Freyja Ólafsdóttir semur við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við varnarmanninn Freyju Ólafsdóttur til ársins 2027.

Það er mikið ánægjuefni að Freyja hafi gengið til liðs við Fjölni og styrki leikmannahóp meistaraflokks kvenna. Freyja er fædd árið 2008 og kemur til félagsins frá ÍH, en er uppalin hjá FH. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar leikið 41 leik í meistaraflokki og öðlast þar dýrmæta reynslu.

Freyja er efnilegur varnarmaður sem býr yfir góðri tækni, sterkri boltatækni og leikskilningi sem fellur vel að leikstíl Fjölnis. Hún getur einnig leyst stöðu á miðjunni, sem eykur möguleika liðsins fyrir komandi verkefni.

Vesko, þjálfari meistaraflokks kvenna, lýsir yfir mikilli ánægju með komu Freyju:

„Við erum mjög ánægð með að fá Freyju til liðs við okkur. Hún er afar efnilegur leikmaður sem passar vel inn í okkar leikstíl. Freyja er sterkur varnarmaður, með góða boltatækni og öflug í návígjum. Hún sýnir mikinn metnað og hungur til að ná árangri og því fellur hún vel inn í hópinn. Hún getur einnig leyst hlutverk á miðsvæðinu sem gefur okkur fleiri möguleika í mikilvægum leikjum fram undan. Við hlökkum til að sjá hana bæði núna og á komandi árum.“

Freyja hlakkar til nýja kaflans í Grafarvogi:

„Ég er virkilega spennt að vera komin í Fjölni og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir með félaginu. Stelpurnar hafa tekið einstaklega vel á móti mér og ég finn strax fyrir jákvæðum anda í hópnum.“

Við bjóðum Freyju hjartanlega velkomna í Fjölni og hlökkum til að sjá hana láta til sín taka í Fjölnistreyjunni.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »