Festival vika Fjölnis slær öll aðsóknarmet

Á mánudaginn hefst íshokkínámskeiðið Iceland Hockey Festival 2026 sem fram fer í Egilshöll. Það má sannarlega kalla þetta námskeið íshokkíhátíð eða festival. Það eru Íshokkídeild Fjölnis og fyrirtækið Festival Hokeja sameina krafta sína á ný en í fyrra hófst samstarf þessara aðila með mjög vel heppnuðu námskeiði sem fram fór í ágúst í fyrra.

Nú er bætt í frá fyrra ári en Iceland Hockey Festival 2026 stendur yfir dagana 10.-16. Ágúst. Þetta er æfinga- og upplifunarævintýri sem er opið leikmönnum frá öllum íslenskum og erlendum félögum en þátttakendur eru fæddir á árunum 2006-2020. Yfirþjálfari verður rétt eins og í fyrra hinn pólski Maciek Fabiańczyk en í þjálfarahópnum með honum verða meðal annars Emil fráfarandi yfirþjálfari Fjölnis og Kris, nýr yfirþjálfari Fjölnis, Þjálfarahópurinn kemur frá þremur löndum, auk Íslands.

Viðtökurnar voru hreint frábærar og flest 77 sæti námskeiðsins seldust upp strax um páskana þegar opnað var fyrir skráningar. Því miður eru öll sæti full núna og ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Námskeið sem þessi eru frábært tækifæri til að kynnast nýjum vinum, bæta leikskilning og tækni og ekki síst að eiga skemmtilega viku bæði innan og utan íssins.

Íshokkídeild Fjölnis óskar þátttakendum Iceland Hockey Festival 2026 góðrar skemmtunar.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »