Flottar íshokkístelpur Fjölnis fulltrúar í U14 Select-liði Íslands í París

Síðustu vikuna í júlí fór fram í París, alþjóðlegt mót U14 stúlkna í íshokkí í AA flokki. Ísland sendi sameiginlegt lið frá íslensku félögunum og mættu þær úrvalsliðum frá nokkrum löndum eins og Frakklandi, Sviss, Finnlandi, Svíþjóð, Kanada og Norðurhluta Bandaríkjanna. Fjölnir átti sex glæsilega fulltrúa í liðinu, þær Elísabetu Erlu, Karen Rut, Rakel, Rebekku Rán, Svandísi Erlu og Töru Sif, en auk þess var Sigrún Agatha (Agga) leikmaður í meistaraflokki Fjölnis, liðstjóri liðsins. Þó töluverð brekka hafi verið fyrir okkar stelpur inn á svellinu gegn þessum stórþjóðum íshokkíheimsins, heppnaðist ferðin mjög vel. Íslensku stelpunum gafst einstakt tækifæri kynnast innbyrðis og að bæta sig innan vallar og utan auk þess að kynnast íshokkístelpum víðvegar að úr heiminum.
Fjölnir óskar stelpunum okkar til hamingju með flottan árangur. Jafnframt vill félagið hrósa Íshokkísambandi Íslands fyrir þetta metnaðarfulla framtak og vonast til að verkefnið verði áfram hluti af uppbyggingu ungra íslenskra íshokkíleikmanna.
Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026








