Hagkaup og knattspyrnudeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning

Hagkaup og Fjölnir skrifa undir þriggja ára samstarfssamning
Hagkaup og knattspyrnudeild Fjölnis hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu starfs deildarinnar. Samningurinn styður við öflugt barna-, unglinga- og afreksstarf félagsins og styrkir enn frekar þær stoðir sem starfsemin byggir á.
Sem hluti af samstarfinu mun Hagkaup jafnframt bera nafn Þorramóts félagsins fyrir 8. flokk, sem framvegis mun heita Hagkaupsmótið. Mótið hefur verið fastur liður í starfi félagsins um árabil og er einn af hápunktum yngri flokka starfsins á hverju ári. Hagkaup mun einnig leggja til verðlaun fyrir iðkendur mótsins, meðal annars ávexti og verðlaunapeninga.
Birgir Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar samstarfinu og telur það mikilvægt fyrir áframhaldandi þróun starfsins.
„Samningurinn styrkir stoðir starfsins innan frá og við fögnum ríkulegri aðkomu Hagkaupa að starfsemi félagsins. Hagkaup er stór hluti af lífi Grafarvogsbúa og því sérstaklega ánægjulegt að hefja þetta samstarf“, segir Birgir.
Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, segir fyrirtækið stolt af því að taka þátt í starfi félagsins.
„Við erum afar stolt af því að hefja þetta samstarf með Fjölni. Í Hagkaup leggjum við mikla áherslu á að styðja við heilbrigt og öflugt samfélag og þar gegna íþróttafélög lykilhlutverki. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að geta lagt okkar af mörkum til barna- og unglingastarfs félagsins og tekið þátt í að skapa jákvæðar upplifanir fyrir ungt íþróttafólk og fjölskyldur þeirra. Við hlökkum til samstarfsins á komandi árum og að sjá Hagkaupsmótið vaxa og dafna“, segir Eva Laufey.
Knattspyrnudeild Fjölnis fagnar samstarfinu og hlakkar til að vinna með Hagkaup á komandi árum að áframhaldandi uppbyggingu öflugs knattspyrnustarfs í Grafarvogi.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026






