Krisjanis Abolins-Abol er nýr yfirþjálfari barna- og unglingastarfs og meistaraflokks kvenna hjá Íshokkídeild Fjölnis

Krisjanis og Pétur, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, handsala samninginn

Krisjanis Abolins-Abol hefur verið ráðinn nýr yfirþjálfari barna- og unglingastarfs og meistaraflokks kvenna hjá Íshokkídeild Fjölnis.

Hann kemur í stað Emil Alengård sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár, en nýverið sagði hann upp stöðu sinni að eigin ósk. Fjöldi umsókna barst og eftir langt og strangt ráðningarferli var ákveðið að ráða Krisjanis Abolins-Abol frá Lettlandi. Kris, eins og hann er jafnan kallaður, heimsótti Ísland nýlega sem lokaskref í ráðningarferlinu, skoðaði aðstæður, stýrði æfingum og hitti ýmsa aðila frá Íshokkídeildinni.

Kris byrjaði að æfa íshokkí á unga aldri í Lettlandi þar sem íshokkí er ein vinsælasta íþrótt landsins. Hann spilaði í meistaraflokki í heimalandinu, Þýskalandi og fleiri Evrópulöndum áður en hann sneri sér alfarið að þjálfun í heimalandinu. Þar hefur Kris þjálfað ýmis yngri lið og stýrt æfingabúðum og námskeiðum fyrir börn og unglinga víða í Evrópu á vegum Next Hockey, ásamt því að stýra úrvalsliðum (selects) ýmissa aldurshópa frá heimalandinu í alþjóðlegum keppnum.

Auk íshokkíþjálfunar hefur Kris sérhæft sig í styrktar- og þrekþjálfun ásamt jóga. Hann býr yfir víðtækri reynslu af leikmannaþróun, afreksþjálfun og langtímaþróun íþróttamanna. Hann hefur náð góðum árangri við þjálfun leikmanna á aldrinum 7–16 ára, þróun og framkvæmd árangursmiðaðra æfingaáætlana á ís og utan íss, undirbúning leikmanna fyrir keppni á hæsta stigi og einstaklingsþjálfun afreksíþróttafólks. Kris býr einnig yfir sterkri þekkingu á myndbandsgreiningu, tæknilegri og taktískri þróun leikmanna, auk þjálfunar á sviði andlegrar frammistöðu.

Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, er mjög ánægður með ráðninguna:

„Kvennalið Fjölnis gekk í gegnum miklar leikmannabreytingar á síðasta ári eftir að hafa hampað Íslandsmeistaratitlinum árin 2024 og 2025. Í fyrra og núna í vetur eru margar ungar stelpur að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki og því er mikill fengur að fá til félagsins reyndan þjálfara sem er vanur að vinna með ungum leikmönnum sem vilja ná langt í íþróttinni.

Að sama skapi er Kris sannkölluð gullnáma fyrir yngri iðkendur okkar því hann hefur sérhæft sig í einstaklingsmiðaðri þjálfun og leikskilningi, enda eru börn og unglingar oft á mjög ólíkum stað í þessum þáttum. Hann kemur ekki síður gríðarsterkur inn við að móta þjálfunarstefnu okkar til framtíðar og leiðbeina öðrum þjálfurum deildarinnar í samræmi við stefnuna, þannig að þjálfun hjá okkur í Fjölni sé á pari við það sem best gerist í íshokkíþjálfun í heiminum í dag.“

Kris, nýr yfirþjálfari barna- og unglingastarfs og meistaraflokks kvenna hjá Íshokkídeild Fjölnis, er spenntur að hefja störf hjá Fjölni:

„Mér finnst rosalega spennandi tækifæri að fá að koma að allri þróun félags eins og Fjölnis því hér eru miklir möguleikar til að byggja upp félag og leikmenn í fremstu röð. Ég hef reynslu af því að leiða lið á alþjóðlegum mótum og vinna náið með fjölbreyttum hópi sérfræðinga og þjálfara til að hámarka árangur einstaklinga og liða. Með bakgrunn í líkamsræktarþjálfun, styrktar- og þrekþjálfun og jógakennslu legg ég áherslu á heildræna þróun íþróttafólks.

Ég brenn fyrir að hjálpa leikmönnum að ná hámarksgetu sinni, efla seiglu, sjálfstraust og góðan karakter og skapa umhverfi sem byggir á fagmennsku, ábyrgð og stöðugum framförum. Markmið mitt er að starfa innan atvinnu- eða afreksmiðaðs unglingastarfs í íshokkí þar sem ég get lagt mitt af mörkum til að hámarka möguleika leikmanna og áfram þróast sem afreksþjálfari.

Ég hlakka því mikið til að þróa starfið í Fjölni á næstu árum. Þetta er mjög spennandi verkefni fyrir mig.“

Kris hefur störf hjá Fjölni 7. ágúst og Íshokkídeild Fjölnis býður hann hjartanlega velkominn til félagsins.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »