Aníta og Hrafnhildur í 100- og 150 leikja klúbbinn.

Fyrir leik Fjölnis og Smára síðasta fimmtudag voru þær Aníta Björg Sölvadóttir og Hrafnhildur Árnadóttir heiðraðar fyrir að hafa náð merkum áföngum fyrir Fjölni. Báðar eru þær uppaldar Fjölnisstelpur.

Aníta, sem er fædd árið 2002, spilaði sína meistarflokksleiki með Fjölni árið 2018 í Inkasso deildinni. Árið 2024 skipti hún yfir í KR þar sem hún spilaði í ár áður en hún kom aftur heim í fyrra og hefur spilað með liðinu síðan þá . Leikurinn á móti KÞ í Lengjubikarnum var hennar 100. leikur fyrir félagið.

Hrafnhildur, sem er fædd árið 2003, spilaða sömuleiðis sína fyrstu meistaraflokksleiki með Fjölni árið 2018 í Inkasso deildinni. Hrafnhildur hefur spilað með Fjölni allar götur síðan og varð fyrirliði félagsins undir lok tímabils 2024. Þá var hún einnig valinn knattspyrnukona ársins árið 2024 og 2025, ásamt því að vera valin leikmaður tímabilsins á lokahófi meistaraflokka 2025. Leikurinn á móti Augnablik í 2.deildinni var hennar 150. leikur fyrir félagið.

Bæði Aníta og Hrafnhildur eru miklar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur sem uppaldnar Fjölniskonur og óskum við þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »