Gunnar framlengir sem þjálfari meistaraflokks karla

Íshokkídeild Fjölnis hefur endurnýjað samning við Gunnar Guðmundsson um áframhaldandi þjálfun meistaraflokks karla. Gunnar hefur stýrt liðinu undanfarin tvö tímabil og heldur því áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað á síðustu árum.

Gunnar er reynslumikill íshokkímaður sem hefur leikið bæði með Fjölni og Esju hér á landi, auk þess sem hann spilaði um tíma í Danmörku. Hann fór í gegnum öll yngri landslið Íslands og lék einnig með A-landsliðinu. Samhliða þjálfun hjá Fjölni hefur Gunnar verið þjálfari U18 landsliðs karla og starfaði sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs kvenna á heimsmeistaramótinu síðastliðið vor.

Gunnar þekkir starfsemi Fjölnis afar vel og hefur unnið markvisst að uppbyggingu meistaraflokks karla undanfarin tvö tímabil. Það er því mikið ánægjuefni að hann hafi ákveðið að halda áfram störfum hjá félaginu.

Íshokkídeild Fjölnis býður Gunnar hjartanlega velkominn til áframhaldandi starfa og hlakkar til að fylgjast með liðinu taka næstu skref undir hans stjórn.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »