Yngstu iðkendurnir í góðum höndum Andra og Flosrúnar næsta vetur

Íshokkídeild Fjölnis hefur gengið frá ráðningu aðalþjálfara fyrir yngstu iðkendurna næsta vetur. Skrifað hefur verið undir samninga um áframhaldandi störf Andra Freys Magnússonar og Flosrúnar Vöku Jóhannesdóttur, en þau voru einnig við störf hjá deildinni síðasta vetur og stóðu sig afburðavel.
Andri Freyr verður aðalþjálfari yngstu barnanna, sex ára og yngri. Andri er þrautreyndur íshokkíþjálfari og hefur um árabil verið í þjálfarateymi Fjölnis, ekki síst með byrjendur. Hann hefur jafnframt mikla reynslu af almennri skautaþjálfun, meðal annars hjá Íþróttafélaginu Öspinni. Þá er Andri einn af forkólfum krulluíþróttarinnar hér á landi. Auk þjálfunar yngstu iðkendanna mun Andri áfram sinna byrjendum á öllum aldri, þar á meðal fullorðnum sem vilja stíga sín fyrstu skref í íshokkí.
Flosrún Vaka verður aðalþjálfari U8- og U10-hópa íshokkídeildarinnar. Hún þekkir íshokkííþróttina afar vel en hefur spilað sem leikmaður bæði hér heima og erlendis. Flosrún er fyrirliði meistaraflokks kvenna hjá Fjölni, sem varð Íslandsmeistari árin 2024 og 2025. Auk þess býr hún yfir mikilli reynslu af þjálfun barna, bæði hér á landi og erlendis.
Það er sannarlega mikill fengur fyrir íshokkídeildina að hafa Andra og Flosrúnu áfram í þjálfarahópnum. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til áframhaldandi starfa og hlökkum til komandi tímabils.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026






