Fréttabréf 22. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Frábær byrjun hjá meistaraflokki karla
Frá síðasta fréttabréfi hefur heilmikið verið að gerast í félaginu okkar. Hæst ber þó án efa glæsilegur sigur meistaraflokks karla í fyrsta heimaleik tímabilsins sem fram fór á laugardaginn. Þar unnu þeir sannfærandi 4-1 sigur á Skautafélagi Akureyrar.
Það var frábært að sjá hversu margir mættu til að styðja liðið okkar og lukkukrakkarnir sem komu fram í byrjun gáfu sannarlega tóninn fyrir skemmtilegan og fjörugan leik. Myndasyrpu frá leiknum má finna á Facebook-síðu íshokkídeildarinnar.
Fleiri flokkar hafa einnig verið í eldlínunni. Síðastliðinn þriðjudag sigraði U18-liðið okkar SR í hörkuspennandi leik. U16-liðin léku bæði um síðustu helgi. Á föstudaginn fór U16B-liðið í heimsókn í Laugardalinn þar sem heimaliðið hafði betur. Á laugardaginn tók U16A-liðið á móti SA og tapaði 4-5 í æsispennandi leik.
Í kvöld tekur U16B-liðið á móti SR í Egilshöllinni. Fyrir komandi helgi ríkir mikil spenna þar sem fyrsta helgarmótið í U12-flokki fer fram á Akureyri. Þar erum við með þrjú lið til keppni og verður án efa mikið fjör.
Að lokum er rétt að geta þess að lítið verður um æfingar í Egilshöllinni um helgina vegna mótahalds á vegum listskautadeildarinnar. Nánari upplýsingar má finna í Abler.
Stelpurnar okkar á Atlantic Cup um helgina
Nú um helgina tekur meistaraflokkur kvenna þátt í skemmtilegu æfingamóti, Atlantic Cup, sem fram fer á skautasvellinu í Laugardal. Þátttökuliðin eru fjögur. Auk íslensku liðanna þriggja verður landslið Írlands gestalið mótsins. Ekki er langt síðan írska kvennalandsliðinu var komið á fót og er liðið nú að stíga sín fyrstu skref.
Okkar stelpur leika einmitt opnunarleik mótsins gegn Írum og verður spennandi að fylgjast með þeirri viðureign. Eins og áður segir fara allir leikir mótsins fram í Laugardalnum og hér fyrir neðan er dagskráin. Við hvetjum sem flesta til að mæta og styðja stelpurnar okkar.
Föstudagur 25. september kl. 18:45
Fjölnir – Írland
Laugardagur 26. september kl. 16:45
Fjölnir – Skautafélag Akureyrar
Sunnudagur 27. september kl. 20:00
Fjölnir – Skautafélag Reykjavíkur
Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Í upphafi keppnistímabils er ágætt að við foreldrar stöldrum aðeins við og minnum okkur á að við erum mikilvægustu fyrirmyndir barna okkar, bæði innan vallar og utan.
Þegar við mætum á leiki og æfingar fylgjast börnin með okkur ekki síður en þjálfurunum. Orð okkar, viðbrögð og framkoma kenna þeim hvernig á að sýna öðrum virðingu, takast á við sigra og ósigra og vera góðir liðsfélagar.
Hvetjum, styðjum og fögnum öllum börnum fyrir þeirra framlag. Gætum að orðum okkar gagnvart dómurum, andstæðingum, þjálfurum og öðrum foreldrum. Ef okkur þykir eitthvað verulega ábótavant í framkomu dómara eða annarra og teljum mikilvægt að koma því á framfæri, skulum við gæta þess að slíkar umræður fari ekki fram fyrir framan börnin okkar. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Með jákvæðri framkomu hjálpum við til við að skapa umhverfi þar sem börnum líður vel, njóta íþróttanna og geta blómstrað.
Munum að leikurinn er þeirra, en fyrirmyndin er okkar.
Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026







