Kjartan Karl Gunnarsson framlengir við Fjölni

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Kjartan Karl Gunnarsson til ársins 2028.
Kjartan er uppalinn Fjölnismaður sem hefur átt farsælan feril í yngri flokkum félagsins og unnið fjölda titla. Hann hefur jafnframt öðlast dýrmæta reynslu á venslasamningi hjá Aftureldingu og haldið áfram að þróast sem leikmaður.
Á síðasta tímabili tók Kjartan stór skref með meistaraflokki Fjölnis og sýndi að hann á fullt erindi á hæsta stigi. Hann hefur ávallt verið öflugur stigaskorari og er tilbúinn að taka enn stærra hlutverk með liðinu á komandi tímabilum.
Þjálfari meistaraflokks karla, Baldur Már Stefánsson, fagnar því að Kjartan verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Kjartan tók stórt skref á síðasta tímabili. Hann hefur alltaf verið mikill skorari í yngri flokkunum og í fyrra sýndi hann að hann er klár í stærra hlutverk í meistaraflokki.“
Kjartan er ánægður með að framlengja samning sinn við félagið: „Ég er þakklátur fyrir traustið sem Fjölnir sýnir mér og er spenntur fyrir komandi tímabili með liðinu.“
Við óskum Kjartani innilega til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum áfram í Fjölnisbúningnum næstu árin.
Aðrar fréttir af deildinni
Fannar Hafþórsson framlengir við Fjölni
28/07/2026
Fjölnir þiggur sæti í Bónus deild kvenna
15/07/2026









