil með liðið. Auk æfinga með liðinu fengu þeir einnig tækifæri til að spila æfingaleik gegn Start, þar sem Sandefjord hafði betur í skemmtilegum leik, 4–3.

Leikmennirnir stóðu sig gríðarlega vel á reynslunni og var greinilegt að þeir nýttu ferðina vel bæði til að læra og kynnast nýju umhverfi. Það verður spennandi að fylgjast með framvindu þeirra á næstunni.

Með í för voru einnig þrír þjálfarar úr Fjölni: Matthías Ásgeir Ramos Rocha, yfirþjálfari karla, Unnar Jóhannsson þjálfari 3. flokks og afreksþjálfari, auk Veigars Arnar Rúnarssonar þjálfara í kvennaflokkum félagsins. Ferðin var því einnig góð tengslamyndun og lærdómstækifæri fyrir bæði leikmenn og þjálfara.


Aðalfundur íshokkýdeildar Fjölnis

Aðalfundur íshokkýdeildar Fjölnis

Aðalfundur íshokkýdeildar Fjölnis verður haldinn 25. mars n.k. kl. 18.00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf

Í 17 grein laga félagsins segir:

Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.

Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

 

Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is eigi síðar en 20 mars n.k.

Aðalfundur Skautafélags Bjarnarins

Þá verður aðalfundur Skautafélagsins Bjarnarins haldinn þann 23. mars n.k. kl.20:00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.

Dagskrá:

Kjör nýrrar stjórnar.


Aðalfundur knattspyrnudeildar Fjölnis

Aðalfundur knattspyrnudeildar Fjölnis

Aðalfundur knattspyrnudeildar Fjölnis verður haldinn 23. mars n.k. kl. 17.00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf

Í 17 grein laga félagsins segir:

Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.

Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

 

Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is eigi síðar en 18 mars n.k.


Momola semur við Fjölni

Momola semur við Fjölni

Momolaoluwa Adesanmi, eða Mo eins og hún er kölluð, hefur skrifað undir eins árs samning við félagið og mun því spila áfram með Fjölni á komandi keppnistímabili. Mo gekk til liðs við félagið á síðasta ári eftir langvarandi meiðsli og vann sig hægt og bítandi upp í liðið.

Mo lék einnig með Fjölni í Lengjudeildinni tímabilið 2022 og hefur nú þegar spilað 28 leiki fyrir félagið. Hún er mikil fyrirmynd innan hópsins og leggur sitt af mörkum til að hjálpa yngri leikmönnum að þróast og bæta sig.

Vesko þjálfari liðsins hafði þetta um framlenginguna að segja: „Það er mikill ánægja að tryggja Mo áfram hjá félaginu á næsta tímabili. Hún er gríðarlega sterkur varnarmaður sem gefur okkur mikinn styrk í leikjum. Mo er hugrökk, vinnusöm og tilbúin að takast á við allar áskoranir til að hjálpa liðinu. Hún sneri sterk til baka eftir meiðsli og er nú stöðugt að sýna gæði sín, nánast dag frá degi. Ég hlakka mikið til að sjá hana ná fullum möguleikum sínum á tímabilinu.“


Helena og Ísabella semja við Fjölni

Helena og Ísabella semja við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við Helenu Fönn Hákonardóttur og Ísabellu Rós Bjarkadóttur til ársins 2027.

Helena og Ísabella, sem eru að gera sína fyrstu samninga við Fjölni, eru báðar efnilegir leikmenn fæddar árið 2010 og hafa verið mikilvægur hluti af liðum félagsins í 2. og 3. flokki. Samhliða því hafa þær einnig aflað sér dýrmætrar reynslu með þátttöku í leikjum og æfingum með meistaraflokki.

Helena er kantmaður og lék sinn fyrsta leik fyrir Fjölni árið 2024 í útileik gegn Sindra og hefur alls spilað 8 leiki fyrir meistaraflokk. Ísabella er miðjumaður og lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk í fyrstu umferð tímabilsins 2025 gegn Selfossi. Hún hefur alls spilað 5 leiki fyrir meistaraflokk.

Fjölnir bindur miklar vonir við báðar til framtíðar og lítur á þær sem mikilvæga leikmenn og fyrirmyndir innan félagsins.


Fjölnir hlýtur hvatningarverðlaun KSÍ í dómaramálum 2025

Fjölnir hlýtur hvatningarverðlaun KSÍ í dómaramálum 2025

Ungmennafélagið Fjölnir hefur hlotið hvatningarverðlaun KSÍ í dómaramálum árið 2025, sem eru veitt árlega í aðdraganda ársþings Knattspyrnusambands Íslands. Viðurkenningin er veitt félögum sem sýna metnað, framtíðarsýn og markvissa uppbyggingu í dómaramálum.

Dómaraverðlaunum KSÍ er skipt í tvo flokka: Fyrirmyndarfélag í dómaramálum og Hvatningarverðlaun í dómaramálum. Fjölnir hlýtur hvatningarverðlaunin fyrir markvisst starf og jákvæða þróun í dómgæslu innan félagsins.

Á árinu 2025 tók Fjölnir stórt skref í uppbyggingu dómaramála með því að fá Oddberg Eiríksson, fyrrverandi FIFA aðstoðardómara, til starfa sem dómarastjóra félagsins. Oddbergur hefur komið inn með mikinn kraft, skýra sýn og faglegt skipulag sem hefur styrkt dómgæsluna innan Fjölnis til muna. Oddbergur er sömuleiðis þjálfari í yngri flokkum og því mikill liðsfengur fyrir félagið.

Undir hans stjórn hefur félagið lagt aukna áherslu á fræðslu og þjálfun dómara, meðal annars með fjölgun dómaranámskeiða, sem hefur skilað sér í auknum fjölda virkra dómara, bæði karla og kvenna. Þessi þróun styrkir ekki aðeins starf Fjölnis heldur einnig knattspyrnuna í heild sinni.

Viđurkenning KSÍ er staðfesting á því mikilvæga starfi sem unnið er innan félagsins og hvatning til áframhaldandi uppbyggingar á sviði dómaramála.

Á myndinni eru Oddbergur Eiríksson, dómarastjóri Fjölnis, og Ingi Rafn Ingibergsson, starfsmaður KSÍ í dómaramálum.


2. flokkur karla Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu

2. flokkur karla Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu

Í gær urðu 2. flokkur Fjölnis í knattspyrnu Reykjavíkurmótsmeistarar 2026. Liðið tryggði sér titilinn með sannfærandi 5–0 sigri á Fylki í úrslitaleiknum en fyrir leikinn hafði það farið taplaust í gegnum sinn riðil þar sem það vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli.

Mörk Fjölnis í úrslitaleiknum skoruðu Aron Sölvi (2), Elmar Daði, Daníel Tal og Tómas Aris.

Frábær frammistaða og vel að verki staðið!


Christina Alba heldur áfram að bæta sig á hlaupabrautinni

Christina Alba heldur áfram að bæta sig á hlaupabrautinni

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir heldur áfram að sýna stöðugar framfarir á hlaupabrautinni og staðfesti frábæra formið sitt á Nike móti FH sem fram fór í Kaplakrika fimmtudaginn 19. febrúar.

Christina hljóp 60 metra á 7,41 sekúndu og bætti þar með sinn eigin árangur enn frekar, aðeins nokkrum dögum eftir að hún setti Íslandsmet í 60 metra hlaupi í flokki 18–19 ára stúlkna á Meistaramóti Íslands 15–22 ára. Þar hljóp hún á 7,44 sekúndum og bætti fyrra met um 3 sekúndubrot.

Tíminn 7,41 sekúnda er aðeins 6/100 frá Íslandsmeti kvenna í greininni, sem er 7,35 sekúndur, og undirstrikar hversu hratt Christina er að nálgast besta árangur landsins frá upphafi.

Hlaup Christinu var stigahæsta afrek Nike mótanna þetta tímabilið með 1.081 stig og hlaut hún verðlaun frá Nike fyrir þann árangur.


Fulltrúar Fjölnis á U18 heimsmeistaramótinu í íshokkí

Fulltrúar Fjölnis á U18 heimsmeistaramótinu í íshokkí

Þrír leikmenn úr Íshokkídeild Fjölnis taka nú þátt á U18 heimsmeistaramótinu í íshokkí, þar sem þeir keppa með íslenska landsliðinu og eru fulltrúar Fjölnis á alþjóðavettvangi.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Baldur Örn Mortensen, Gabriel Egilsson og Tryggvi Páll Snævarsson, sem allir eru í eldlínunni á mótinu og safna dýrmætri reynslu gegn sterkum þjóðum í sínum aldursflokki. U18 heimsmeistaramótið er mikilvægur vettvangur fyrir unga leikmenn til að mæta alþjóðlegri samkeppni og er þátttaka þeirra Baldurs, Gabriels og Tryggva Páls bæði félaginu og íslensku íshokkíi til mikils sóma.

Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Alþjóða íshokkísambandsins (IIHF).



UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »